Í dag 30 september á Jónas minn afmæli og er 55 ára. Til hamingju með daginn elskan.
|
|||
30. september 2012
Í dag 30 september á Jónas minn afmæli og er 55 ára. Til hamingju með daginn elskan. 27. september 2012
30.6.2008 09:41 Við hjónin fórum um hádegi í dag til Reykjavíkur með Indý á hundasýningu. Auðvitað var hún lang flottust eins og við auðvitað vissum. Hún var fyrst sýnd í tíka flokki hvolpa í sínu kyni þar vann hún. Síðan keppti hún við hvolpinn sem vann hundaflokkinn í kyninu og vann hann. Þá vann hún 27. september 2012
Þetta ár er ár stórafmæla hjá fjölskyldunni… ég varð 50 ára í mars, Gústaf varð 25 ára í júní, Erlingur varð 30 ára í júlí, Jónas verður 55 ára á sunnudaginn 30. sept …. Marinó er sá eini sem á sitt stórafmæla ár einn og sér…. en hann varð 22. ára í mars… Skemmtilegt ! 27. september 2012
Margt hefur á daga fjölskyldunnar drifið frá því að ég skrifaði síðast. Við unum hag okkar vel hér í sveitinni með hesta og hunda. Ég hef bætti inn nýjum linkum á síðuna þar sem sagt er frá hestum og hundum ! Við erum í dag með þrjá hunda, tvær Australian Shepherd tíkur og eina 27. ágúst 2012
Nú er komin ný heimasíða í loftið og ekkert eftir annað en að vera duglegur að skrifa fréttir….! Aðal breytingin er að nú hef ég bætt inní hana hestum og hundum… og hið pólitíska útlit á að hverfa…! 26. mars 2009
24. mars 2009
24. október 2008
Jæja nú er kominn tími til að segja fréttir af fjölskyldunni Lilliendahl sem er flutt í Tjarnabyggð í Sandvíkurhrepp hinum forna. Nýja húsið: Við fluttum í nýja húsið í Tjarnabyggð þann 6. september sl. Við fluttum inn í hálf karað hús…eða þannig…hálf málað…ekkert í eldhúsinu…bara vatn í bílskúrnum…hálf flísalagt…ekkert baðker…en við höfðum þó 19. júní 2008
Ég er spurð víða um stöðu mála hjá okkur í Tjarnabyggð. Húsið er fokhelt, búið að klæða undir þakskegg og viðarklæðningu á veggi sem snúa að palli. Pallurinn er langt kominn. Við erum búin að girða og sleppa hestunum. Við áætlum flutninga seinnipartinn í 19. júní 2008
Tíminn líður hratt á þessum árstíma, nú hef ég ekkert skrifað í heilan mánuð rúmlega…en tími skattframtala hefur verið alveg á fullu og hef ég ekki gefið mér tíma til neins annars en að gera framtöl. En margt hefur gerst á þessum mánuði….til dæmis… Suðurlandsskjálftinn kom líka á þessum mánuði…. Ég 12. maí 2008
12.5.2008 00:03 Litla sonardóttir okkar var skírð í dag annan hvítasunnudag í Eyrarbakkakirkju. Séra Úlfar skírði stúlkuna og var henni gefið nafnið Dísella María. Dagurinn var fallegur og skartaði Eyrarbakki sínu fegursta. Hátíðin Vor í Árborg í fullum gangi, fánar og flögg um allan bæinn. Athöfnin var falleg hjá séra Úlfari, í kirkjunni 8. maí 2008
Vor í Árborg Í dag opnuðu fjórar sýningar í Hólmaröst. Þeir sem sýna þar eru Elvar Guðni, Valgerður Þóra, Heba og Richi Smith. Einnig kom þar fram Sambaslagverkshópur frá Tónlistaskóla Árnesinga. Richi Smith sýnir málverk og skúlptúra ýmiskonar og er sýning hans mjög skemmtileg og svona öðruvísi. Valgerður Þóra sýnir mósaíkverk 8. maí 2008
Í dag byrjuðu strákarnir í sólinni að setja dregara undir sólpallinn við húsið okkar…. auðvitað verður sólpallurinn að verða klár með húsinu. Við fáum húsið afhent með tilbúnum sólpalli og frágenginni 5. maí 2008
Í dag hófust strákarnir í Eðalhúsum handa við að setja sperrur á húsið okkar. Allt er þetta að taka á sig nýja mynd við hvert handverk þeirra. Við fórum til Reykjavíkur í dag og vorum að skoða flísar, hurðir, innréttingar, heimilistæki og fleira sem setja á í húsið í sumar. Einnig skoðuðum við kamínur, 3. maí 2008
Ég var komin í vinnuna kl. 7.30 í morgun og var að til að verða 17.00. Þessir dagar eru langir og skemmtilegir við gerð 1. maí 2008
Í gær var allt í einu komið hús….. en nú er kominn úthringurinn á húsinu okkar í Tjarnabyggð, við megum hafa okkur öll við til að fylgjast með slíkur er krafturinn í strákunum hjá Eðalhúsum í þessari framkvæmd. Ég er búin að stilla mér upp við eldhúsgluggan og sannreyna útsýnið til heimafjallanna. Það 29. apríl 2008
Í dag voru húseiningarnar fluttar að Norðurgötu 3 í Tjarnabyggð. Húsbyggingin gengur ótrúlega vel hjá þeim strákunum í Eðalhúsum. Þegar maður fylgist með verkefninu dag frá degi þá er auðséð að fagmennska og snyrtimennska í þessu fyrirtæki er mikil. Það er alveg sama hvenær maður kemur aldrei sér maður rusl eða 27. apríl 2008
Það verður nú notalegt þegar ég horfi út um gluggann í eldhúsinu sé ég til fjallanna minna í heimabyggðinni Rangárþingi. Við blasir fallegasta fjall á Íslandi Hekla svo Eyjafjallajökull og Þríhyrningur. Ég er alin upp við það að Hekla er eins og sjálfsagður hlutur í sjóndeildarhringnum og hef ég alltaf saknað þess 27. apríl 2008
Í dag fórum við í göngutúr um landið okkar í Tjarnabyggð. Nú er verið að skipuleggja girðingar og hólfaskiptingu landsins. Við verðum með um 5,5 hektara af landi og munum við skipta því niður í hólf til að stýra beitinni. Við stefnum á að láta girða núna á næstu dögum. Í Tjarnabyggð var 24. apríl 2008
Litla prinsessan kom í heimsókn til afa og ömmu á sunnudaginn var og hitti þar fyrir föðurbræður sína. Það er morgunljóst að hún mun hafa þó nokkra karlmenn til að snúast í kringum sig stúlkan það sér maður á þessari mynd af henni með Erlingi Erni, pabba sínum og Marinó Geir. Allir munu 24. apríl 2008
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs sumars og hjartans þökk fyrir veturinn. Þessi vetur hefur nú verið með þeim erfiðari hér á Suðurlandi, ófærð og vond veður voru eiginlega nær daglegt brauð. Strákarnir mínir hafa verið að keyra sig á milli Selfoss / Reykjavík vegna náms í nokkur ár og er þetta 24. apríl 2008
Í gærkveldi fór ég í göngutúr með Indý niður með ánni og ætlaði niður að flugvelli. Ég gekk niður Lækjarbakkan og þaðan niður að á. Ég var með Indý í bandi en ekki var ég komin langt þegar kom aftan að mér laus hundur urrandi og grimmilegur á svip. Í fjarlægð 23. apríl 2008
Allt er á fulli við byggingu á íbúðarhúsinu okkar og hesthúsinu í Tjarnabyggð. Búið er að steypa sökkla undir bæði húsin og hefur landmótun í kring verið í gangi. Á föstudaginn stendur til að steypa plötuna á grunn íbúðarhússins. Húsið er síðan tilbúið í einingum hjá Eðalhúsum en við kaupum af þeim 23. apríl 2008
Nú er skattatíminn alveg á fullu á skrifstofunni og mikið að gera. En alltaf er þetta nú jafn skemmtilegur tími að mínu mati. Ég er á námskeiðum í Háskólanum í Reykjavík þessa dagana, og er ég að stúdera skattstofna fyrirtækja og verðmat fyrirtækja. Gott að ferska upp hugann með 23. apríl 2008
Nú er búið að lagfæra heimasíðuna mína en hún hefur verið í hálfgerðu ólagi síðasta mánuð þannig að ég hef ekkert getað unnið í henni. Nú fer ég að taka mig á og setja inn fréttir reglulega 23. apríl 2008
Í fréttum síðustu daga og vikur hefur mikið verið rætt um uppbyggingu hafnar við Bakkaflugvöll og sitt sýnist hverjum í þessum máli sem eðlilegt er. Það sem ég undra mig á í þessu máli er "hvernig náðist fjármagn í þetta verkefni á svo stuttum tíma" ? Við getum horft á svo 19. september 2007
Í dag var ég komin til vinnu kl. 8 og var í vinnunni til kl. 22.00 í kvöld. Við erum á fullu þessa dagana að vinna ársuppgjöf fyrirtækja vegna ársins 2006. 18. september 2007
Á þriðjudögum er alltaf mikið um fundarhöld hjá mér. Ég byrja daginn kl.8.00 með bæjarmálahópi Framsóknarmanna hér í Árborg. Síðan er fundur hjá meirihluta bæjarstjórnar kl. 16.00 og stóð sá fundur til kl. 21.20. 17. september 2007
Í dag 17 september á pabbi minn afmæli. Hann er nú orðinn 68 ára karlinn, eldhress og frískur. Við skruppum eftir kvöldmat á Hellu til að hitta foreldra mína. Áttum notalegt kvöld heima ! 16. september 2007
Í dag vorum við heimavið og nutum dagsins í leti. Strákarnir okkar og Unnur tengdadóttir okkar komu í kvöldmat, en fóru síðan heim til Gústa og Unnar til að æfa fyrir æfmæli pabba síns. 15. september 2007
Við höfum það fyrir venju að fara í Skeiðaréttir og stundum í Tungnaréttir. Við byrjuðum í Reykjarétt á Skeiðum. Í dag er frekar kalsalegt, slydda og rok. Menn voru vel búnir í vatnsgöllum og margur með pela í vasa. Við fórum síðan upp í Tungur og fengum okkur réttarsúpu í bústaðnum hjá Eyvindi og Guðrúnu í Fellskoti. Alltaf er súpan hennar Rúnu jafn góð. Kátt var á hjalla, slegið á létta strengi og tekið lagið. Í Tungunum var snjókoma og var allt orið hvítt, og þegar við keyrðum frá Fellskoti þá var drjúgt slabb á veginum, við fórum niður Skeiðin og voru þá flestir, þó ekki allir, langt komnir á heimleið ríðandi. Þó voru fjárrekstrar á ferðinni enn og áttu töluvert langt heim. Við hittum Einar í Egilsstaðakoti og börnin hans við Skálmholt þá snjóaði á þau og var ansi kalt en hitastigið var á núlli. Við fórum í Kotið og fengum okkur réttarsúpu með húsráðendum og gestum þeirra. Síðan var sest í stofu og tekið lagið fram eftir kvöldi. Frábær réttardagur þó að veðrið væri með allra versta móti. 14. september 2007
Við skruppum um kvöldmatarleitið í Reykjarétt að taka á móti safninu af afrétt Flóa og Skeiða. Af fjalli kom, var mér sagt, nálægt 2000 fjár. Safnið var seint á ferðinni enda fé, hestar og menn þreytt og slæpt eftir mjög erfiðan dag. 14. september 2007
Í dag á vinur minn Guðmundur Kr. Jónsson afmæli, hann mætti í morgunkaffi eins og svo oft áður á föstudagsmorgni í vinnuna til okkar, en nú mætti hann með tertu með sér í tilefni dagsins. Til hamingju með daginn kæri vin. 13. september 2007
Í dag var hefðbundinn vinnudagur og var ég í vinnunni fram til kl. 19.00. 12. september 2007
Ég fór á stað að Hellu til foreldra minna kl. 8.00 í morgun, en ég hafði lofað að vera með þeim á fundi með sveitarstjóranum, oddvitanum og eignaumsýslunni. Við erum að vinna að lausnum vegna breytinga sem gerðar hafa verið á lóð verslunarinnar Hjá Vinsý, mömmu minnar, en við síðasta skipulagsferli í Rangárþingi ytra var lóðin minnkuð um 500 fermetra, þannig að hluti af trjárækt lóðarinnar er nú utan hennar. Um er að ræða 27 grenitré sem eru um 3 metrar á hæð hvert þeirra. Nú standa fyrir dyrum flutningar á öllum þessum trjám þar sem þau skulu víkja fyrir skipulaginu. Það er víða sem skipulagsmálin hafa áhrif á íbúa sveitarfélaga. 11. september 2007
Það er skrítið hvað þessi dagsetning 11. september er í huga manns eftir hryðjuverkin í New York um árið. Maður á einhvernveginn von á hverju sem er, finnst þessi dagur óútreiknanlegur. En sem betur fer fór allt fram með eðlilegum hætti þennan dag sem aðra. 10. september 2007
Í dag var hefðbundinn vinnudagur hjá mér og er drjúgt að gera þessa dagana. 9. september 2007
Við komum heim úr Skaftártungunum um þrjúleitið. Við fengum góða gesti, Gústaf okkar og Unni Ósk tengdadóttur okkar ásamt föður hennar Magnúsi Guðmundssyni. Magnús býr á Akranesi og forstjóri Landmælinga Ríkisins ásamt því að vera mætur framsóknarmaður sem starfar fyrir flokkinn í sínu sveitarfélagi. Við áttum saman góðan eftirmiðdag yfir kaffi og spjalli. 8. september 2007
Í morgun fórum við af stað austur í Svínadal, við komum við í Vík og fór ég í kirkjugarðinn að leiði Ellu vinkonu minnar með rauða rós, Ella lést í 11. október 1997 langt fyrir aldurfram aðeins 36 ára gömul. Við fengum okkur kaffi í Víkurskála hjá Guðmundi og Lóu, en þau voru á fullu í lokafrágangi vegna í skálanum en þau eru að hætta rekstri hans og flytja á Selfoss, Guðmundur mun taka við rekstir á N1 í Fossnesti. Áfram var haldið og komum við í Svínadal um fjögur leitið. Ótrúleg upplifun var að koma á þennan stað, náttúrufegurinn er stórkostleg, friðurinn og kyrrðin. Í Svínadal er greinilegt að þar hefur verið mikill búskapur og var gaman að ganga um gömlu húsin og sjá gamla tímann í nútímanum. Íbúðarhúsið er þriggja hæða en það var byggt 1930, í því eru 6 svefnherbergi, stofa og eldhús. Við áttum góða stund með góðum vinum á þessum dásamlega stað. 8. september 2007
Jónas minn verður fimmtugur í lok september og ætlum við að slá til veislu að Þingborg í Flóahreppi þann 29. sept. nk. þá verður nú gaman……nánar um þetta síðar. 8. september 2007
Við erum að leggja af stað í Skaftártungurnar í ferð með vinahjónum okkar að Svínadal þar sem við ætlum að vera þar til á morgun. Skemmtileg helgi framundan í hópi góðra vina. 6. september 2007
31. ágúst – 2. september 2007 27. ágúst 2007
Vid erum stødd a flugvellinum i Nuuk a heimleid. Høfum att frabaera daga her i godu vedri. Nuuk er allt ødruvisi baer en eg hafdi gert mer i hugarlund. Eg sit a skrifstofunni hans Atla og nyti tølvuna hans og skrifbordid. Komum heim i kvøld. 27. ágúst 2007
27. ágúst 2007. Við fórum á fætur um kl. 8 í morgun en komið er að heimferð þó ótrúlegt sé. Magga og Jón komu með nýbakað með morgunkaffinu. Atli og Inge komu til okkar um níuleitið og setið var að spjalli þar til við þurftum að fara á flugvöllinn, en við eigum 26. ágúst 2007
26. ágúst 2007. Ég var vöknuð um kl. 8 í morgun, veðrið var mjög gott, þurrt og aðeins vindur. Við hjónin vorum sest að morgunverði þegar Atli kom til okkar um 9,30, rétt á eftir komu litlu hjónin Magga og Jón. Setið var yfir kaffi og meðlæti sagðar sögur og spjallað fram 25. ágúst 2007
25. ágúst 2007. Ég var komin á fætur um 8 leitið og gerði klárt fyrir morgunmat fyrir okkur fjögur. Magga og Jón komu síðan um hálf tíu. Yfir morgunkaffinu var mikið skrafað og var gærdagurinn ofarlega í hugum okkar allra, Narssaq með öllum sínum sjarma en jafnframt með svo skýrum mun á 24. ágúst 2007
24. Ágúst 2007. Við fórum á fætur um kl. 7.00 og ég fann til morgunkaffið fyrir okkur sem bjuggum í flugfélagsíbúðunum. Veðrið er milt, blanka logn en þungt yfir og ekki er hitastigið hátt. Atli og Ittu sonur hans komu til okkar um 7.45 og tilkynntu að sigling væri framundan, veður væri 22. ágúst 2007
Á þinginu voru samþykktar ályktanir og eru þessar þær helstu; Landsþing framsóknarkvenna haldið í Reykjavík 18. ágúst hvetur ríkisstjórn Íslands eindregið til að samþykkja frumvarp um endurskoðun jafnréttislaga sem er til umsagnar. Þar kemur fram að atvinnurekanda verði óheimilt að gera það að skilyrði fyrir ráðningu starfsmanns að honum sé bannað að veita þriðja aðila upplýsingar um laun sín eða kjör. Mikilvægt er að afnema launaleynd þar sem rannsóknir sýna að þar sem launaleynd ríkir sé kynbundinn launamunur meiri en þar sem launaleynd er ekki til staðar. 22. ágúst 2007
Á laugardaginn var haldið landsþing Landssambands Framsóknarkvenna. Á þinginu var kosin nýr formaður Ólöf Pálína Úlfarsdóttir úr Kópavogi. Ég var kosin í landsstjórnina. Þær sem kosnar voru til embætta eru; 21. ágúst 2007
Á fimmtudagsmorguninn næsta fljúgum við Jónas ásamt Möggu mágkonu og Jóni hennar til Nuuk á Grænlandi. Atli mágur minn býr þar með sína fjölskyldu og hefur gert í mörg ár. Við erum að fara til þeirra í heimsókn í fyrsta sinn. Mikil tilhlökkun er í okkur vegna ferðarinnar. 21. ágúst 2007
Í kvöld vorum við með gesti í mat. Til okkar komu góðir vinir okkar, Þorvaldur fyrrum bóndi á Laugarbökkum og Hanna kona hans. Einnig komu krakkarnir þeirra, Ívar Áki, Inga og Rakel Lind. Strákarinir okkar komu heim, Erlingur, Gústaf og Unnur Ósk tengdadóttir okkar. Marinó Geir og Vésteinn frændi minn sem býr hjá okkur í vetur voru líka heima, þannig að kátt var í kotinu í kvöld. 20. ágúst 2007
Í dag fór ég til vinnu eins og venjulega kl.8.00. Ég er þessa dagana að vinna ársreikninga fyrir fyrirtæki og gera skattframtöl fyrir þá sem gleymdu að telja fram og leiðrétta fyrir aðra. 19. ágúst 2007
Í dag fór ég í vinnuna um kl. 10.00 og var fram eftir degi. Ég er enn að klára að koma okkur fyrir á skrifstofunni, verið að setja upp hillur í geymslu og þh. Allt er þetta samt á lokaspretti. 19. ágúst 2007
17. Ágúst 2007 Bókhalds og ráðgjafaþjónustan Hjá Maddý í nýtt og stærra húsnæði Bókhalds og ráðgjafaþjónustan ”Hjá Maddý” hefur vaxið og dafnað vel síðan að Margrét Katrín Erlingsdóttir stofnaði fyrirtækið í júní 2002. Nú er fyrirtækið flutt í nýtt og stærra húsnæði að Eyravegi 27 á Selfossi. Með fyrirtækinu 18. ágúst 2007
Í dag fórum við hjónin í bíltúr upp um allar sveitir Árnessýslu. Við keyrðum upp Grímsnes og virtum fyrir okkur alla sumarhúsabyggðina sem þar er orðin. Á sumum stöðum er byggðin svo þétt að styttra er í næsta hún en í þéttbýli. En vissulega er fegurðin óumdeilanleg í Grímsnesinu. Við keyrðum í Reykholt og skoðuðum nýju hverfin sem hafa byggst upp þar. Frábært að sjá hve blómlegar byggðir eru víða í Bláskógabyggð. Við keyrðum yfir gömlu brúna við Tungnarétt og keyrðum upp að Kjarnholtum og þaðan yfir að Geysi. Frá Geysi fórum við yfir hjá Brúarhlöðum og að Flúðum sem er eitt af þessum blómlegu fallegu byggðum í uppsveitum. Næst lá leiðin upp í Þjórsárdal. Við keyrðum upp með Þjórsá og reyndum að gera okkur grein fyrir hvernig liti út á þessum slóðum ef heimilað verður að virkja í neðrihluta Þjórsár. Ótrúleg hugmynd að láta sér detta í hug að sökkva landi í byggð…… 17. ágúst 2007
Jónas fór í próf í Háskólanum í Reykjavík í dag. Nú er bara að bíða eftir niðurstöðunni og ef hann nær hefur hann lokið diplomanámi í viðskiptadeild skólans með áherslu á stjórnun og starfsmannamál. Námið er 45 einingar og en viðskiptafræðin er 90 einingar. Vonandi útskrifast strákurinn með haustinu. 17. ágúst 2007
Í dag var hefðbundinn vinnudagur og enginn fundur….! Í morgun komu gömlu vinnufélagarnir í VGK-Hönnun í morgunkaffi í nýja húsnæðið. Við höfum haft gott morgunkaffi saman alla föstudaga meðan við leigðum saman í gamla Árvirkjahúsinu. Nú er stefnan að hittast áfram sitt hvorn föstudaginn á hvorum stað. í kvöld fórum við síðan út að borða með Gústaf og Unni Ósk, við fórum á Menam, alltaf jafn gott að koma þar góð þjónusta og góður matur. 16. ágúst 2007
Í dag var fundur í Bæjarráði Árborgar og er þetta síðasti fundurinn sem ég sit sem formaður bæjarráðs. Í næstu viku tekur Þorvaldur við sem formaður og hefur hann þá lokið sumarleyfi sínu, því fyrsta sem hann hefur tekið frá því hann var kjörinn í sveitarstjórn 2002. Það var löngu orðið tímabært að ég létti aðeins undir með honum þannig að hann hefði tíma til að sinna fjölskyldunni og áhugamálum sínum. 13. ágúst 2007
Ég mætti í vinnu kl. 8.00 í morgun á nýja skrifstofu. Dagurinn var þægilegur og frekar rólegur. Skrifstofan er notaleg og er hljóðvistin töluvert betri en á gamla staðnum. Umferðarhávaðinn er mikið minni sem betur fer. Ég lét skipta um gler í framhliðinni sem skiptir sköpum í hljóðeinangrun. 12. ágúst 2007
Seinnipartinn í dag fór ég á skrifstofuna til að ljúka síðustu handtökunum fyrir vinnudaginn á morgun. Hengdi upp myndir og puntaði hjá stelpunum. Skúraði yfir og þurrkaði af. 11. ágúst 2007
Í kvöld fórum við á Sléttusönginn sem er árleg hátíð hér á Selfossi. Samkór Selfoss heldur utan um þessa skemmtun fyrir sveitarfélagið. Skemmtunin fór vel fram og var fullt af fólki. Einstaklega er vel til fundið að hafa þessa skemmtun sömu helgi og Olísmótið er á íþróttavellinum. Tjaldstæðin full af fólki sem njóta stundarinnar með íbúum. Skemmtuninni lauk með flugeldasýningu. 11. ágúst 2007
Í morgun fór Jónas í skólann en ég fór á skrifstofuna að taka upp úr kössum og ganga frá gögnum. Að dagsverki loknu var ég búin að taka upp úr öllum kössum og raða í allar hillur í húsinu. 10. ágúst 2007
Í kvöld fengum við hjónin góða gesti í kvöldkaffi. Þar voru komin Þórólfur og Anna bændur að Hjaltastöðum í Skagafirði. Áttum góða kvöldstund með gömlum og góðum vinum. 10. ágúst 2007
Dagurinn í dag fór í að raða upp húsgögnum og taka upp úr kössum. Mummi meistari var hjá okkur allan daginn að skrúfa saman húsgögn og setja upp hillur. Margir litu við í dag að kíkja á húsnæðið. Við Magný vorum einar í dag hinar allar í sumarfríi. 9. ágúst 2007
Í morgun hófum við Gugga að undirbúa flutning fyrirtækisins í nýja húsnæðið að Eyravegi 27 neðri hæð. Árný dóttir Guggu var líka með okkur og var dagsverkið hennar djúgt. Magný kom um hádegi og græjaði tölvur til flutnings, sá um afritunartöku af öllum gögnum og þess háttar. Mummi kom og skrúfaði allt sem skrúfa þurfti í sundur. Við fengum síðan liðsauka kl. 6.00 en þá komu fjórir vaskir handboltamenn, Gústi, Ragnar, Birkir og Dóri, og þeir strákarnir báru alla þessa tugi kassa, öll húsgögn og allt sem til þarf í rekstri sem þessum. Strákarnir voru nú ekkert að hangsa við verkið og luku því á tveimur tímum. Sem sagt allt komið yfir á nýja staðinn og er nú bara eftir að koma öllu fyrir á sínum stað. Alveg er það ótrúlegt hve mikið magn af gögnum og hlutum fylgja fyrirtæki sem þessu en væntanlega verður ekki þörf á frekari flutningum fyrirtækisins þar sem við erum loksins komin í eigið húsnæði. 8. ágúst 2007
Í dag pöntuðum við hjónin okkur frí á Gran Canary í febrúar 2008. Við ætlum að fljúga út 6 febrúar og koma heim 27 febrúar. Þetta er eiginlega eina fríið sem við förum í saman þegar við förum á þessum tíma ársins. Ég var nú eiginlega svolítið hissa á hve mikið er selt af ferðum á næsta ári við höfum yfirleitt ekki pantað fyrr en í október eða nóvember. Nú pöntuðum við bara flug hér heima en bókum gistingu beint hjá söluaðila á Canary. Skemmtilegt að prófa að panta án þess að fara í gegn um ferðaskrifstofu hér. 8. ágúst 2007
Nú er framkvæmdum við Eyraveg 27 lokið og standa flutningar fyrir dyrum á morgun. Ég hef verið að taka til og þrífa í dag. Atli smiður var að setja stormjárn og klára það síðasta. Málararnir Hannes og Denni kláruðu að mála og kítta það síðasta. Tryggvi og Helgi komu og tengdu eldhúsvaskinn og blöndunatækin og fóru yfir niðurföll og vaska. Ívar í Fagform kom vegna merkinga sem hann ætlar að setja í gluggana. 6. ágúst 2007
Í morgun kl. 9.30 var ég komin niður á Eyraveg með pensil í hönd til að fúaverja glugga og hurðir. Ég lét skipta um allt gler og breyta gluggum á framhliðinni til að fá opnanleg fög. Það er alveg auðséð þegar maður fer að bera á gluggana að viðhald utanhúss hefur verið bágborið síðustu ár. Viðurinn drakk í sig fúavörnina. Ég lét taka útidyrahurðirnar og renna þeim í gegn um hefilinn í Selós þar sem þær voru orðnar frekar ljótar, nú eru þær eins og nýjar. Ég var að fram til kl. 17.00 en þá var ég búin að bera á allt timburverk utanhúss. 4. ágúst 2007
Í morgun komu góðir gestir í morgunkaffi, Hróðný vinkona mín ásamt gullmolunum tveimur Karítas og Sigurbjörgu sem eru tvíburar. Stúlkurnar voru auðvitað að venju eins og prinsessur í pilsum og með spennur í hárinu. Þær eru miklar efnisstúlkur á allan hátt. 3. ágúst 2007
Í dag hefur verið mikill erill á skrifstofunni það er vaskur eftir helgina. Anna og Edda eru að fara í sumarfrí þannig að allt verður að vera klárt fyrir þriðjudaginn. 1. ágúst 2007
Í dag á mamma mín afmæli og er 70 ára. Hún er fædd að Bæ í Trékyllisvík í Árneshreppi á Ströndum. Foreldrar hennar voru Anna Jakobína Guðjónsdóttir og Samúel Samúelsson sem lést þegar hún var lítil stúlka. Fósturfaðir mömmu var Kristinn Jónsson frá Seljanesi. Mamma er alin upp á Dröngum í Árneshreppi, en þangað fluttu amma og afi þegar börnunum fór að fjölga á Seljanesi. Drangar er góð jörð þar sem ávallt var nægur matur handa barnahópnum. Mamma og systkini hennar eru 14 talsins. Afkomendur ömmu minnar og afa eru um 170. 31. júlí 2007
Í dag er Unnur Ósk unnusta Gústa míns 19 ára. Unnur Ósk er Skagamær sem er að læra háriðn eins og Gústi. Litlu hjónin búa í Álftarimanum. Unnur Ósk flaug til Tenerife í dag ásamt pabba sínum og bróður. 30. júlí 2007
Það er nú erfitt að koma aftur til vinnu eftir stutt frí….en mikið vildi ég óska þess að ég væri enn fyrir norður á Ströndum…..og ætti eftir að vera lengi. 29. júlí 2007
Í dag keyrðum við heim aftur eftir frábæra helgi með stákunum okkar, tengdadóttur og fjölskyldunni allri. Mamma og pabbi ásamt okkur systkinunum mættu pg allir okkar afkomendur, samtals voru 31 í hópnum. 28. júlí 2007
Í dag fjölgaði enn meir á tjaldsvæðinu hjá okkur og endaði með því að þátttakendur voru orðnir 300. Í Skjaldabjarnarvíkurættinni er um 850 manns. Í dag fórum við í sund í Krossnes og nutum þess að horfa yfir sjóinn í lauginni. Sennilega er þetta ein sérkennilegasta en jafnframt flottasta staðsetning fyrir sundlaug sem til er á landinu. Í kvöld var sameiginlegur kvöldverður, skemmtun og ball. Stákarnir mínir tróðu upp „the Lilliendahls“ kalla þeir sig. Strákarnir mínir Erlingur og Marinó ásamt Pálmari tengdasyni Samma bróður spiluðu fyrir dansi. Frábært kvöld 26. júlí 2007
Í dag erum við hjónin ásamt drengjunum okkar og tengdadóttur á leið noður í Trékyllisvík á ættarmót. Við ætlum að keyra í kvöld að Klúku í Bjarnafirði (Laugarhóli) og tjalda þar í kvöld. Það eru orðin æði mörg ár síðan við höfum farið heila helgi með alla drengina okkar með okkur. Framundan frábær helgi með Erlingi, Gústaf, Marinó og Unni Ósk. 24. júlí 2007
Í dag byrjaði Jónas í HR til að ljúka námi sínu í stjórnun og starfsmannamálum en hann átti eftir að klára eitt fag til að geta útskrifast. Námið er 45 einingar á viðskiptasviði. 13. júlí 2007
Seinnipartinn í dag fórum við hjónin á stað noður í land. Leiðin lá að Hvammstanga til Benjamíns móðurbróður míns og Láru konu hans. Þau hafa boðað til fjölskylduhátíðar um helgina og er tilefnið margir merkir áfangar í lífi fjölskyldunnar á síðasta ári. Um er að ræða tvö fimmtugsafmæli, 30 ára brúðkaupsafmæli, einn stúdent og svo mætti lengi telja… Við vorum komin norður um miðnættið. Við fórum héðan að sunnan úr 21stigs hita en þegar við komum niður Holtavörðuheiði var einungis 7 gráður ….. þannig að heldur kólnaði nú þegar maður renndi niður fjallveginn… Við tjölduðum á tjaldsvæðinu á Hvammstanga sem ég mæli eindregið með. Flott aðstaða fyrir ferðamenn. 12. júlí 2007
Í dag fórum við og sóttum Sóley og Skýrnir að Stóru Reykjum. Þau létu okkur hlaupa töluvert á eftir sér í hitanum….á endanum náði Jónas sér í hest, Ljúfling minn, til að smala þeim saman. Fórum með Sóley undir Tjörfa frá Sunnuhvoli. 12. júlí 2007
Í dag kom Magnús frændi minn með okkur að Stóru Reykjum til að járna tvo hesta fyrir áætlaða hestaferð í næstu viku. 10. júlí 2007
Í dag á tengdapabbi afmæli og flúði að heiman….nei…. hann var í sumarbústaðnum í dag. Við notuðum kvöldið til að fara og kíkja á folaldið hennar Sóleyjar sem fæddist í gær. Það reyndist vera stór og fallegur rauður hestur. 9. júlí 2007
Í dag kastaði Sóley rauðu hestfolaldi. Hann er undan Trú frá Auðsholtshjáleigu. Folinn hefur hlotið nafnið Skýrnir. 8. júlí 2007
Í dag vöknuðum við í steikjandi hita í Gulllandinu, dagurinn fór nú eiginlega bara í það að sitja í sólinni og gera ekki neitt.. 7. júlí 2007
Í dag fórum við Jónas í bústaðinn til mömmu og pabba í Gulllandinu. Einnig komu systur mína Hólmfríður og Anna Kristín ásamt mönnum sínum. Við borðuðum góðan mat en skruppum síðan öll ásamt mömmu og pabba upp í Landmannalaugar sem eru einungis „101“ km. frá Hellu um Dómadal. Í Laugunum var Sammi bróðir og Ásta kona hans ásamt vinum sínum í hestaferð. Dásamlega fallegt í Landmannalaugum. 1. júlí 2007
Í dag höfum við verið á ferð og flugi, fórum í bústaðinn til tengdó „Krækishóla“ sem eru í Villingaholtshreppi, kíktum á kofann okkar sem stendur þar í grendinni. Fórum yfir í Merkurlautina og litum við hjá móðursystrum Jónasar, Ástu og Hólmfríði. Þar eru miklar framkvæmdir í gangi við byggingu sumarhúsa og viðbyggingar. Þegar heim kom var móðurbróðir minn Guðjón mættur með stóru klippurnar sínar til að snyrta til trén í garðinum. Tekinn var púlsinn á málefnum ættarinnar og rætt um ættarmótið sem framundan er í Trékyllisvík síðustu helgina í júlí. Þar hittast afkomendur ömmu minnar og hennar systkina og eiga saman helgi á slóðum forfeðranna. 30. júní 2007
Um hádegisbilið fórum við að Stóru Reykjum að sækja Hélu til að koma henni í girðingu hjá graðhesti. Yfirleitt getum við gengið að hrossunum okkar í haganum án vandræða. En svo var nú ekki að þessu sinni. Héla kastaði 16 júní merfolaldi sem nefnt hefur verið Stúlka, þær létu okkur hafa töluvert fyrir sér að þessu sinni. Hryssurnar okkar eru oft styggar þegar þær eru með folöldum og þá er eins gott að vera léttur á fæti til að hlaupa á eftir þeim. Sú var raunin nú en við eltum þær um mýrarnar og tók okkur drjúgan tíma að koma þeim heim. 28. júní 2007
Í hádeginu í dag var aukafundur í bæjarráði þar sem samþykkt var að deiliskipulag af miðbæjarskipulagi yrði auglýst. Málið fer fyrir bæjarstjórn á mánudaginn kemur. 28. júní 2007
Í dag flugu Magný Rós (systurdóttir mín og hægri hendi) og Steinunn Alexandra dóttir hennar til Ísafjarðar og sigla á morgun frá Bolungarvík fyrir Hornbjarg í Látravík. Þær ætla að dvelja í Hornbjargsvita fram á mánudag og ganga þar um með frænkum sínum . Magný Rós er af Reykjafjarðarættinni, afi hennar var Kjartan Jakobsson í Reykjafirði, og eru konur af þessari ætt að fara í annað sinn í Frænkugöngu á Ströndum. Þær fóru einar mæðgurnar að þessu sinni með frænkum sínum þar sem Anna Stína systir mín, Íris og Harpa dætur hennar komust ekki, en við systurnar „Fríða, Inga og ég“ erum ekki af þessari ætt og erum því ekki gjaldgengar í þennan frænkuhóp þó við hefðum svo gjarnan viljað fara…. en svona eru nú þessi ættartengsl flókin stundum.. 27. júní 2007
Í kvöld kom Erlingur minn heim í mat og voru þá strákarnir mínir allir heima í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Erlingur er í verkfræðinámi í HR og býr í Kópavogi. Það er mikið að gera hjá honum þannig að fáar stundir gefast til að líta á þau gömlu. En í tilefni af afmæli Gústafs á mánudaginn komu þeir allir heim til okkar í mat.. Dásamlegar stundir þegar þeir eru allir hjá okkur strákarnir, stundir sem verða færri og færri eftir því sem árin líða. 26. júní 2007
Nú er hafið þetta daglega líf eftir snöggt frí um helgina. Ég var á fundi á Hellu með foreldum mínum í morgun, skrapp í vinnu í tvo tíma síðan á fund til Reykjavíkur. Var komin heim um 20.30 í kvöld. 25. júní 2007
Í dag er miðbarnið á heimilinu hann Gústaf tvítugur. Það er hreint ótrúlegt hve tíminn líður hratt og börnin verða fljótt fullorðinn þó að maður sé ekki að eldast neitt sjálfur ! (að manni finnst) Gústaf býr heima hjá okkur og er í námi í Háriðn í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann er á samning á Stofunni hér á Selfossi og klippir eins og herforingi alla daga. Hann spilar síðan sem trúbador í Kaffikrús um helgar til að létta róðurinn fyrir veturinn. Hann stendur sig vel drengurinn. Til hamingju með daginn Lilli minn. 24. júní 2007
Þessi dagur hófst eins og sá síðasti, að sofið var þar til við vorum búnar að sofa, borðað og síðan riðið af stað. Við fórum yfir afréttinn og niður í Blakkdal. Veðrið í dag var með allra heitasta móti. Mikil fluga enda sól og logn. Það er alltaf erfitt fyrir hross og menn ef að hitinn verður of mikill, en það slaknaði sem betur fer þegar leið á. Við riðum úr Blakkdalnum yfir í Fossnes hagana og alveg heim í hlað þar og síðan heima að Ásum. Dagurinn endaði á Húsatóftum í Hestakránni í kjötsúpu eins og venjulega. Frábærlega heppnuð ferð með góðum vinum. Öskubuskur eru frábær félagskapur. 22. júní 2007
Í morgun fórum við Prinsessur af stað í leiðangur til fjalla með Dúnu á Húsatóftum, í hópnum voru 22 konur, 4 rekstrarmenn, 1 matráður og Dúna. Við riðum af stað frá Ásum í Gnúpverjahreppi að Fossnesi yfir Gaukshöfðann og inn allan Þjórsárdal. Við riðum í gegn um skóginn og lúpínubreiðurnar í sól og hita…en það var auðvitað mikið ryk enda ekki ringt dögum eða vikum saman. Daginn enduðum við í Kletti og gistum þar. Góður dagur, komum í kofa skítugar en mjög sáttar með daginn. 21. júní 2007
Í dag er ég að ljúka undirbúningi fyrir hestaferð sem ég er að fara í. Kvöldið fer í hrossaflutninga og lokapökkun en lagt verður á stað í fyrramálið. Ferð þessa pantaði ég fyrir nákvæmlega ári síðan eins og margur gerir þegar leggja á í hestaferðir. Við sem erum hlaðin störfum þurfum að vera skipulögð og er það oftast svo að ég er búin að bóka mig eina til tvær vikur fram í tímann. 17. júní 2007
Í dag héldum við Íslendingar upp á þjóðhátíðardag okkar 17. júní. Dagurinn tókst vel hér í Árborg, veðrið var með allra besta móti miðað við oft áður. Innilegar hamingjuóskir með daginn okkar allra. 15. júní 2007
Í dag fór starfsmannafélagið Mönný, sem er félag okkar starfsmanna Hjá Maddý og VGK Hönnunar, í sumarferð fjölskyldunnar. Við fórum nú ekki langt en þó með tjöld og tilheyrandi í Þrastaskóg, þar var grillað, sungið og trallað. Frábært ferð með góðum vinum. Börnin skemmtu sér í skóginum og við fullorðna fólkið nutum veðurblíðunnar og samverunnar. Þrastaskógur er alveg einstök paradís við bæjardyr okkar hér í Árborg og er hverjum manni holt að skjótast þangað til að dvelja á flötinni í tjaldi eða bara að ganga um skóginn. 14. júní 2007
Þessi tillaga var samþykkt samhljóða í Bæjarráðinu í morgun. 14. júní 2007
Í morgun tók nýtt bæjarráð við eins og venja er í júní ár hvert. Bæjarráð er alltaf kosið til eins árs í senn. Meirihluta flokkarnir höfðu skipti á embættum, Jón Hjartarson er forseti bæjarstjórnar og er ég formaður bæjarráðs þar til í ágúst en þá tekur Þorvaldur við. Hann tekur frí frá embættum í sumar og er það fyrsta fríið hans í fimm ár. 14. júní 2007
Þessi tillaga var samþykkt í bæjarráði í morgun. 13. júní 2007
Í dag var kátt á hjalla á skrifstofunni þegar síðustu skattframtölin voru send úr húsi. Ég er búin að vera í frí frá því seinnipartinn í dag og verð í fríi til mánudags. 13. júní 2007
Í dag var fundur í bæjarstjórn kl. 17.00, afgreiddar voru fundagerðir síðasta mánaðar og kosið í þau embætti sem kosið er í til eins árs í senn. Einnig var afgreidd tillaga frá D listanum um íbúakosningu vegna Miðbæjarskipulags og Austurvegar 51 – 59. Undarleg tillaga á lokaspretti Miðbæjarmálsins….en meir um það seinna. 12. júní 2007
Í dag var fundur í bæjarmálahópi B listans frá 8 – 10 í morgun. Meirihlutafundur hófst kl. 16.00 og stóð til kl. 22 í kvöld. 11. júní 2007
Í dag þurfti ég að skjótast á fund með sveitastjóranum á Hellu og notuðum við því tækifærið hjónin og komum við hjá mömmu í búðinni. Þegar þangað var komið sáum við að Hreinn hennar Ingibjargar frænku í Hveragerði var kominn með fullan bíl af sumarblómum. Nú var ekki annað að gera en að taka til hendinni og koma blómunum fyrir þannig að salan gangi sem greiðlegast fyrir sig. Alveg er það dásamlegt að stússast í sumarblómunum og verða svolítið skítugur ásamt því að fylla lungun að heilnæmu lofti æskubyggðarinnar. 10. júní 2007
Á föstudagskvöldið fórum við Jónas ríðandi með hrossahópinn að Stóru Reykjum í Flóahreppi til að sleppa eftir vetrarfóðrun. Við fórum eins og venjulega reiðveginn með Flóavegi, þessi reiðvegur er nú orðinn frekar lélegur, hann er grýttur megnið af leiðinni. Eins er alveg ótrúlegur hávaði frá umferðinni sem er nær sleitulaus, hann er það mikill að ekki er hægt að tala saman á þessum kafla, ætli þetta sé ekki kallað hávaðamengun ? 10. júní 2007
Í dag kl. 13.00 hófst fundur i miðstjórn Framsóknarflokksins á Grand Hótel. Fundurinn var vel sóttur og stemmingin góð. Formaður okkar Guðni Ágústsson flutti góða ræðu að vanda, hann fór yfir stöðu flokksins eftir kosningar. Samstaðan á fundinum var mikil og baráttuhugur í fundarmönnum. Alveg er ljóst að framundan er tími sem við munum nota til að þétta raðir flokksins á landsvísu og miðað við andann á þessum fundi er alveg ljóst að við munum ná markmiðum okkar í næstu kosningum. Þingflokkur okkar er skipaður fólki með mikla reynslu og þekkingu og verður ekki auðvelt starf stjórnarinnar með þau öll í stjórnaraðstöðu. Valgerður var kosin varaformaður flokksins og er nú forystan fullskipuð að nýju. Framsókarflokkurinn er flokkur á miðju stjórnmálanna með hjartalag til vinstri sagði formaður okkar. 9. júní 2007
Í dag var opnuð sýningin Árborg 2007 sem stendur í tvo daga. Sýningin fer fram í Íþróttahúsinu við Sólvelli. Sýningin er einstaklega vel upp sett og frábært að sjá hve mörg fyrirtæki sáu ástæðu til að taka þátt í verkefninu. Sveitarfélagið var með bás á sýningunni í samstarfi við nokkur félög í sveitarfélinu. Á sýningunni mátti sjá fyrirtæki eins og Gluggaverksmiðju Eðalhúsa, SG einingahús, Ræktó, Lögmenn Suðurlandi, Fagform og svo mætti lengi telja. Frábært framtak og flott sýning. 8. júní 2007
Í dag kl. 17.00 var okkur bæjarfulltrúum og mökum boðið í bás Árborgar í móttöku vegna opnunar sýningarinnar Árborgar 2007. Boðið var uppá léttar veitingar í bás Árborgar, brauð, og epla- eða peru cider. Frábært að halda opnun og bjóða uppá óáfenga drykki. Takk fyrir góðar móttökur og frábæra stund starfsmenn Árborgar. 7. júní 2007
Fundurinn hófst kl. 8.10 og stóð til 8.45. 5. júní 2007
Í dag komu iðnaðarmenn í röðum að taka út aðstæður og hefjast handa. Smári rafvirki kom og klippti á nokkra víra og aftengdi það sem þurfti. Tryggvi pípari og Helgi komu og litu á pípulagnir, einnig gáfu Þeir ráð vegna ofnakaupa, nýja glerið í bakhliðina kom frá Samverk í morgun. Glugginn í bakhliðina býður tilbúinn í Gluggaverksmiðjunni hjá Eðalhúsum. Atli hélt áfram að brjóta niður veggi og bráðum fer að koma að málurunum í viðgerðir og grunnun, en þar verða að verki Ægir og félagar í Málningaþjónustunni. Þetta er töluverð framkvæmd, en mjög spennandi. 5. júní 2007
Í morgun flaug Þorvaldur Guðmundsson forseti Bæjarstjórnar til Brussel. Hann ferð þessa ferð á vegum Sambands Íslenskra sveitarfélaga. Þorvaldur er væntanlegur heim á föstudag. 5. júní 2007
Í kvöld kl. 20.00 hófst fundur í Hótel Selfoss um lokatillögu til auglýsingar af hluta samkeppnissvæðissins í miðbænum. Ég er nú nokkuð ánægð með tillöguna, en auðvitað sýnist sitt hverjum í því eins og svo mörgu öðru. Með uppbygginu miðbæjar hér á Selfossi munu mörg og skemmtileg tækifæri skapast í uppbygginu og atvinnustarfsmi. Framundan er auglýsingatími skipulagsins og gefst þá íbúum tækifæri til að gera athugasemdir. Framkvæmdaaðilar eru farnir að undirbúa sig með niðurrifi á gömlum byggingum í miðbænum. Nú er Hafnar sláturhúsið eiginlega horfið og styttist örugglega í að verslunarhús Hafnar hverfi líka. Saga þessara húsa er mikil og má ekki hverfa með þeim, það er okkar íbúanna að viðhalda henni. 4. júní 2007
í var ég komin í vinnu kl. 7.00 og var að fram á kvöldið með smá fundarhléum……. 3. júní 2007
Í gærkvöldi komu ríðandi úr Mosfellsbænum æskuvinir mínir frá Hellu, bræðurnir Pálmi og Runólfur Smári Steinþórssynir, ásamt eiginkonum Smára, henni Bettý og Steinþóri syni þeirra. Þau höfðu verið í rigningu nær alla leiðina þannig að hrossin voru fegin að komast í hús hér á Selfossi. Við riðum síðan með þeim á stað í dag í slagveðri en þau voru á leið í sumarhagana með hrossin að Berustöðum í Ásahreppi. 3. júní 2007
Í morgun kom Atli smiðurinn okkar með stóra kúbeinið sitt og réðst á veggina á Eyraveginum og braut þá og bramlaði…. alltaf lagast þetta við hvern vegg sem hverfur… Endar með því að þetta verður æðislegt ! 2. júní 2007
Í dag kom Erlingur okkar heim til að hjálpa pabba sínum við niðurrif á Eyraveginum. Þeir rifu niður skápa, hillur, og ýmislegt annað strákarnir….þannig að nú er þetta hafið…. 2. júní 2007
Í morgun fór ég ásamt 30 konum í óvissuferð um uppsveitir Árnessýslu. Þetta er önnur svona ferðin sem ég fer í þetta vorið um uppsveitirnar. Ótrúlegt hve margt forvitnilegt er verið að gera í sveitum landsins. Við skoðuðum kertaverksmiðju, tómatarækt, jarðaberjarækt, svepparækt, leirlistargallerý, kirkjur, Hrepphólahnjúka með allri sinni fegurð, drukkum kaffi og borðuðum kökur í alveg nýju kaffihúsi á Flúðum, Grund, snæddum síðan kvöldmat á Hótel Geysi. Frábærlega vel heppnuð ferð. 1. júní 2007
Seinnipartinn í dag fékk ég húsnæðið að Eyravegi 27 afhent. Við fórum að skoða hjónin, Jónas var að sjá það í fyrsta sinn…hann hafði á orði, ég er nú undrandi að þú skildir hafa keypt þetta ! Ástæðan fyrir orðum hans er sú að það er nú frekar svona illa útlítandi það þarf að taka hraustlega til hendinni til að koma því í stand. Ruslagámurinn er kominn og verkið verður hafið á morgun, þá koma Atli Vokes og Lárus Guðmundsson með stóru sleggjurnar sínar, rífa niður veggi og taka úr hurðir… þá þarf að slípa parkertið, rífa raflagnir og leggja allt að nýju, þar verður Smári vinur okkar í forystu. Og mér sýnist að ég þurfi að fá Tryggva pípara og Helga til að líta á pípulagnirnar. Síðan koma þeir Ægir og félagar í Málningaþjónustunni og mála, smiðirnir búa til nýjar skrifstofur, setja í nýjar hurðir og nýja eldhúsinnréttingu, og þá fer nú allt að verða fínt. Við gerum ráð fyrir að framkvæmdir taki allan júnímánuð þannig að flutningar verði um næstu mánaðarmót. Spennandi tími framundan. 31. maí 2007
Í morgun hófst fundur í bæjarráði kl. 8.10 og stóð hann fram til kl. 10.35. þetta er lengsti fundurinn sem ég hef setið án þess að gestir hafi komið inn á fundinn. Þetta var fyrsti fundur sem Eyþór Arnalds sat fyrir sveitarfélagið, en hann var að koma til starfa eftir árs leyfi. Á fundinum voru afgreidd þó nokkur þung skipulagsmál og dálítið tekið af fundarhléum og nokkuð var bókað. Endilega kíkið á fundagerðina inn á http://arborg.is , mjög greinilegt er hér í Árborg að skilin eru mikil á milli meiri og minnihluta, það eru því miður ekki mörg mál sem við sameinumst um. Samt erum við öll kjörin til sama verksins til að gera gott sveitarfélag betra. Það hefur orðið mikil breyting á samstarfi í bæjarstjórn á þessu kjörtímabili miðað við það síðasta. Á síðasta kjörtímabili var samstarf minni og meirihluta gott þó að Páll Leó væri vissulega með aðhald og gagnrýni þegar honum fannst þurfa en hann tók ávallt undir og stóð með góðum málum. Páll Leó stóð sig vel sem bæjarfulltrúi og er góður vinur og félagi sem einstaklega ánægjulegt var að vinna með. Sjálfstæðismenn mega vera stoltir af bæjarfulltrúum sínum frá fyrra kjörtímabili þeir stóðu sig vel. Vonandi verða þeir eins stoltir af sínu fólki þegar þessu kjörímabili verður lokið. 30. maí 2007
Ég fór til vinnu kl. 7.00 í morgun og var að til rúmlega 22.00 í kvöld. Þessir dagar eru langir og strangir hjá okkur á skrifstofunni. Stelpurnar mínar fara flestar heim um fimmleitið en þá eru þær líka búnar að vera á öðru hundraðinu allan daginn. Ég hef verið ótrúlega lánsöm með starfsfólk, er með hörku stelpur sem leggja sig allar fram um að gera vel. Það er mikið lán að hafa að störfum starfsfólk eins og mitt, annars gengu hlutirnir hreinlega ekki upp hjá mér. Ég er oft á tíðum mikið frá vinnu vegna starfa minna fyrir sveitarfélagið, en aldrei þarf ég að hafa áhyggjur af neinu þær sjá um alla hluti af mikilli alúð og samvikusemi, án þeirra gæti ég ekki tekið þátt í þessu pólitíska vafstri. 29. maí 2007
Þessar síðustu vikur hafa liðið við gerð skattframtala alla daga og fram á kvöld. Nú fer að styttast í lokadaginn og má eiginlega segja að lokaspretturinn sé hafinn. Ég fer til vinnu alla morgna upp úr kl. 7.00 og er þar fram á kvöldið…svona til rúmlega tíu. Þegar þessi lokasprettur er í fullum gangi þá fer manni að hlakka til lokadagsins þó að mér finnist þetta ótrúlega skemmtilegur tími. En þegar vorið og sumarið er að koma þá er líka oft á tíðum mjög erfitt að sitja inni og látast ekki sjá hvað veðrið er fallegt og allt er að lifna. Vorið og sumarið er besti tími ársins finnst mér og sakna ég þess oft að geta ekki notið þess tíma betur en ég geri. Það er aldrei indislegra að fara á hestbak en akkúrat á þessum tíma þegar nóttin er björt og óendanleg. Nú þegar ég á aðeins lítinn garð og hef ekki ástæðu til að nota allt kvöldið í hann og jafnvel fram á nótt eins og ég gerði í Þrastarimanum þá er eins og maður missi af vorinu. En framundan er sumarið og ætlum við að njóta þess hjónin að ferðast um helgar og ganga um landið okkar. Við höfum verið að nýta þennan litla tíma sem við höfum til að fara í göngutúra.. þó þeim hafi fækkað allra síðustu daga. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga sagði einhverstaðar og þá gerist það að ég hef allan heimsins tíma til að njóta sumarsins. Um miðjan júní þá breyti ég vinnutímanum á skrfstofunni, þá opnum við eins og venjulega kl. 8.00 en lokum klukkutíma fyrr eða kl. 16.00. 29. maí 2007
Í dag er Stefán Ármann sonur Möggu mágkonu tvítugur. Manni finnst skrítið þegar litlu börnin eru orðin fullorðin og að horfa á þau fullornast án þess að maður eldist sjálfur. Stefán og Gústaf eru jafngamlir og hafa verið vinir frá því þeir fæddust, léku sér saman alla daga nema meðan Stefán bjó í Ólafsvík með mömmu sinni og fjölskyldunni. Stefán hefur alltaf verið léttur og skemmtilegur piltur, uppátæki þeirra félaganna voru oft viðamikil og mis vinsæl hjá foreldrunum. Í dag taka félagarnir gjarnan gítarana sína, spila saman og syngja. Góðir félagar strákarnir okkar allir. 27. maí 2007
Við fórum í gær og keyrðum um alla Tjarnabyggðina, búgarðabyggðina á milli Selfoss og strandarinnar. Ég verð að segja þegar við fórum um vegina langt út í mýri þá var ég eiginlega alveg undrandi yfir þeim tilfinningum sem gripu mig. Þvílíkt útsýni til allra átta ! Fjallahringurinn algjört listaverk, ekki er mögulegt að festa á nokkurri mynd þessa upplifun og þær tilfinningar sem maður getur orðið fyrir við svona aðstæður… Ég tel að í byggðinni sem kennd er við Tjarnir eigi eftir að vera blómlegt og ótrúlega skemmtilegt samfélag fólks sem vill njóta náttúrunnar, fólks sem vill njóta þess að hafa hunda, ketti, hænur, kindur, hesta eða hvaða húsdýr sem er, fólks sem vill hreinlega njóta þess að búa í nánd við annað fólk en ekki alveg í bakgarði nágrannans. 27. maí 2007
Eftirfarandi pistill birtist í Fréttablaðinu 23. maí sl.
Gagnsæjar nafngiftir Ágætisskemmtan getur verið að lesa Lögbirtingarblaðið, sér í lagi þegar kemur að nafngiftum hlutafélaga. Landinn er enda duglegur við að hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd og eitthvað þurfa börnin að heita. Einhver kynni þó að ætla að betur hefði verið heima setið en af stað farið þegar í blaðinu voru auglýst skiptalok á fyrirtækinu Óráði ehf. Stundum endurspegla nöfn vel starfsemina, eins og félagið Evrópulög hvurs stofnun var tilkynnt í gær. Vinninginn í gær hafði hins vegar nýtt félag á Selfossi að nafninu Erlingus ehf. Ekki var þó að sjá að flugrekstur væri tilgangurinn líkt og hjá Aer Lingusi. Markaðurinn, 23. maí. 2007 05:00 http://www.visir.is/article/20070523/VIDSKIPTI0802/105230063/-1/VIDSKIPTI08 27. maí 2007
Við Jónas stofnuðum einkahlutafélagið Erlingus ehf. þann 30. apríl sl. Erlingus ehf. er fasteignafélag sem keypti húsnæði til að leigja bókhaldsstofunni hjá Maddý sf. Við keyptum helminginn af neðri hæðinni á Eyravegi 27, við hliðina á Suðurlandssól, af sumum kallað Magga múr húsið. Við fáum afhent þann 1. júní nk. og þá á eftir að taka húsnæðið í gegn. Stefnt er að flutningum um mánaðarmótin júní / júlí. Mjög spennandi verkefni framundan. 26. maí 2007
Í morgun var ég komin í vinnu rúmlega níu og var að til 17.00. 24. maí 2007
Í morgun hófst fundur í Bæjarráði Árborgar kl. 8.10 og er þetta lengsti fundurinn sem ég hef setið sl. fimm ár. Í upphafi komu góðir gestir á fundinn frá Sorpstöð Suðurlands, Guðmundur Tryggvi framkvæmdastjóri og Elfa Dögg formaður. Farið var yfir urðunarmál á sláturúrgangi og flokkun á rusli… dagblöðum, pappa og fleiru. Skoðaðu fundagerðina sjón er sögu ríkari ! 22. maí 2007
Í morgun hittist bæjarmálahópur B-listans kl. 8.00 og stóð fundurinn til kl. 9.30. Ég verð nú að segja að illa var mætt, en í fyrsta sinn í sögunni vorum við Þorvaldur ein á þessum fundi…. 21. maí 2007
Þessa dagana geri ég fátt annað en að fara í vinnuna…núna er lokaspretturinn í skattinum og þá er ég í vinnunni frá 7.00 á morgnanna til 23.00 á kvöldin…. langir dagar… en sést fyrir endann… 20. maí 2007
Á laugardaginn fórum við hjónin í Þórsmörk ásamt Karlakór Selfoss og mökum þeirra. Við vorum komin inn í mörk um þrjúleitið í sól og blíðu. Veðrið var með allra besta móti þó var gjóla en í skjólinu var sól og hiti. Þórsmörkiin er að springa út í sumarskrúðan, hún er hreint og beint dásamleg á þessum árstíma. Við gengum um í mörkinni, settumst í lautir þar sem var hlegið og skrafað. Á heimleiðinni á sunnudegi var komið við hjá Ingu og Jóni í Brókinni og borðuð súpa, hlustað á rímur og ljóð, söng og spil hjónabandsins, frábært hjá þeim hjónum í Fljótshlíðinni. Það er alltaf jafn gott og dýrmætt að eiga helgi í góðra vina hópi. 18. maí 2007
Tillaga um að endurskoðuð verði fyrri ákvörðun um skólahverfi Tjarnarbyggðar – 18. maí 2007
Á fundir Bæjarráðs í morgun var samþykkt eftirfarandi breytingartillaga frá meirihluta bæjarráðs. 18. maí 2007
Í dag var haldinn fundur í bæjarráði Árborgar, þetta var óvenjulega langur fundur sem stóð til að verða hálf elleftu. Þar var meðal annars bókað vegna kostnaðarreiknings laga ríkins sl. 10 ár. 18. maí 2007
Í kvöld fórum við hjónin á hestbak í blíðunni en það eru orðnar nokkrar vikur frá því ég komst síðast í hesthúsið. Kvöldið var fallegt og margt um manninn á útreiðum. Það er þó orðið mjög erfitt um viku hér á Selfossi fyrir hestamenn, reiðleiðir eru allar í alfaraleið, aldrei hægt að komast hjá neinu sem heitir bílar, hjól, börn að leik eða á flugi upp af trambolíni. Þessi erill skapar hættur og verður að finna leit til að bæta úr þessu og koma ríðandi umferð frá akvegum og úr jaðri bæjarins. 16. maí 2007
Gústaf keppti í hárgreiðslukeppninni Hamskiptum í dag ásamt 30 öðrum nemum í háriðn. Hann stóð sig vel stákurinn og kom heim með 3. verðlaun. Frábært hjá stráknum. 16. maí 2007
Ég var komin í vinnu kl. 7 í morgun, fór í sjúkraþjálfun kl. 8.00 til Bryndísar Ólafsdóttur sem er að reyna að tjasla saman skrokknum á mér. Var síðan í vinnu fram að kvöldmat. 15. maí 2007
Að venju fundaði bæjarmálahópur Framsóknarmanna í morgun kl. 8.00 og stóð fundurinn til 9.30. Við hittumst alltaf einu sinni í viku sex efstu á listanum og förum yfir málin. 13. maí 2007
Í dag nennti ég ekki í vinnuna og var löt fram eftir degi. Við Jónas fórum og litum við hjá fjölskyldunni sem er í nágrenninu og renndum síðan austur að Hellu og kíktum á foreldra mína. Við komum við í sumarbústaðnum hjá þeim og sáum þar gullfallegt leirljóst folald sem fæðst hafði 1. maí. 13. maí 2007
Í dag sunnudag á Þorvaldur Guðmundsson forseti bæjarstjórnar Árborgar afmæli og á jafnframt að skíra nýjustu barnabörnin hans í dag, sem eru tvíburar. 12. maí 2007
Í morgun fór ég snemma á fætur og fór í vinnu, var að til kl. 13.30 og var þá búin með fullan vinnudag. Fór þá á Kosningaskrifstofuna og tók þar á móti gestum fram eftir degi…auðvitað kaus ég í millitíðinni. Var á skrifstofunni með smá hléi fram yfir miðnætti. Ótrúlega spennandi nótt. 11. maí 2007
Í dag var ég í vinnunni fram eftir degi og fór síðan á kosningaskrifstofuna hjá okkur Framsóknarmönnum til að hlusta á Karlakór Hreppamanna sem sungu þar. Kórinn er mjög góður og gaman að heyra í þeim. Stemming var í húsinu og margt um manninn. 10. maí 2007
10. maí 2007
10. maí 2007
Á 13. fundi félagsmálanefndar sem haldinn 16.4.2007 var kom fram að 63 börn eru hjá dagforeldrum frá 6 mánaða aldri til 4,5 árs. Flest börnin eru yngri en 2ja ára eða 60. Það segir okkur að einungis 3 börn á leikskólaaldri eru hjá dagforeldrum, tveimur var boðið leikskólavist en afþökkuðu plássið þar til í haust. Öll 18 mánaða börn voru tekin inn til 1. apríl sl. en þá var ekki rými fyrir fleiri fyrr en eftir sumarfrí, enda er það starfsvenja hjá leikskólum að taka ekki inn börn seint á vorinu þar sem stutt er orðið í sumaríið. 9. maí 2007
Í kvöld er konukvöld í Krónuhúsinu við Tryggvatorg og hefst það kl. 20.30. Margt verður sér til gamans gert í kvöld, sagðar sögur, sungið og spjallað. 9. maí 2007
Þessa dagana hefur verið í ýmsu að snúast hjá drengjunum mínum, þeir eru allir í framhaldsskólum og eru á fullu í prófum. Erlingur er í síðasta prófinu í næstu viku í Háskólanum í Reykjavík, Gústaf klárar á föstudag sitt síðasta próf í Iðnskólanum í Reykjavík og hefur verið með greiðuna á lofti síðustu daga og Marinó Geir er í síðasta prófi á föstudag hér heima í FSu og hlakkar til að fara að vinna í MBF í kjölfarið. Gústaf fer að vinna á Stofunni þar sem hann er á samning í háriðn, Erlingur hefur ekki fest sig enn…en mér heyrist að hann hafi hug á að taka upp hamarinn í sumar og njóta útiverunar eftir langar stundir fyrir framan tölvuna í vetur. 7. maí 2007
Í dag var ég komin til vinnu kl. 7.00 og hóf vinnudaginn, ég var í vinnu fram að kvöldmat. Kíkti þá á kaffihúsaspjall hjá Guðna Ágústssyni í Krónuhúsið þar sem kosningaskrifstofa Framsóknarmanna er. Þar var slangur af fólki og kátt á hjalla. 6. maí 2007
Í morgun ókum við á stað upp úr kl. 10.30 áleiðis í Dalina, eða að Hrútsstöðum til Böðvars og Bergþóru. Tilefnið var að ferma átti frændsystkinin Elínu Margréti og Hákon. Hákon er sonur Ernu og Andra. Erna og Bergþóra eru systur og frænkur Jónasar, þau eru öll systrabörn. Við vorum komin í Dalina um kl. 13.30 og áttu góðan dag með stór fjölskyldunni. 4. maí 2007
Í kvöld var óvissuferð Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss. Við fórum á stað um kl. 18.00 og lá leiðin upp Skeiðin, stoppað í kertasmiðjunni í Gósen…alveg hreint frábær framleiðsla þar. Fórum þaðan áfram upp í Gullhreppa og stoppuðum í Gallerí í Miðfelli hjá Rut, sem er glerlistamaður. Leiðin lá áfram um æskuslóðir Helgu frænku og í Hvítárbakka til Systu sem málar á grjót, hún býr til ótrúlega fallega hluti. Við enduðum á að borða í Reykholti á Kletti, fengum þar fínan mat og góða þjónustu. Gott kvöld með góðum vinum. 4. maí 2007
Í morgun kom ég til vinnu kl. 7.00 og var að til kl. 17.30. 3. maí 2007
Í kvöld kl. 20.30 opnaði Framsókn kosningamiðstöð í Krónunni við Tryggvatorg. Endilega líttu við og fáðu þér kaffisopa. 3. maí 2007
Í dag kl. 17.00 voru afhent umhverfisverðlaun Árborgar í Tryggvagarði. Að þessu sinni var veitt viðurkenning til einstaklings og fyrirtækis. Hún Sigga í Björk hlaut viðurkenningu fyrir einstaklega umhverfisvænan ferðamáta en hún fer allra sinna ferða á reiðhjóli og hefur alla tíð gert í hvaða veðri sem er, er ávallt með poka með sér og tínir upp rusl í leiðinni sem verður á vegi hennar. Olís Arnbergi fékk viðurkenningu fyrir einstaklega snyrtilegt umhverfi og umhirðu. Það mættu mörg fyriirtæki taka þá Olís á „Bellubar“ sér til fyrirmyndar og gera eins fínt hjá sér og halda því við. Eftir afhendingu viðurkenninga hófu bæjarfulltrúar og gestir hreinsunarátak sveitarfélagsins „tökum á – tökum til“. 3. maí 2007
Í morgun hófst fundur í bæjarráði kl. 8.00 og var þar helst þrjú mál, vegna skólabyggingar við ströndina, heimild til bæjarstjóra vegna kaupa á Austurvegi 2a og síðan tillaga um almenningssamgöngur. Hér á eftir koma þessar þrjár samþykktir. 2. maí 2007
Í gær, 2. maí 2007, var á Eyrarbakka undirritaður samningur um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 14 sveitarfélög á Suðurlandi um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Er þetta í fyrsta sinn sem gengið er til slíks samstarfs við Suðurland, en áður hafa verið gerðir sambærilegir samningar við Austurland , Vesturland, Norðurland eystra, Norðurland vestra og Vestfirði. 2. maí 2007
Í dag kl. 15.00 var stjórnarfundur hjá Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga og stóð hann til 15.40 Aðal mál fundarins var að skipa í menningaráð Suðurlands. Fulltrúi Árborgar er Inga Lára Baldvinsdóttir og til vara er Andrés Sigurvinsson. Ég lagði fram fyrirspurnir á þessum fundi vegna endurskoðunar á samtökunum sem fylgir hér. 1. Hver er ástæðan fyrir því að ráðinn hefur verið sérfræðingur til að skoða stjórnskipulag SASS ? Gunnar Þorgeirsson lagði fram eftirfarandi bókun sem svar við fyrirspurninni: ,,Vegna fyrirspurnar Margrétar Erlingsdóttur vilja aðrir stjórnarmenn koma eftirfarandi á framfæri. Á aukaaðalfundi SASS í apríl 2006 þar sem farið var yfir breytingar á starfsemi SASS og tengdra stofnana var lagt til að stjórn SASS endurskoðaði starfsmannastefnu allra stofnana. Á grundvelli þessa þótti stjórn nauðsynlegt að skilgreina störf starfsmanna innan SASS, og í framhaldi af þeim umræðum var formanni og varaformanni falið að ræða við AÞS um aðild að vinnunni. Í kjölfarið var samþykkt að ráða til verksins Kristján Vigfússon í samstarfi við AÞS. Ekki liggur fyrir aðalfundarsamþykkt önnur en áður er getið, en í samþykkt síðasta aðalfundar sem haldinn var í Hveragerði í nóvember síðastliðnum, var því beint til stjórnar að skilgreina þann kostnað sem aðrar stofnanir greiða til sameiginlegs rekstrar. Þykir því enn meiri nauðsyn á skilgreiningum starfa innan SASS. Áætlaður kostnaður verkefnisins er um 1 milljón króna og greiðist að helmingi af SASS. Ekki er gert ráð fyrir þessu sérstaklega í fjárhagsáætlun en ekki er gert ráð fyrir útgjalda aukningu aðildarsveitarfélaga vegna verkefnisins.” 1. maí 2007
Í dag er 1. maí og margt um að vera um allt land. Stéttafélög standa fyrir kröfugöngum og skemmtunum fyrir félagsmenn sína og þá sem taka vilja þátt á þessum hátíðardegi. Ég var komin til vinnu kl. 7.00 í morgun og hlustaði á útvarpið í allan dag meðan ég var að vinna. Mikið var rætt um hátíðarhöldin um allt land og ræður voru fluttar í beinni útsendingu. Þá fór ég að velta fyrir mér hvað er að gerast hér í Árborg í dag ? Hvað hefur verið gert til hátíðarbrigða hér síðustu ár ? Það hefur verið fátt um fína drætti hér á Selfossi á þessum degi um nokkurra ára skeið. Áður var þó kaffisamsæti í hótelinu en nú er bara ekkert um að vera. 1. maí 2007
Í gærkveldi opnuðu Ungir framsóknarmenn kosningaskrifstofu í sumarhúsi á plani gamla Landsbankans. Þar var margt um manninn og kátt á hjalla . Gústaf minn var þar að spila fyrir gesti og stóð sig vel að mér er sagt vel. Flott hjá unga fólkinu okkar. 1. maí 2007
Drangar Drangar voru stórbýli að fornu, en þar var föst búseta allt til ársins 1966 og enn dvelst fjölskyldan sem síðast bjó á Dröngum þar sumarlangt. Bærinn er norðan við hin víðþekktu Drangaskörð og er mjög einangraður, þangað er aðeins farið gangandi, ríðandi eða á sjó. Á Dröngum standa mörg merkileg hús, m.a. 1. maí 2007
Drangaskörð Norðan Drangavíkur gnæfa Drangaskörð, eitt af sérkennilegustu náttúrufyrirbærum landsins. Skörðin eru stórtenntur fjallskagi sem gengur fram úr Skarðafjalli milli Drangavíkur og Dranga. Ógleymanlegt er að ganga um skörðin í góðu veðri. Drangaskörð – ljósmynd: Vignir Örn Pálsson Af Drangaskörðum dregur Drangavík nafn sitt og einnig bærinn Drangar. Skörðin eru áberandi 30. apríl 2007
Í dag var vinnudagur og mikið að gera. Við erum á fullu í skattskilum þessa dagana og smátt og smátt lækkar staflinn. Skemmtilegur tími. 29. apríl 2007
Erlingur minn er skemmtanastjóri verkfræðinema í Háskólanum í Reykjavík, á föstudaginn var fór hann með félögum sínum í vísindaferð til Íslandshreyfingarinnar og auðvitað sló pilturinn í gegn og söng með konunum baráttusönginn óæfður…….! Strákarnir mínir koma víða á þessum dögum og skemmta hjá hinum ýmsu framboðum…enda vel frambærilegir ungir framsóknarmenn ! 26. apríl 2007
Í dag kl. 18.15 hófst fundur stjórnar tónlistaskólans og stóð hann til 19.00. 26. apríl 2007
Á bæjarráðsfundinum í morgun tók meirihluti bæjarráðs undir bókun varaformanns SASS vegna ályktunar SASS um nýtingu orku á Suðurlandi til stóriðju. 25. apríl 2007
Á bæjarstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar um lækkun á leikskólagjöldum. Lækkunin er 15% af kennsluhluta leikskólans, einnig var samþykkt að hækka afslátt kennsluhluta þriðja barns úr 50% í 100%. Kostnaður fyrir 8 tíma vistun með mat og hressingu fer úr kr. 29.113- í kr. 25.749- og er þá kennsluhlutinn kominn niður fyrri 20 þúsund á mánuði. 25. apríl 2007
Í dag var fyrri umræða um Ársreikning 2006 hjá Sveitarfélaginu Árborg. Það er ánægjulegt þegar niðurstaðan er jafn góð og nú. Rekstrarhagnaður vegna 2006 er rúmlega 83 milljónir króna sem er um 200 milljónum betra en ráð var gert fyrir í endurskoðun fjárhagsáætlunar í haust. 24. apríl 2007
Á morgun miðvikudag er aukafundur í bæjarstjórn Árborgar. Á dagskrá er fyrri umræða um ársreikning sveitarfélagins vegna ársins 2006. Niðurstaða ársreikningsins er jákvæð og mikið betri en búist var við. Einnig er á dagskrá tillaga að lækkun leikskólagjalda. Nú er bara að sjá hvort að það verði mörg fundarhlé ! Fundurinn er öllum opinn. 24. apríl 2007
Ég var komin í vinnu kl. 7.00 í morgun og hófst fundur framsóknarmanna kl. 8.00 og stóð til 10.00. Þá tók við vinnan fram að hádegi fór þá í sjúkraþjálfun, aftur í vinnu og síðan á fund meirihlutans kl. 16.00 og stóð hann til 20.30. 23. apríl 2007
Í morgun fór ég til vinnu kl. 7.00 og var að fram að hádegi þá fórum við hjónin til Reykjavíkur, vorum komin heim um kvöldmat. 22. apríl 2007
Sunnudaginn notuðum við til að hvíla okkur og safna kröftum fyrir komandi viku. Erlingur Örn kom heim „loksins“ í heimsókn. Hann hefur mikið að gera í skólanum og hefur ekki gefið sér tíma til að renna austur fyrir fjall í margar vikur. Strákurinn er í Háskólanum í Reykjavík í Hátækni verkfræði. 21. apríl 2007
Í dag fórum við hjónin í ferðalag með góðum vinum okkar á Kirkjubæjarklaustur og verðum til laugardags. 20. apríl 2007
Bæjarráðsfundur hófst kl. 10.00 í morgun og stóð í eina klukkustund. Þar var meðal annars samþykkt tillaga Skólanefndar um bekkjaskiptingu á milli þorpanna við ströndina. 20. apríl 2007
Í dag kl. 12.00 hófst stjórnarfundur SASS og stóð fundurinn til 15.00. Á fundinum var tekið fyrir bréf frá Árborg vegna aðalfundar SASS sem halda á 1 og 2 nóvember á Kirkjubæjarklaustri. Meirihluti bæjarráðs gerði athugasemd við að fundurinn yrði haldinn á fimmtudegi og föstudegi þar sem meirihluti sveitarstjórnarmanna væru í 19. apríl 2007
Í dag fórum við á hestbak enda var veðrið alveg dásamlegt og fátt er betra að gera í slíku veðri. 18. apríl 2007
Bæjarráðsfundurinn sem vera átti á morgun, ef ekki væri eitt fimmtudagsfríið enn, verður haldinn á föstudaginn kl. 10.00 17. apríl 2007
Í morgun kl. 8.00 hófst fundur hjá bæjarmálahópnum okkar á B listanum. Við hittumst alltaf á þriðjudagsmorgnum. Þá mæta sex efstu menn listans og fara yfir málefni vikunar og það sem framundan er. Frábært fyrir okkur Þorvald að eiga svo góðan hóp sem gefur sér 1 – 2 klst í viku hverri fyrir bæjarfélagið sitt. 16. apríl 2007
Í dag kl. 18.15 hófst stjórnarfundur í Tónlistaskóla Árnesinga og stóð hann til 20.00. Í dag vorum við að yfirfara og ákveða breytingar á skólagjöldum næsta skólaárs og breytingu á hljóðfæraleigu skólans. Til gamans má geta að nýlega eru komnar niðurstöður úr samræmdum prófum á grunn- og miðstigi, árangur nemenda skólans var mjög góð og langt yfir meðallagi. Frábær árangur hjá nemendum og kennurum skólans. Til hamingju öll.
Fundargerð nr. 139 15. apríl 2007
Í dag kl. 14.00 opnaði kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins að Eyravegi 15. Frábær opnun, fullt hús að fólki og komust færri í sæti en vildu. Þessi dagur var gott start fyrir frambjóðendur hér í Suðurkjördæmi. 15. apríl 2007
Um hádegið skruppum við Jónas ásamt Magnúsi fóstursyni okkar upp að Stóru Reykjum og sóttum fjögur hross. Tvö tókum við í hús hér á Selfossi, Magnús tók eitt í tamningu og folaldið sitt fór hann með í fóðrun í Austurkot. 14. apríl 2007
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins verður opnuð á Selfossi á morgun kl. 14.00 að Eyravegi 15. Frambjóðendur verða á staðnum, Guðni, Bjarni, Helga Sigrún og Eygló. 13. apríl 2007
Í dag rann upp föstudagur og þrettándi að auki. Ég held að margir hafi haldið að sé höndum í gær vegna hjátrúar. Eitt er alveg ljóst að ég hefði ekki fjárfest eða tekið stórar ákvarðanir í lífinu í gær ég er ein af þessum hjátrúafullu sem skrifa ekki undir samninga á dögum sem þessum. Ég held að hverri manneskju sé hollt að vera svona aðeins hjátrúafull, það hefur gefist mér vel. 12. apríl 2007
Í morgun kl. 8.00 hófst fundur í bæjarráði Árborgar og stóð fundurinn til kl. 9.20. 11. apríl 2007
Í morgun var ég komin til vinnu kl. 7.00 notalegt að geta byrjað svo snemma að vinna, við förum saman alla morgna hjónin. Marinó Geir er kominn með bílpróf og kemur sér sjálfur í skólann á mínum bíl auðvitað… Eftir bæjarstjórnarfundinn fór ég til vinnu aftur eða um kl. 20.30 og var að til 22.00 það er mikið annríki á skrifstofunni vegna skattframtala. 11. apríl 2007
Magnús Hlynur sjónvarps- og blaðamaður mætti sem gestur á bæjarstjórnarfundinn í dag. Magnús hefur verið einstaklega áhugasamur um málefni sveitarfélagsins og mætti á nær alla fundi allt síðasta kjörtímabil. Hann byrjaði vel á þessu kjörtímabili en mætti nú aftur eftir nokkuð hlé. Ég var farin að halda að hann væri algjörlega búinn að gefast upp á okkur þar sem fundirnir hafa verið að lengjast töluvert síðustu mánuði. Honum var fagnað sérstaklega í dag og sagðist hann hafa verið orðinn þreyttur á öllum þessum fundarhléum..! Velkominn Magnús Hlynur og takk fyrir að nenna að vera með okkur.
11. apríl 2007
Í dag var fundur í bæjarstjórn og hófst hann kl. 17.00 og stóð til að verða sjö. Fundurinn var eins og venjulega bara góður. Tillagan um FAAS var endanlega staðfest, ánægjuleg viðbót við þjónustu sveitarfélagsins. 10. apríl 2007
Í morgun var ég komin til vinnu kl. 7.00, fundur var með bæjarmálahóp framsóknar kl. 8.00 og var nú fámennt en góðmennt þar sem Þorvaldur og Helgi eru báðir erlendis. Skrapp til Reykjavíkur kl. 10.00 og var komin aftur til vinnu um kl. 13.30. Meirihlutafundur hófst kl. 16.00 og stóð til 19.30. 9. apríl 2007
Jónas fór til vinnu kl. 7.00 í morgun en ég var hálf lasin og var heima í dag. 8. apríl 2007
Páskadaginn notuðum við til hvíldar, sváfum frameftir eða til 9.. manni finnst það nú vera frameftir orðið. Ég naut þess að ungur og myndarlegur maður færði mér páskaegg sem smakkaðist frábærlega. Góður dagur í faðmi fjölskyldunnar. Saknaði þó þess að Erlingur Örn kom ekkert heim þessa páskana þar sem hann var að læra undir próf í verkfræðinni. 7. apríl 2007
Í morgun fór ég til vinnu kl. 7.00 og var að til þrjú. Það er ansi gott að vera í vinnunni á frídögum þá hringir síminn ekki og manni vinnst vel. 6. apríl 2007
Ég er komin í vinnuna og kl. er rétt um 7.00. Ég hafði mitt fyrsta verk að renna yfir vefmiðlana og rak ég þá ekki augun í frétt frá kirkjunni minni hér á Selfossi um að lesa ætti Passíusálmana í dag og er lesturinn tileinkaður Eyvindi Erlendssyni í Hátúni sem er vel. 5. apríl 2007
Í dag var ég komin til vinnu um 6.45 og var að til kl. 13.00. 4. apríl 2007
Ákveðið var að gefa frí í Bæjarráði Árborgar þessa vikuna. Margir bæjarfulltrúar eru farnir í frí til að safna kröftum fyrir næstu lotu. 4. apríl 2007
Á föstudagsmorgun flugu Þorvaldur og Hjördís til sólarlanda og ætla að vera í nokkra daga. Á laugardaginn Helgi Har fór með sinni frú líka í sólina en hann er að vísu með fullt af unglingum með sér í æfingabúðum í frjálsum íþróttum. 3. apríl 2007
Dagurinn hófst uppúr 6 í morgun og var ég komin til vinnu um 7 leitið. Aldrei þessu vant var enginn fundur í dag…..notalegt. Hitti sjúkraþjálfarinn minn í morgun sem ætlar að reyna að taka mig aðeins í gegn. Álag er í vinnunni þessa dagana en bara gaman samt. 1. apríl 2007
Daginn ákváðum við að nota til að hvíla okkur og gerðum það mikið og vel ! 31. mars 2007
í dag var ég komin til vinnu kl. rúmlega 8 og var að til 17.00. 31. mars 2007
Í kvöld fórum við hjónin ásamt starfsmönnum MS á Selfossi og mökum þeirra með rútum niður á Stokkseyri og skoðuðum söfnin um drauga og álfa. 31. mars 2007
Þegar horft er aftur til ársins 2002 og þeirrar ótrúlegu uppbyggingar sem átt hefur sér stað hér í Árborg fer maður að velta fyrir sér tölum í fjárfestingum sveitarfélagsins. Hvað hefur verið gert síðan þá ? Bæjarstjóri tók saman upplýsingar um fjárfestingar í rauntölum til 2007 og síðan áætlanir til 2010. þar má sjá að fjárfestingar á síðasta kjörtímabili voru tæpir 3.4- milljarðar. Áætlað er 2007 1.5 milljarður, 2008-2010 2.7 milljarðar eða samtals á þessu 8 ára tímabili tæpir 7.6 milljarðar. 30. mars 2007
Í kvöld fórum við syskinin ásamt mökum og foreldrum okkar til Önnu Stínu systir og Hafsteins í tilefni af 50 ára afmælinu hans sem var þann 18. febrúar sl. Við hrekktum karlinn aðeins eins og okkur er lagið þegar afmæli renna upp. 29. mars 2007
Frumvarp að þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Árborgar, 2008-2010, A- og B- hluti, var samþykkt á bæjarstjórnarfundi sem hófst kl. 17.00 í dag. Meirihluti B, S og V lista í bæjarstjórn Árborgar samþykkir hér frumvarp að 3ja ára fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árin 2008 – 2010. Áætlunin endurspeglar metnaðarfull uppbyggingaráform meirihlutans til næstu þriggja ára. Rekstrar- og framkvæmdaáætlanir áranna 2008-2010 taka mið af því að veitt verði fyrirmyndar þjónusta við íbúana og að vel verði stutt við áframhaldandi vöxt og uppbyggingu í sveitarfélaginu. Í 3ja ára áætluninni er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir rúmlega 2.700 m.kr. á tímabilinu, þar af tæplega 1.400 m.kr. vegna fasteigna sem að stærstum hluta er ætlað að hýsa starfsemi grunn- og leikskóla og íþrótta- og frístundastarfs. Áætlað er að rekstur sveitarfélagsins skili jákvæðri niðurstöðu á bilinu 127 – 141 m.kr. ár hvert. 29. mars 2007
Fjöldi systkina í leikskólum Árborgar – systkina afsláttur 29. mars 2007
Meirihluti bæjarráðs ákvað í morgun að ganga til samstarfs við Félag aðstandenda alzheimersjúklinga um rekstur dagvistar fyrir heilabilaða – 29. mars 2007
Meðal annars var tekin fyrir fundagerð stjórnar Leigubústaða Árborgar vegna viðhalds að Háengi 8-14. Ótrúlegt er nú hvernig bókarnir fulltrúi sjálfstæðismanna í bæjarráði getur sett fram. Hér á eftir kemur afgreiðslan og bókanirnar…farðu í lesa meira. 28. mars 2007
Við hjónakornin fórum til Reykjavíkur í morgun kl. 9.00. Jónas var að fara til læknis í eftirlit vegna áfallsins sl. vor. Allt gekk það nú vel. 27. mars 2007
Í dag var hefðbundinn vinnudagur, verið að grufla í ársreikningum og framtölum. Ég mætti í morgun kl. 7.00 og var í vinnu til 15.30 en þá fór ég á meirihlutafund sem stóð til 19.30, skrapp heim í mat og fór aftur í vinnu og var til kl. 21.30 26. mars 2007
Í dag fór ég til vinnu 6.45 og kom heim um kl. 18.00. Aldrei þessu vant var enginn fundur í dag sem er nú orðið frekar sjaldgæft hjá mér. Marinó Geir fór í skólann á bílnum mínum og er ákveðið frjálsræði hjá okkur báðum eftir að hann fékk bílpróf. Ég get byrjað að vinna fyrr á morgnanna og hann fer síðan á bílnum í skólann. Hann launar vel fyrir sig strákurinn og nú er bíllinn minn stíf bónaður og fínn. 25. mars 2007
Í dag kl. 11.00 var Daníel Pétur frændi okkar Jónasar fermdur í Kópavogi. Við fórum í veislu til hans í Glersalinn í Kópavogi sem hófst kl. 13.00. Frábær dagur með fjölskyldunni. 24. mars 2007
Eftir fundinn í morgun fór ég í jarðaför að fylgja Þórunni Engilbertsdóttur sem er fallin frá langt fyrir aldur fram. 24. mars 2007
Í morgun laugardag kl. 8.00 hófst vinnufundur í meirihluta bæjarstjórnar og stóð hann til 12.30. 23. mars 2007
Erlingur Örn elsti sonur okkar hefur háð kosningabaráttu síðustu daga innan Háskólans í Reykjavík. Hann bauð sig fram sem skemmtanastjóri verkfræðinema. Kosningin hefur staðið alla þessa viku og voru úrslitin kunngerð nú í kvöld. Strákurinn fékk 95% allra greiddra atkvæða og er því orðinn Skemmtanastjóri. Frábært hjá stráknum, til hamingju með þetta Elli minn. 23. mars 2007
Í dag er yngsti drengurinn okkar 17. ára og kominn með bílpróf. Marinó er nemandi í Fjölbrautarskóla Suðurlands og Tónlistaskóla Árnesinga. Hann hefur verið í námi í trommuleik í nokkur ár hjá Stefáni Þórhallssyni. Hann spilar í tveimur hljómsveitum ásamt skólagöngunni. Marinó er líka í handbolta og spilar með Selfoss.
Maður sér í börnunum sínum hve tíminn líður hratt, það eru nú ekki mörg ár finnst mér síðan hann byrjaði í leikskólanum Ásheimum hjá Kiddý og síðan í grunnskólanum, en nú er hann að verða fullorðinn maður sem tekur ábyrgð á eigin lífi. Samt finnst okkur foreldrunum við ekki hafa elst neitt miðað við strákana okkar. Hann var mjög fús í morgun að keyra mömmu sína í vinnuna þó að ég ætti að mæta tveimur tímum á undan honum. 22. mars 2007
Í dag kl. 17.00 var haldinn fundur í Bæjarstjórn Árborgar, aukafundur, á dagskránni var fyrri umræðan um frumvar af þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Gylfi Þorkelsson lagði fram tillögu til breytingar frá útsendri áætlun á þá leið að framkvæmdir við Fjörustíg færist frá árinu 2010 til 2008, 35 milljón króna framkvæmd. 22. mars 2007
Á bæjarráðsfundi var afgreidd fundagerð Bygginganefndar Barnaskólands á Eyrarbakka og Stokkseyri. Frá nefndinn kom beiðni um formlega afgreiðslu á þremur þáttum. Afgreiðslan var þessi; 22. mars 2007
Í morgun kl. 8.00 var fundur í Bæjarráði Árborgar, fundurinn var óvenju langur en hann stóð til 10.30. Góðir gestir komu á fundinn frá MS, þeir Guðbrandur Sigurðsson forstjóri og Guðmundur Geir Gunnarsson bússtjóri hér á Selfossi. 21. mars 2007
Í morgun hóf ég daginn að venju á skrifstofunni en stoppaði mjög stutt því ég hafði skipulagt að vera hjá foreldrum mínum á Hellu í morgunkaffi um 9 leitið. Við hittumst í búðinni „Hjá Vinsý“ og fengum okkur nýbakað úr Bakaríinu. Alltaf jafn notalegt að koma heim og skrítið að manni skuli alltaf finnast maður vera að fara heim þegar farið er til foreldranna. Pabbi og mamma er ótrúlega frísk og kát, ríða út, planta trjám og vinna fullan vinnudag. Mamma rekur búðina sína en pabbi ekur um á vörubílnum eða grefur með gröfunni eða bara situr í jarðýtunni allann daginni. Vonandi verður maður svona frískur þegar efri árin færast yfir. 20. mars 2007
Þegar ég kom heim af fundi voru góðir gestir í kaffi hjá Jónasi. Mjólkurfræðingarnir Eiríkur og Lotta (hin danska) komin með þennan líka fallega blómvönd í tilefni af 45. ára afmælinu mínu um daginn. 20. mars 2007
Vikulegur meirihlutafundur hófst í dag 16.00 og stóð til kl. 21.15. 20. mars 2007
Í morgun kl. 8.00 hófst fundur hjá bæjarmálahópi B-listans í Árborg. Við sex sem vorum efst á listanum í síðustu kosningum hittumst alltaf vikulega. Fundurinn stóð til 9.30. 19. mars 2007
Ræðukeppnin tókst vel hjá ITC Jóru, þrír keppendur tóku þátt. Í deildinni eru 17 konur og tvær í viðbót að ganga inn. Kristín Bára Gunnarsdóttir vann keppnina með skemmtilegri ræðu um „göngu“ stafa-, fjall-, kraft- eða bara göngutúra. Góður árangur hjá Báru, til hamingju. 18. mars 2007
Í dag fórum við Jónas á handboltaleik í Íþróttahúsinu við Vallaskóla. Þar voru að spila 2. flokkur Selfoss og ÍBV. Strákarnir okkar stóðu sig vel og unnu 33 – 24. Góður leikur hjá strákunum. 17. mars 2007
Velkominn á heimasíðuna mína. 17. mars 2007
Í lok vinnudags er fátt notalegra en að fara í hesthúsið og sinna hestunum sínum. Í dag um fimmleitið fórum við Jónas og mokuðum út, kemdum og gáfum hestunum okkar. Við erum með þrjá hesta á húsi núna, stefndum á að sækja fleiri hross á morgun en ekki er gott útlit í veðri til þess, en við sjáum til hvernig morgundagurinn verður. 17. mars 2007
Í dag var hefðbundinn laugardagur hjá mér í vinnunni…var kominn á skrifstofuna um 8.30 og byrjuð að gera ársreikning og skattframtal. Á þessum árstíma er það bara svona, reyndar stundum líka á öðrum, að ég vinn um helgar og oft á kvöldin. 16. mars 2007
Margrét Lilliendahl amma Jónasar hefði orðið 99 ára í dag en hún var fædd 1908. Ég var svo lánsöm að kynntast Margréti og var hún mikil heiðurs kona. Hún var ættuð úr Eyjafirði og talaði oft fallega um heimahagana, maður sá glampann í augum hennar þegar hún hugsaði heim. Margrét var mjög „fín kona“ eins og stundum er sagt, pjöttuð með eindæmum, gekk alltaf í kjólum og háhæluðum skóm. Bar sig eins og hefðarkona, alltaf svo vel til höfð. Notalegt fannst mér nú að renna við á Birkivöllunum hjá nöfnu minni með strákana litla og þá var alltaf til kaffi og eitthvað með því, pönnukökur eða svona gott ömmu meðlæti. Ég hafði mjög gaman af því þegar Gústaf var skírður er hún hafði orð á að sagan væri að endurtaka sig, því nú væru aftur til ung hjón sem bæru nöfnin, Jónas og Margrét, síðan væri sonur þeirra Gústaf alveg eins og var hjá „okkur Jónasi“ sagði nafna mín. 16. mars 2007
Í dag kl. 17.30 fór ég í viðtal til Valdimars Bragasonar í svæðisútvarpið ásamt Margréti Sigurðardóttur sveitarstjóra Flóahrepps. Margt var spjallað um sameiginlega verkefni þessara sveitarfélaga td. í skólamálum, en eldri börn úr Flóahreppi hafa um langt skeið stundað skóla á Selfossi. Einnig var rætt um skipulagsmál, Laugardæli og pólitíkina svona almennt. Ef þig langar að heyra smelltu þá á linkinn hér fyrir neðan. 16. mars 2007
Í dag kl. 13.30 hófst fundur bygginganefndar vegna skólabygginganna sem áformaðar eru á Eyrarbakka og Stokkseyri. Við erum að vinna í áætlunum um fermetrafjölda á hvorum stað, nemendaspá næstu árin og svo framvegis. 15. mars 2007
Á fundi bæjarráðs í morgun var tekin fyrir beiðni Póst- og fjarskiptastofnunar um umsögn um beiðni Íslandspósts um lokun póstafgreiðslu á Stokkseyri og Eyrarbakka – 15. mars 2007
Á fundi bæjarráðs í morgun var samþykkta áframhald á samstarfi við Fræðslunet Suðurlands um Vísinda- og rannsóknarsjóð FnS. – Bæjarráð samþykkir að framlengja samning um þetta mikilvæga verkefni til næstu 5 ára og hækka árlegt framlag úr 100 þus.kr. í 150 þus.kr. Bæjarráð felur bæjarstjóra af ganga frá samningi í samræmi við þessa ákvörðun. Jón Hjartarson kom aftur inn á fundinn að afgreiðslu málsins lokinni og Þorvaldur Guðmundsson vék af fundi. 15. mars 2007
Í dag er að venju annasamt á skrifstofunni þegar 15 dagur mánaðar rennur upp. Við erum með mikinn fjölda sem við reiknum laun fyrir og skilum öllum gögnum af. Þannig að það er ávallt sprettur til að ná í alla fyrir lokun banka. 14. mars 2007
Tillaga um að bæjarstjórn fari þess á leit við stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að sett verði á fót nefnd á vegum Sambandsins til að kostnaðarmeta öll lög og reglugerðir sem varða sveitarfélögin frá 1996 til 2007. 14. mars 2007
Formaður gerði grein fyrir bréfi framkvæmdastjóra HSK um landsmót UMFÍ 2012 og bæjarstjórinn bókaði fyrir hönd meirihlutans. 14. mars 2007
Í dag kl. 17.00 hófst fundur í Bæjarstjórn Árborgar og stóð hann til kl. 20.50, ég held að þetta sé einn af lengstu fundunum sem ég hef setið í Bæjarstjórn. 13. mars 2007
Í sumar er vinabæjarmót í Kalmar í Svíþjóð. Árborg er í vinabæjarsamstarfi með fjórum löndum. Arendal í Noregi, Kalmar í Svíþjóð, Savolinna í Finnlandi og Silkiborg í Danmörku. Vinabæjarsamstarf er skemmtilegur vettvangur til að kynnast starfi í öðrum löndum. Kynnast fólki sem er að starfa á sama vettvangi og við en við allt aðrar aðstæður. Við höfum farið á tvö slík mót, fyrst hér í Árborg og síðan í Arendal. Við eignuðumst mjög góða vini frá Arendal sem hafa heimsótt okkur fjóru sinnum og við höfum farið einu sinni til þeirra. Mjög skemmtilegur vettvangur til vinatengsla. 13. mars 2007
Í ágúst ætlum við hjónin ásamt Möggu mákonu og Jóni til Nuuk á Grænlandi í heimsókn til Atla mágs míns og Inge konu hans. Atli hefur búið á Grænlandi í mörg ár og er orðið löngu tímabært að heimsækja hann og fjölskyldu hans. Við ætlum að stoppa í 5 daga og hlökkum við mikið til. 13. mars 2007
Um þessar mundir er kvennalandsliðið í fótbolta í Portúgal. Í hópnum er hún Sif tengdadóttir okkar, unnusta Erlings Arnar. Hún spilar með Val. Sif er dóttir Atla Eðvaldssonar og Steinunnar Guðnadóttur. Einnig eru í hópnum frænkur mínar tvær, Gréta Mjöll dóttir Samma bróður míns og Hólmfríður dóttir Magnúsar föðurbróður míns. 12. mars 2007
Mikið var indislegt að koma út í morgun og finna ilminn af jörðinni og upplifa tilfinningu vorsins. Ég verð að segja það að alltaf hlakka ég jafn mikið til vorsins og sumarsins. Dásamlegasti tími ársins. 11. mars 2007
Í morgun var ég komin í vinnu uppúr kl. 8.00 og var að til 16.00. Gott að vinna á sunnudegi þá er friður og ró, og síminn stein þegir. 10. mars 2007
Í dag byrjaði dagurinn á morgunfundi B listann í Árborg frá 10 – 12. Eftir hádegi fórum við hjónakornin í hesthúsið og var tekið til hendinni og undirbúið að taka inn hrossin. Góður dagur og gott að reyna á sig líkamlega… það er orðið alltof sjaldan sem ég geri það. 9. mars 2007
Í kvöld hittist systrahópurinn í Kaffi krús. Því miður komust ekki allar og var áberandi rólegt yfir hópnum….enda vantaði þær sem hafa sig mest í frammi og eru lang háværastar….frábært kvöld með systrum… 8. mars 2007
Bæjarráð Árborgar lýsir ánægju sinni með þá fjárveitingu sem áætluð er til uppbyggingar Suðurlandsvegar. Bæjarráð ítrekar fyrri kröfur sínar um að Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss verði fjögurra akreina vegur enda er um það algjör samstaða meðal sunnlenskra sveitarstjórnamanna. 8. mars 2007
Í kvöld kl. 20.00 var góður fundur sem stjórn Brunavarna Árnessýslu hélt með slökkviliðsmönnum á Selfossi. Umræðuefni á fundinum var meðal annars húsnæðismál á Selfossi. Oddur Árnason Yfirlögregluþjónn mætti á fundinn og fór yfir umferðarmálin. Gagnlegur fundur og mjög upplýsandi um málefni Brunavarna. Fundi var slitið um kl. 23.00 8. mars 2007
Lækkun virðisaukaskatts á mat í mötuneytum – 8. mars 2007
Í morgun hófst fundur Bæjarráðs Árborgar kl. 8.10 eins og alla fimmtudagsmorgna. Fundurinn var stóð til kl. 9.30 . 7. mars 2007
Í dag var haldinn fundur í stjórn Brunavarna vegna húsnæðismála. Fundurinn hófst kl. 15.30 og stóð til 16.45 6. mars 2007
Í morgun kl. 8.00 hittist bæjarmálahópur framsókarmanna á fundi til að undirbúa mál vikunnar, fundurinn stóð til kl. 9.30 5. mars 2007
Í morgun byrjaði nýr starfsmaður á skrifstofunni hjá mér. Edda Ríkharðsdóttir úr Þorlákshöfn heitir daman. Góður liðsmaður í hópinn minn. Velkomin Edda. 5. mars 2007
Í dag kl. 13.00 var fundur í Brunavörnum um húsnæðismál, stóð hann til kl. 15.00 5. mars 2007
Í dag kl. 17.00 hófst fundur í meirihluta bæjarstjórnar og stóð hann til 20.30 4. mars 2007
Í dag rann upp 45 afmælisdagurinn minn. Ég verð nú að segja að það er ótrúlegt hve árin líða fljótt og þegar maður lítur yfir farinn veg þá finnst manni tíminn líða allt of hratt. Ég átti góðan dag og fékk marga góða gesti. 28. febrúar 2007
Í dag kl. 16.00 var fundur í Brunavörnum Árnessýslu um húsnæðismál og stóð hann til kl. 18.00 27. febrúar 2007
Bæjarmálahópur B listans hittist kl 8.00 og stóð fundurinn til 10.00 Meirihlutinn hittist kl. 17.00 og stóð sá fundur til kl. 20.30 26. febrúar 2007
Í dag kl. 13.00 fór stjórn Tónlistaskólans ásamt Róbert skólastjóra og Helgu Sighvatsdóttur í skoðunarferð í grunnskóla í lágsveitum. Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðstæður skólans í grunnskólum til kennslu. Við byrjuðum á að fara í Flóaskóla, þar er nokkuð vel búið að skólanum en kennslan fer fram í félagsheimilinu Þjórsárveri, en stendur til að flytja hana inn í skólann. Þaðan lá leiðin á Stokkseyri þar sem er ágætis kennslustofa, síðan á Eyrarbakka þar sem kennt er á Stað í fínni stofu. Betra væri þó að hafa kennsluna inni í skólanum en það lagast þegar nýji skólinn verður tilbúinn. Næst fórum við í Þorlákshöfn þar sem aðstaða skólans hefur verið til fyrirmyndar um langt skeið. Skólinn hefur kennslusvæði útaf fyrir sig og er það vel. Síðast komum við í Hveragerði og eru aðstæður skólans þar mjög góðar, fínar stofur. Skemmtileg ferð þar sem alltaf er gaman að skoða grunnskola. 22. febrúar 2007
Í morgun var fundur í bæjarráði kl. 8.00 sem stóð til rúmlega 9. 20. febrúar 2007
Þann 6. febrúar fórum við til Canarí eyja og vorum þar til 20. febrúar. Ferðin var í alla staði frábær. Við fórum með vinum okkar Einari og Ellu Veigu í Egilsstaðakoti. Veðrið var eins og best verður á eyjunni frá 22 stiga hita og upp í 33 gráður. Við fórum í Hellaferð og skoðuðum heimili fólks sem þar býr. Ótrúlegt að koma inn í hella árið 2007 sem fólk býr í með öll nútíma þægindi. Ég hef nú ekki trú á því að við Íslendingar myndum láta okkur hafa það að búa í hellum. En ótrúlegt að hver hellir var með mörgum herbergjum. Canarí eyjar er falleg eyja en samt frekar hrjóstrug þar sem lítið er um vatn og sjaldan rignir. Nær allur gróður á eyjunni er gróðursettur og vökvaður til að hann lifi. Eyjan er góður hvíldarstaður fyrir okkur Íslendinga. 30. nóvember 2006
Í kvöld kl. 20.00 er fundur hjá Framsóknarfélagi Árborgar með bæjarfulltrúum, nefndarfólki, öllum sem sátu á lista flokksins sl. vor og trúnaðarmanna. Um er að ræða mánaðarlegan fund sem haldinn er í þessum hópi. 30. nóvember 2006
Dagurinn hófst á fundi í Bæjarráði Árborgar kl.8.00 og stóð hann til að verða 9.00. 29. nóvember 2006
Í dag var vinnudagur og fundur í meirihluta bæjarstjórnar vegna bæjarráðsfundar á morgun. 28. nóvember 2006
Alla þriðjudaga kl. 17.00 er vinnufundur í meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. Fundurinn hófst kl. 17.00 og stóð til kl. 19.00 27. nóvember 2006
Í dag var góður vinnudagur. Óvenjulega mikill friður á skrifstofunni. Kl. 16.15 var síðan kynningafundur á skólaskrifstofu Suðurlands þar sem við fengum kynningu á starfseminni. Mjög góður og gagnlegur fundur. 25. nóvember 2006
Í kvöld fórum við hjónin ásamt vinum okkar í hjónaklúbbnum á jólahlaðboð uppá Geysi. Að vanda var vel gert við gesti þar. Maturinn framúrskarandi og dinner músikin frábær. Labbi spilaði ásamt Badda vini okkar og fleirum. Stórgott kvöld í vina hópi. 25. nóvember 2006
Í morgun kl. 10.00 hófst fundur í miðstjórn flokksins. Miðstjórn fer með stjórn á milli flokksþinga. Formaður okkar Jón Sigurðsson hélt sína fyrstu ræðu sem formaður. Ræðan féll í góðan jarðveg flokksmanna. 24. október 2006
Félagsfundur hjá Framsóknarfélagi Árborgar hófst kl. 20.00 í kvöld og stóð til kl. 23.00 24. október 2006
Í dag hófst meirihlutafundur kl. 17.00 og stóð til 19.30 24. október 2006
Í morgun kl. 8.00 hófst vinnufundur hjá Framsóknarmönnum vegna bæjarmálanna. Við höfum vikulega fundi þar sem 6 efstu menn af listanum hittast og fara yfir málin. Fundurinn stóð til kl. 10.00 23. október 2006
Mánudagur runninn upp, hefðbundinn vinnudagur og bara einn fundur kl. 13.00 sem stóð til 14.00 22. október 2006
Við Jónas fórum í bíó kl. 20.00 í kvöld ásamt Möggu og Jóni til að sjá Mýrina. Myndin er alveg stórgóð og fyndin á köflum. Mæli eindregið með henni. 22. október 2006
Á leiðinni heim úr Reykjavík komum fórum við Þrengslin eins og við gerum mjög gjarnan á heimleið. Komum við á Eyrarbakka hjá tengdó og tókum eina ferð í jeppann í leiðinni. 21. október 2006
Við vorum boðin í hádegismat til Guðbjargar og Gústafs í dag. Tilefnið er 25 ára afmælisdagur tengdadótturinnar. Hjartanlega til hamingju Gugga mín. 20. október 2006
Í dag kl. 11.30 hófst þriðji fundur fjárhagsnefndar og var hann haldinn á Bæjarskrifstofunum í Hveragerði. Fundurinn stóð til 12.50 og var þá farið beint á fund Héraðsnefndar sem hófst kl. 13.00. 19. október 2006
Í morgun hófst fundur Bæjarráðs kl. 8.10 eins og nær hvern fimmtudag ársins. Á þessum fundi voru reglur um sérstakar húsaleigubætur til umfjöllunar og fundagerð félagsmálanefndar þar sem mælst var til að þær yrðu samþykktar. Reglurnar verða síðan staðfestar á bæjarstjórnarfundi í nóvember. 19. október 2006
Fallið hefur verið frá frestun á sölu á 9 félagslegum leiguíbúðum sem ákvörðun var tekin um að selja á síðasta kjörtímabili. Fyrri bæjarstjórn tók ákvörðun um að selja 11 íbúðir, tvær voru seldar fljótlega eftir að sú ákvörðun var tekin en frestað var að selja hinar 9 um tíma. Nú hefur verið fallið 18. október 2006
Í dag var fundur í skólanefndinni og hófst hann kl. 17.10 og var slitið um 20.30. Þessi fundur var óvenju langur þar sem yfirleitt er reynt að láta fundina ekki standa lengur en í tvær klukkustundir. Á þessum fundi var nefndin að afgreiða erindi frá bæjarráði vegna flutnings á nemendum úr Vallaskóla í Sunnulækjarskóla. Skólanefnd mælti með niðurstöðu vinnuhópsins að ekki yrðu fluttir nemendur á milli skóla í elstu bekkjunum heldur fengi Sunnulækjarskóli að stækka ár frá ári. Einnig voru til umfjöllunar nokkrar tillögur frá Hilmari Björgvinssyni og svör við fyrirspurnum frá honum frá síðasta fundi nefndarinnar. Fundagerð skólanefndar er komin á vef Árborgar, http://www.arborg.is. 18. október 2006
Í dag kl. 11.00 hófst annar fundur nefndarinnar og stóð hann til 14.00. Í dag voru forstöðumenn stofnana kallaðir fyrir og farið yfir fjárhagsáætlarnir ársins 2007. 17. október 2006
Í dag var fundur í meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar sem hófst kl. 17.00 og stóð til 20.15 16. október 2006
Í dag kl. 16.00 hófst fyrsti fundur í fjárhagsnefnd Héraðsnefndar Árnesinga til undirbúnings fyrir fund Héraðsnefndar á föstudaginn 20. okt. Fundurinn stóð til 17.30 17. júní 2006
Ég vil óska öllum gleðilegs þjóðhátíðardags. 24. maí 2006
Litið yfir farinn veg Við tímamót í lífinu lítum við Íslendingar gjarnan yfir farinn veg. Það á vel við nú hjá okkur kjörnum fulltrúum í Bæjarstjórn Árborgar sem erum að ljúka störfum á þessu kjörtímabili. Þegar ég horfi aftur um fjögur ár sé ég að miklar breytingar hafa orðið á sveitarfélaginu okkar, það 23. maí 2006
Hrútavinir Group láta sér fátt óviðkomandi í mannlegri tilveru og eru glöggir á að koma auga á hinar jákvæðu hliðar mannlífs og menningararfleiðar eins og dæmin sanna. 21. maí 2006
Líttu við í kaffi í Dvergnum við Eyraveg, frambjóðendur verða á staðnum. 21. maí 2006
Í dag var margt um manninn í Dvergnum kosningamiðstöð Framsóknarmanna Það er skemmtilegur tími þegar kosningar nálgast maður hittir marga sem eru á ferðinni í bænum. Endilega líttu við. 19. maí 2006
Í dag er stór dagur í fjölskyldunni, Erlingur Örn er að útskrifast sem stúdent frá Iðnskólanum í Reykjavík af tæknibraut. Útskriftin var kl. 15.00 í Hallgrímskirkju og voru útskrifaðir 220 nemendur af hinum ýmsu brautum, kirkjan var full af fólki sem var að samgleðjast með nemendum skólans. Að athöfninni lokinni brunuðum við heim á Selfoss og tókum á móti gestum í Kringlumýrinni. Dagurinn var frábær og glatt á hjalla fram á kvöld. 18. maí 2006
Í dag höfum við Framsóknarmenn verið á ferðinni frá því snemma í morgun. Við fórum víða, heimsóttum fjölda fyrirtækja og hittum starfsmenn þeirra. Guðni Ágústsson Landbúnaðarráðherra var með okkur í allan dag. 17. maí 2006
Í dag kl. 17.00 var fundur í meirihluta Bæjarstjórnar haldinn í Ráðhúsi Árborgar. 16. maí 2006
Í dag kl. 20.00 var sameiginlegur framboðsfundur allra framboðanna í Árborg í Fsu. Margt var um manninn á fundinum, sennilega á annað hundrað manns. 15. maí 2006
Í dag hófum við frambjóðendur B-listans í Árborg vinnustaða heimsóknir, alltaf jafn gaman að fara í fyrirtækin og hitta starfsmenn. Kosningaskrifstofan er opin frá kl. 16:00 alla daga og var margt um manninn í kvöld. Endilega líttu við. 14. maí 2006
Í gærkvöldi fórum við í Kópavoginn í afmæli hjá Ástu B.eiginkonu ( loksins) Samma bróður. Afmælið hófst með tónlistaflutningi dætra þeirra, Hófí og Gretu, sem sungu eins og englar og grættu mömmu sína aftur og aftur. 13. maí 2006
Í dag 13. maí á Þorvaldur Guðmundsson formaður Bæjarráðs afmæli. Dagurinn heilsar afmælisbarninu með sól og hita. Strákurinn ber aldurinn vel, alltaf jafn ungur og myndarlegur, eins og sjá má á myndinni af honum á heimasíðunni hans. Til hamingju með daginn kæri vinur. 13. maí 2006
Í dag kl. 14:00 verður hátíð í Múla og nýr salur Tónlistaskóla Árnessýslu vígður. Múli er glæsilegt hús í hjarta bæjarins og sómir sér vel sem höfuðstöðvar Tónlistaskóla Árnesinga. 13. maí 2006
Í laugardag undirrita Skálafélagið á Selfossi og bæjarstjórn samning um afhendingu Tryggvaskála til hins fyrrnefnda. Jafnframt hefur bærinn ákveðið að leggja 5 milljónir í viðbót til endurgerðar skólans sem áætlað er að ljúki að mestu á þessu ári. 12. maí 2006
Ég fór til vinnu í morgun fyrsta daginn þessa viku. Jónas er allur að hressast þrátt fyrir allt. Honum líður vel en er frekar þreklaus, hann á að nota þennan mánuð í að byggja sig upp. Hann mun að öllu óbreyttu geta farið að vinna í júní. Við erum sammála um það að hve mikið lán hefur verið yfir okkur í þessum veikindum. Það eru ekki allir sem fá annað tækifæri í lífinu eins og okkur er gefið núna.Maður ereinhvernveginn svo fljótur að gleyma sér í hraða nútímans, gleymir því hvað það er sem skiptir okkur mestu máli. En þegar maður fær gula eða jafnvel rauða spjaldið þá á maður að veltaalvarlegafyrir sér hlutunum. Ykkur öllum þökkum við ómetanlegan stuðning, kærar kveðjur og óskir sem okkur hafa borist. Það hefur verið okkur ómetanlegt og gefið okkur mikiðþessa síðustu daga sem vissulega hafa verið okkur erfiðir. 9. maí 2006
Ákveðið hefur verið að byggja þriðju hæðina ofan á nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfoss. Þar með bætast við um 25 rými í hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Þetta kom fram í ávarpi Þorvaldar Guðmundssnar formanns bæjarráðs Árborgar á sameiginlegum kosningafundi framboðannasem haldinn var í Grænumörk. Með byggingu þriðju hæðarinnar er séð fyrir lausn á bráðavanda þeirra einstaklinga sem nú eru á biðlistum eftir hjúkrunarheimilisrými. Þá er reiknað með að starfssemi á Ljósheimum flytji öll í hið nýja hús en nýlega lýsti Magnús Skúlason framkvæmdastjóri H.Su. því yfir á blaðamannafundi að bygging þriðju hæðarinnar væri í reynd forsenda þess að hægt yrði að leggja Ljósheima af. 9. maí 2006
Í dag kl. 16.30 hófst framboðsfundur í Grænumörk á vegum félags eldri borgara. Fundurinn var nokkuð góður og skemmtilegur, hann stóð til 18.25. Alltaf gaman að koma í Grænumörkina. Takk fyrir góðan fund. 9. maí 2006
Forsvarsmenn sveitfélagsins í Árborg undirrituðu í dag viljayfirlýsingu við byggingafyrirtækið Fossafl vegna hugsanlegrar stækkunar þjónustumiðstöðvar aldraðra við Grænumörk 5 á Selfossi og aðstöðu fyrir hjúkrunarheimili. 9. maí 2006
Í dag vorum við mætt kl. 9.00 í Fossvoginn á dagdeildina. Rannsóknir hófust kl. 9.30 og stóðu til kl. 10.30 þá fórum við aðeins í bíltúr, keyrðum um Kópavoginn fengum okkur göngutúr með sjónum, kíktum í kaffi til Samma bróðir og vorum svo mætt aftur kl. 12.30 í næstu rannsókn.Okkur var sleppt út um kl. 15.00 í dag og brunuðum þá heim. Þetta var langur dagur og var Jónas þreyttur er heim var komið. Hann er strax byrjaður að byggja sig upp og fer í göngutúr á hverju kvöldi. Við erum þakklát fyrir hve vel gengur og að hann skildi sleppa svona vel. Það eru ekki allir sem fá annað tækifæri í lífinu. Þökkum ykkur öllum góðar kveðjur og óskir. 8. maí 2006
Hann var nú öðruvísi laugardagurinn en til stóð, við fórum á fætur rétt fyrir níu og hlökkuðum til dagsins, opnun á kosningamiðstöð framboð B-listans í Árborg, sólin skein í heiði og lífið brosti við okkur. 4. maí 2006
Í kvöld vorum við á B-listanum ásamt flokksfélögum í Framsóknarflokknum að taka til og mála Dverginn við Eyraveg þar sem við ætlum að hafa kosningaskrifstofuna. 4. maí 2006
Frambjóðendum Sjálfstæðismanna er tíðrætt um fjárhag sveitarfélagsins Árborgar á síðum blaðanna þessa dagana. Fasteignagjöld hafa lækkað um 26,5%. Þeir hafa farið mikinn í skrifum sínum um óráðsíu og álögur meirihluta bæjarstjórnar. Álagningaprósenta fasteignagjalda hefur verið óbreitt frá því að félagar þeirra í Sjálfstæðisflokknum og mínir félagar í Framsóknarflokkum voru við völd 1998-2002, ég 3. maí 2006
Í dag kl. 17.00 var kynning á verkefninu Sunnan 3 fyrir bæjarstjórnir og starfsmenn Árborgar, Hveragerðis og Ölfus. Sunnan 3 er samstarfsverkefni þessara sveitarfélaga meðal annars um rafræna stjórnsýslu. Af kynningunni að dæma er verkefnið að heppnast mjög vel og spennandi þegar það verður opnað fyrir íbúana til notkunar. Hver og einn íbúi kemur til með að eiga sitt heimasvæði í kerfinu þar sem fram koma allar upplýsingar sem hann snerta innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Spennandi verkefni. 2. maí 2006
Eftir fundinn fórum við Jónas í hesthúsið og fórum á bak. Ég fór á Ljúfling minn sem ég fékk mér í haust. Hann er að komast í þjálfun þar sem Jónas hefur verið drjúgur í að þjálfa hann fyrir mig. Frábært að komast á hestbak og slaka aðeins á. 1. maí 2006
Í kvöld vorum við að yfirlesa málefnaskrá framboðsins sem á að leggja fram á laugardaginn við opnun kosningaskrifstofunnar. 1. maí 2006
Í dag fórum við Jónas bæði í vinnuna, en hann vinnur flesta frídaga þar sem mjólkin er sótt til bænda sama hver dagurinn er. Seinnipartinn fórum við í kaffi á Eyrarbakka til Gústa og Maju. 30. apríl 2006
Í dag hefur mér nú ekki orðið mikið úr verki eftir langa og stranga viku. Við fórum þó í góðan göngutúr við Jónas um bæinn okkar Selfoss. Gestagangur var fram eftir degi eins og oft er á sunnudögum. Gott að taka einn dag í afslöppun og leti.
29. apríl 2006
Í kvöld kl. 21:00 hófust lokatónleikar Karlakórs Selfoss á Flúðum. Ég skaust heim eftir fundinn til að sækja Jónas og fórum við síðan saman á tónleikana og ballið á Flúðum. Tónleikarnir voru góðir, tveir einsöngvarar voru með kórnum, Óskar Kristinsson tenor og Helga Kolbeinsdóttir sópran. Vel lukkað hjá þeim báðum. Ballið eftir tónleika var að venju mjög skemmtilegt, Sölvarnir spiluðu fyrir dansi. 29. apríl 2006
Fundi Héraðsnefndar var framhaldið kl. 9:00 í morgun, fundurinn stóð til kl. 15:30. Þessi fundur nefndarinnar var mjög góður og árangursríkur. Það var okkur öllum ljóst sem þennan fund sátum að á næsta fundi nefnarinnar verða mörg ný andlit. Margir sem setið hafa í nefndinni gefa ekki kost á sér til áframhaldandisetu í sveitarstjórn og hverfa því af vellinum. En það sem er nú svo skemmitlegt við að fá tækifæri til að taka þátt í sveitastjórnarstarfinu er að maður kynnist fólki um allt land ogeignast vináttu sem endist allt lífið. Ég hef oft sagt að það að eignast vini er fágæt gjöf og á það vel viðum alla þá vini sem ég hef eignast síðustufjögur ár í sveitastjórnumum allt Suðurland 28. apríl 2006
Í dag kl. 14:00 hófst síðasti fundur Héraðsnefndar Árnesinga á þessu kjörtímabili. Fundurinn var haldinn á Flúðum, gist var á Hótel Flúðum, en fundurinn stóð tillaugardags. Á fundinn mæta fulltrúar allra sveitarfélaga í sýslunni, oddviti Héraðsnefndar er Hjörleifur Brynjólfsson frá Sveitarfélaginu Ölfus, með honum í héraðsráðinu sitja, Þorvaldur Guðmundsson Árborg og Gunnar Þorgeirsson Grímsnes og Grafningshreppi. 27. apríl 2006
Seinni partinn í dag fór Bæjarstjórn Árborgar, Bæjarstjóri, Framkvæmdastjórar, ásamt mökum allra að Hótel Geysi í kvöldmat. Maturinn og þjónustan á Geysi er alltaf jafn góð. Frábært kvöld með góðum hóp. 27. apríl 2006
Í hádeginu í dag var haldinn framboðsfundur í FSU á vegum ungliðahreyfinganna í Árborg. Frambjóðendur stóðu sig allir vel í framsögu og lokaorðum. Fyrirspurnir úr sal voru líflegar og voru svör skýr í mörgum málum.Á fundinum kom fram að meirihlutaflokkarnir, Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn, gáfu báðir skýr svör um uppbyggingu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. En spurt var hvar ætlar þinn flokkur að byggja upp skólann. Báðir flokkarnir sögðu að þeir mundu leggja áherslu á aðbyggt yrði upp í báðum þorpum. Einnig kom fram að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að byggja upp fjölnota íþróttahöll á tjaldsvæðinu við Engjaveg. Ekki mikil framsýni í því að mínu mati. Mjög fínn fundur í Fjölbraut. 26. apríl 2006
Í dag kl. 17:00 var fundur í Bæjarstjórn Árborgar þar sem afgreiddur var ársreikningur sveitarfélagsins árið 2005. 26. apríl 2006
26. apríl 2006
Í kvöld var B-listinn í Árborg með fund í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Fundurinn var um málefnastarf framboðsins. Fundurinn var góður og margar ábendingar fengum við í veganesti frá íbúum. 26. apríl 2006
Í kvöld kl. 20:00 hefst málefnafundur B-listans í Árborg í Rauðahúsinu á Eyrarbakka. Líttu við og vertu með. 26. apríl 2006
Í dag kl. 17:00 er fundur í Bæjarstjórn Árborgar í Ráðhúsinu á 3. hæð. 26. apríl 2006
Í dag kl. 10:00 hefst auka aðalfundur SASS. Á fundinum á að taka fyrir breytingar á samþykktum samtakanna. 25. apríl 2006
Í dag kl. 17:00 hófst fundur meirihluta Bæjarstjórnar, fundurinn stóð til 20:15 24. apríl 2006
Í kvöld kl. 20:00 er málefnavinna í Framsóknarsalnum okkar við Eyraveg. Endilega líttu við og taktu þátt, lokavinnsla í gangi. 24. apríl 2006
Í dag kl. 16.30 var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri Björgunarmiðstöð í Árborg. Í þessu nýja húsi verða, sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Brunavarnir Árnessýslu og Björgunarfélag Árborgar. Þetta hús er hið myndalegasta og er um 1450 fermetrar að stærð, að hluta til á þremur hæðum. Íöðrum endanum verða Brunavarnir og Sjúkraflutningar, skrifstofu og þjónustubygging á milli en í hinum endanum Björgunarfélagið. Fyrstu skóflustunguna tóku Páll Sigurþórsson einn af stofnfélögum sveitarinnar og Magnús Skúlason framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Með þessu að byggja Björgunarmiðstöð í Árborg er stigið stórt skref fram á veginn og horft er til langrar framíðar í uppbyggingu.Það var að mínu mati mikið atriði að ná saman undir eitt þak þessum aðilum, með hugsanlegri aðstöðu fyrir almannavarnir, til að ná samnýtingu og samstarfi eins góðu og mögulegt er. Með uppbyggingu Björgunarmiðstöðvar í Árborg er að rætast einn af þeim draumum sem ég hef átt í framtíðarsýn Árborgar. Til hamingju íbúar Árborgar með væntalega Björgunarmiðstöð. 24. apríl 2006
Í kvöld var margt um manninn á fundi B-listans í Árborg, við vorum að vinna í málefnaskrá framboðsins. Vinnunni miðar vel áfram. Endilega líttu við á laugardaginn og vertu með. 23. apríl 2006
Ég ákvað að taka mér frí frá vinnu í dag og við notuðum daginn til að heimsækja fólkið okkar. Við byrjuðum á því að fá okkur morgunkaffi á Eyrarbakka hjá tengdapabba. Fórum þaðan á Hellu og hittum pabba minn, síðan í Hvolsvöll til Ingu systir og hennar fjölskyldu. Á Hvolsvelli var verið að halda upp á afmælið hennar Birtu Rósar en hún á afmæli 24. apríl og verður 7. ára. Húsið var fullt af börnum sem skemmtu sér konunglega í afmælinu. Birta Rós er næst yngst af systkinabörnunum en yngst er systir hennar Ásta Sól sem er að verða 6 ára í sumar. Þær njóta þess vel systurnar að vera yngstar í hópnum, en þær eiga 13 frændsystkini (sem eru frá 16-30 ára) sem hafa gaman af því að leika við þær og dekra þær. Í dag á afmæli Hólmfríður Ósk dóttir Samma bróður, til hamingju með daginn Hófí. 22. apríl 2006
Í dag kl. 16.30 hittum við Fríðu systir, Ása og Ástu mágkonu mína við Hlíðarvatn í Selvogi. Tilgangurinn var að ganga kringum vatnið (sem reyndist svo ekki hægt) og æfa okkur í göngum fyrir sumarið. Við gengum með vatninu að Vogsósum en þar var áll sem við komumst ekki yfir og gengum því til baka. Alltaf fallegt í Selvoginum. Í júlí ætlum við systkinin ásamt mökum og foreldrum okkar að ganga í Árneshreppi á Ströndum. Við ætlum að sigla frá Norðurfirði í Reykjafjörð, ganga út frá honum í Furufjörð og Þaralátursfjörð, jafnvel upp á Drangajökul. Síðan ætlum við að ganga að Dröngum þar sem mamma mín er alin upp, koma við í Skjaldabjarnarvík og líta á leiði Hallvarðs, ganga fyrir Þúfur og inn Bjarnafjörð og að Dröngum. Við stoppum á Dröngum í tvo – þrjá daga en gögnum svo áfram og inn í Drangavík, þar langar mig að gista eina nótt (frændur mínir segja að þar sé mikill draugagangur !) göngum inn í Ófeigsfjörð, að Seljanesi og endum í Ingólfsfirði hjá Veigu móðursystur. 22. apríl 2006
Í dag kl. 12.00 hófst fundur á Hótel Selfoss á vegum Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, á fundinn mættu formenn félaga, frambjóðendur, sveitastjórnarmenn og þingmenn. Fundurinn hófst með súpu og brauði, síðan voru fyrirlestrar og umræður. Góður fundur sem stóð til kl. 15.30 22. apríl 2006
Í dag kl. 10.00 er vikulegt morgunkaffi í sal Framsóknar við Eyraveg. Einnig eru vikulegir fundir á mánudagskvöldum kl. 20.00. Endilega líttu við og vertu með. 21. apríl 2006
20. apríl 2006
Sumarið heilsar okkur með bláum himni og sól. Væri ekki dásamlegt ef að sumarið yrði nú svona. Sagt er að vetur og sumar hafi frosið saman og er það einmitt það eina rétta eftir fornum heimildum. Sumarið verður allavega gott hvernig sem veðrið verður. Ég var komin snemma til vinnu í morgun og vann fram eftir degi. Vorboði Árborgar var á sínum stað í Selfosskirkju í kvöld, en löng hefð er fyrir því að Karlakór Selfoss syngi sína fyrstu vortónleika á sumardaginn fyrsta. Þetta er í fyrsta sinn í sennilega nær 15 ár sem við Jónas komumst ekki til að vera með félögum okkar þar. Jónas hefur verið í fríi frá kórnum í vetur þar sem hann hefur verið að önnum kafinn við nám sitt í Háskólanum í Reykjavík. En framundan eru fleiri tónleikar og munum við sækja einhvern þeirra. 20. apríl 2006
Í kvöld kl. 19.00 var hátíðarkvöldverður á Hótel Örk í tilefni af 60 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Á hátíðinni var Forseti Íslands og frú, bæjarstjórnir Árborgar og Ölfus, og allir núlifandi sem kjörnir hafa verið í sveitastjórn Hveragerðis þessi 60 ár. Þessi kvöldstund var mjög flott, maturinn og þjónustan á Hótel Örk frábær, flutt var lag um Hveragerði sem útsett var í þessu tilefni. Stórkostlegt kvöld með vinum okkar í Bæjarstjórn Hveragerðis, takk fyrir okkur. 19. apríl 2006
Í morgun kl. 9.00 var fundur hjá Félagi kvenna í atvinnurekstri Suðurlandsdeild haldin í Pakkhúsinu á Sellfossi. Fyrirlesari kom frá Glitni og kynnti hann starfsemi bankans. Góður fundur. 18. apríl 2006
Í dag er hefðbundinn vinnudagur og nýtt ég mér það að ekki var meirihlutafundur í dag. Vann fram til kl. 18.00 þá skruppum við Jónas á hestbak fyrir kvöldmat og fund. Ég fór síðan á fund kl. 20.00 í Framsóknarsalnum og kom heim um 22.15 16. apríl 2006
Í dag var ég komin til vinnu um 9.30 og verð eitthvað fram eftir degi.
16. apríl 2006
Í dag tók ég mér frí í vinnunni. Erlingur, Sif, Gústaf og Guðbjörg komu til okkar seinnipartinn og voru í kvöldmat. Gott kvöld með fjölskyldunni. 15. apríl 2006
Í dag var ég líka að vinna frá kl. 8.00 og fram til kl. 14.00. Þá litu við Inga systir og fjölskylda. Við fórum síðan í afmæliskaffi til Hróbjarts Eyjólfssonar sem er fertugur í dag. Fórum í hesthúsið seinnipartinn og á hestbak með Hróðný og Badda eftir kvöldmat. Kl. eitt eftir miðnætti fórum við í Ölfushöllina að hlusta á Uppþot spila í pásu á afmælisballi hjá Á móti Sól. 14. apríl 2006
Í dag var ég komin til vinnu kl. 8.00 og var að fram til kl. 16.00. Kvöldið notað til að slaka á og hafa það rólegt. 13. apríl 2006
Í dag var ég komin til vinnu kl. 7.00 og var að til 12.30. Þá fórum við Jónas í tvær fermingarveislur, sú fyrri var í Þingborg, femingarbarnið var Dagný Hanna Hróbjartsdóttir, þar spilaði Uppþot fyrir gesti en bróðir hennar er einn af spilurunum í bandinu. Sú seinni var að Efstalandi, fermingarbarnið þar var Júlía S. Eiríksdóttir. Frábærar veislur á báðum stöðum. Um kvöldið litum við í kaffi til Eiríks og Lottu (foreldra Júlíu) og áttum góða stund þar með gestum þeirra frá Danmörku. 12. apríl 2006
Í hádeginu var fundur í Hótel Selfoss á vegum Umhverfisnefndar Árborgar. Á fundinn voru boðnir allir atvinnurekendur í Árborg. Tilgangur fundarins var að gera menn meðvitaða fyrir umhverfi sínu á lóðum fyrirtækja. Fram kom á fundinum í fróðlegu erindi sem Jóhanna Róbertsdóttir flutti að umgengni á lóðum fyrirtækja hefði áhrif á vörumerki þess. Ásýnd fyrirtækja er mjög mikilvæg og er leitt ef nágranni sem illa gengur um hefur áhrif á það. Einnig kom fram á fundinum að umhirða lóða fyrirtækja hefði áhrif á ásýnd sveitarfélagsins alls. Göngum vel um það gerir fyrirtækið sterkara og sveitarfélagið allt. 11. apríl 2006
Í kvöld fór var ég gestur á fundi Rotary hér á Selfossi. Á fundinum fór ég yfir þau mál sem hafa verið í gangi í sveitarfélaginu síðustu fjögur ár og svaraði fyrirspurnum félaga. Skemmtilegur fundur í góðum félagskap. 11. apríl 2006
Í dag kl. 17.00 var vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar í Ráðhúsinu. Fundurinn var óvenju stuttur þar sem hluti af fundarmönnum var að fara í beina útsendingu á nfs fréttastöðinni. 10. apríl 2006
Í dag kl. 17.00 var fundur í skólanefnd grunnskóla í Ráðhúsi Árborgar. Á fundinum var samþykkt tillaga að kennslukvóta skólanna. Skólastjóri Vallaskóla kynnti vinnu skólans í stærðfræðiátaki sem er metnaðarfullt og á eftir að skila skólanum miklu til framtíðar. Fundurinn gekk mjög vel og var hann til kl. 18.00 en flestir fulltrúar nefndarinnar voru að fara áíbúa fund á Eyrarbakka kl. 18.00, um framtíðar skipan húsnæðismála skólans. 10. apríl 2006
Í dag kl. 18.00 hófst íbúafundur á Eyrarbakka um framtíðar skipan húsnæðismála skólans. Á fundinum fór Ásbjörn Blöndal framkvæmdastjóri framkvæmda og veitusviðs yfir þá möguleika sem til skoðunar voru. Uppbygging í hvoru þorpi fyrir sig, uppbygginu á báðum stöðum og uppbyggingu nýs skóla á milli þorpanna. Ódýrasti kosturinn er að byggja upp á Stokkseyri, næst á Eyrarbakka, þá á báðum stöðum en dýrasti möguleikinn er að byggja nýjan skóla á milli þorpanna. Munurinn á milli þessara tveggja síðustu möguleika er aðalega sá að við nýjan stað á milli þarf að leggja í dýrar fráveituframkvæmdir. En kostnaðurinn við að byggja upp á báðum stöðum og á milli þorpanna er rúmur milljarður. Verið er að tala um fullnægjandi skólahúsnæði þar sem gert er ráð fyrir 200 börnum. Ef byggt er upp í báðum þorpum þarf að byggja íþróttahús á Stokkseyri og sundlaug á Eyrarbakka. En á nýjum stað yrði nýr skóli með íþróttahúsi og sundlaug. Góð mæting var á fundinn, ég held að þar hafi verið um 80 manns. Eftir kynningu var unnið í þremur vinnuhópum og síðan gerð skoðanakönnum um hvaða kost íbúar veldu. Niðurstöður verða birtar á vef sveitarfélagsins þegar búið verður að telja upp úr kassanum. Góður fundur um mikilvægt mál. 9. apríl 2006
ÍÍ dag kl. 11.30 er Marinó Geir og félagar hans í handboltanum að spila í Digranesi kl. 11.30 um Íslandsmeistaratitil í handbolta. Þeir voru að keppa í gær og unnu alla sína leiki. Spennandi að sjá hverning þeim gengur í dag. Áfram Selfoss ! 8. apríl 2006
Íbúafundi um framtíðaruppbyggingu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri sem haldinn var á fimmtudaginn sl. var frestað til mánudagsins 10 apríl kl. 18.00. Ástæðan var sú að mæting íbúa hefði mátt vera meiri, en mikilvægt er að sem flestir komi og taki þátt í að móta framtíðina og láta álit sitt í ljós um hvar eigi að byggja upp skólann. 8. apríl 2006
Í kvöld var söngvakeppni framhaldsskólanna haldin í Mýrinni í Garðabæ. Þar kepptu frænkur mínar Greta Mjöll og Hólmfríður Ósk dætur Samma bróður. Það var mikil kæti á heimilinu þegar ljóst var að þær urðu í öðru sæti stelpurnar. Þegar maður horfir á krakkana okkar systkina þá sér maður hve heppnin fjölskylda við erum, þau eru öll vel af guði gerð, standa sig vel í námi, eru í íþróttum og flest þeirra eru á kafi í tónlist. Í þeim sér maður hve mikilvægt tónlistauppeldi er, við systkinin vorum flest í tónlistanámi og höfum alið börnin okkar upp í tónlistauppeldi, þau hafa verið í tónlistaskólum, spilað í hljómsveitum og sungið í kórum. Enda er ávallt þannig þegar komið er saman að mikið er sungið og spilað undir á gítar. Til hamingju Greta og Hófí. 7. apríl 2006
– nýr miðbær verður að veruleika- Eftir samkomulag Sveitarfélagsins Árborgar og Miðjunnar á Selfossi ehf sem tryggir framkvæmd samkeppni um deiliskipulag nýs miðbæjar og eignarhald sveitarfélagsins á landi í miðbænum… 6. apríl 2006
Á morgun föstudaginn 7 aprílverður vorhátið B-Listans í Árborg á Hótel Selfoss, hefst skemmtunin kl. 21.00. Sýnd verður tískusýning, farið með gamanmál, söngur, hljómsveitin Uppþot mun koma fram og hljómsveitin Pass spilar fyrir dansi. Líttu við á Hótel Selfoss og skemmtu þér með okkur. 6. apríl 2006
Í dag kl. 18.00 hefst íbúafundur á Stað á Eyrarbakka þar sem ræða á framtíðarskipan húsnæðismála Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Kynntir verða þeir möguleikar sem koma til greina ásamt kostnaðargreiningu. Síðan verður farið í hópavinnu um verkefnið. Súpa og salat í kvöldmatinn, endilega líttu við og taktu þátt. 6. apríl 2006
Þaralátursfjörður var aldrei þéttbýll enda eru landkostir ekki miklir. Í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá byrjun 18. aldar segir að Þaralátursfjörður sé forn eyðijörð sem hafi ekki byggst svo lengi sem menn muni. Þó sé vitað um eitt býli sem var langtímum saman í eyði. Helstu hlunnindi voru rekaviður og selveiðar 5. apríl 2006
Í dag kl. 16.30 var skrifað undir samkomulag við Miðjuna ehf. um að sveitarfélagið eignaðist allt landMiðjunnar í miðbænum. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að efnt verði til samkeppni meðal arkitekta um skipulag miðbæjarsvæðisins. Vilji sveitarfélagsins stendur til að skiplagið taki yfir mun stærra svæði en áður var gert ráð fyrir. Hugmyndin er að svæðið afmarkist frá Kirkjuvegi með Eyravegi og austur allt að Tryggvagötu. Stefnt er að því að deiliskipulag svæðisins verði tilbúið í október nk. og að framkvæmdir á svæði Miðjunar ehf. hefjist innan 12 mánaða. Tillaga að skipulagi frá 3XNilsen um háhýsi veðrur lögð til hliðar. 3. apríl 2006
Í kvöld kl. 20.00 var málefnafundur Framsóknarflokksins vegna sveitastjórnarkosninganna í vor. Vel var mætt á fundinn og gengur vinnan vel. 2. apríl 2006
Þessari helgi höfum við Jónas eitt á hótel Örk með vinum hans og félögum úr Mjólkurfræðingafélagi Íslands. Við höfum átt góða helgi, litum nú aðeins við á föstudagskvöldið hjá A-listanum í Hveragerði (sameiginlegt framboð B og S listanna) sem voru að birta lista sinn. 1. apríl 2006
Í morgun kl. 10.00 hófst sveitastjórnarráðstefna Framsóknarflokksins í Egilshöllinni. Mörg erindi eru á dagskránni og er tilgangurinn að stilla saman strengi framboða flokksins, kynna auglýsingavörur og annað það sem léttir okkur lífið í baráttunni.Á ráðstefnunni er boðið uppá þjálfun fyrir nýja frambjóðendur, leiðsögn í skrifum, klæðaburði, framkomu og mörgu fleiru semgott er að vita þegar takaá þátt í pólitík. Í Egilshöllinni er góð aðstaða til fundahalds, en fundurinn er á þriðju hæð hússins með útsýni yfir skautasvellið. Í morgun fór Forsætisráðherra landsins Halldór Ásgrímsson á skauta. Var hann á svellinu með fullt af börnum og ungmennum, hann kom öllum á óvart er hann sýndi hve vel hann skautaði. Einum félaga varð að orði að sennilega væri þetta eins dæmi í heiminum að forsætisráðherrafæri á skauta án lífvarða ! Góður morgun í Egilshöllinni 31. mars 2006
Í dag kl. 17.00 var miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins í Egilshöllinni. Fundurinn var vel sóttur og er gott hjá flokksmönnum að hittast og stilla saman strengi fyrir kosningarnar framundan. Fram kom hjá Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra og formanni flokksins að eitt af stóru málunum sem eru í gangi í dag eru málefni aldraðra. Mörg atriði eru þar til endurskoðunar og má þar meðal annars nefna tekjutenginu lífeyris aldraðra. Einnig kom fram hjá Halldóri að framundan eru nokkur stór verkefni í uppbyggingu dvalar og hjúkrunarheimila. 31. mars 2006
Seinni partinn í dag erum við að fara á Hótel Örk og ætlum að vera þar um helgina ásamt félögum í Mjólkurfræðingafélagi Íslands og mökum þeirra. Um helgina á að halda uppá 60 ára afmæli félagsins með samveru á hótelinu og afmælisfagnaði á laugardagskvöldið. Frábært að vera á Hótel Örk í góðra vina hópi. 30. mars 2006
Íþrótta og tómstundastarf blómstrar í Árborg og margt hefur áunnist á kjörtímabilinu. Stefna sveitarfélagsins í íþrótta- og tómstundamálum hefur verið samþykkt. Gervigrasvellir hafa verið settir niður við Vallaskóla, Sunnulækjarskóla og við skólahúsið á Stokkseyri. Sótt hefur verið um einn völl enn til KSÍ sem staðsetja á við skólahúsið á Eyrarbakka og verða þá gervigrasvellir 29. mars 2006
Í dag var hefðbundinn vinnudagur á skrifstofunni, það er mikið að gera þessa dagana erum alveg á fullu að vinna skattframtöl og ársuppgjör. Skemmtilegur tími framundan. 29. mars 2006
Í kvöld hringdi ég til Samma bróður míns en hann er þessa dagana staddur í Genf á ráðstefnu íþróttastjóra. Framundan er skemmtilegur tími hjá okkur systkinunum þar sem við skipum bæði annað sæti á lista Framsóknarflokksins í okkar heimabæjum, hann í Kópavogi en ég hér í Árborg. Það verður gaman hjá okkur að takast á við þessi verkefni og geta deilt reynslu og þekkingu á milli okkar. Skemmtilegt fyrir heimabæinn okkar Hellu „sem alltaf hefur verið vígi sjálfstæðisflokksins“ að hafa alið af sér Framsóknarmenn sem eru í toppbaráttu í öflugum sveitarfélögum. 28. mars 2006
Hugrún Jóhannsdóttir og Sól kepptu í smala í Vís meistaradeildinni í Ölfushöllinni 23. mars sl. Sól er hryssa úr okkar ræktun og á Marinó Geir hana, hún er undan Sunnu frá Skálmholti og Oddi frá Selfossi. Sól er í þjálfun hjá Hugrúnu og stendur til að fara með hana í vor í kynbótadóm 27. mars 2006
Í kvöld er félagsfundur í Framsóknarfélagi Árborgar að Eyravegi15 kl. 20.00, þá mun kjörnefnd birta lista flokksins vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor. Endilega mætið félagsmenn góðir og takið þátt í að afgreiða tillögu kjörnefndar. 27. mars 2006
Í kvöld var fundur í Framsóknarfélagi Árborgar, lögð var fram tillaga um uppstillingu listans og var hún samþykkt samhljóða. Framboðslistinn er svohljóðandi: 1. Þorvaldur Guðmundsson, bæjarfulltrúi og framhaldsskólakennari 2. Margrét Katrín Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi og atvinnurekandi 3. Björn Bjarndal Jónsson, framkvæmdastjóri 4. Kristín Eiríksdóttir, leikskólastjóri 5. Helgi Haraldsson, svæðisstjóri 6. Ármann Ingi Sigurðsson, tæknimaður 26. mars 2006
Alla laugardagsmorgna frá kl. 10.00 – 12.00 er opið hús á Eyraveginum, heitt á könnunni, spjall og gaman. Bæjarfulltrúarnir eru á staðnum. Líttu við 26. mars 2006
Í dag kl. 14.00 var hátíðarmessa í Selfosskirkju í tilefni af 50 ára afmæli kirkjunnar, eftir messu var öllum kirkjugestum boðið í messukaffi í Hótel Selfoss. Messan var mjög hátíðleg, Séra Gunnar Björnsson þjónaði fyrir altari en Séra Sigurður Sigurðarson prédikaði. Kirkjukór og barnakór Selfosskirkju sungu í messunni undir stjórn Glúms Gylfasonar 25. mars 2006
Í kvöld fórum við á árshátíð Oddfellow sem haldinn var í Básnum í Ölfusi. Skemmitlegt kvöld, maturinn var að venju frábær í Básnum. 24. mars 2006
Í kvöld fengum við góða gesti í kvöldmat og spjall. Til okkar komu Þorvaldur, Hjördís, Jón Ólafur og Ester. Gott kvöld með góðum vinum. 23. mars 2006
Í morgun kl. 8.10 mætti skólanefnd Árborgar í heimsókn í Sunnulækjarskóla. Birgir Edvald skólastjóri tók á móti okkur og gekk með okkur um skólann. Í skólanum eru 201 barn í fyrsta til fimmta bekk. Það er alltaf svo gaman að heimsækja skólana ganga um og sjá börnin við vinnu sína. Í Sunnulækjarskóla er unnið með öðru sniði með alla bekk en almennt gengur og gerist í skólum. Í skólanum eru fáir veggir… eiginlega bara útveggir, en kennslurímum er skipt upp með lausum skápum og skilrúmum. Skólahúsið er bjart og fer augljóslega vel um nemendur og starfsmenn. Frábært að sjá hve vel starf skólans gengur og maður sér hve ánægð börnin eru. Það er líka skemmtilegt að sjá 6 ára börn með fartölvu í fanginu á leið á sitt vinnusvæði. Í hverju kennslurími eru að vinnu margir hópar í mismunandi verkefnum og virðist enginn verða fyrir truflun frá næsta hóp þó stutt sé á milli og enginn veggur ! Í skólanum hafa verið stofnaðir tómstundaklúbbar, leiklista og skákklúbbar sem starfa utan skólatíma. Framkvæmdir við seinnihluta byggingar skólans eru að hafnar, verið er að grafa fyrir skólahúsinu og íþróttahúsinu. Útboð vegnabyggingarinnar hefur farið fram og verða tilboðin opnuð 28. mars nk. Í lok heimsóknar var boðið uppá kaffi og meðlæti á kennarastofu skólans. Hjartans þakkir fyrir góðar móttökur. 23. mars 2006
Í dag er Marinó Geir yngsti sonur okkar 16 ára. Mér finnst svo ótrúlega stutt síðan hann fæddist og nú er hann að byrja að læra á bíl. Tíminn flýgur áfram og árin þjóta hjá, það sér maður best á því hvað börnin stækka fljótt og fljúga úr hreiðrinu. Hann er orðinn einn heima hjá okkur, báðir bræður hans eru farnir að búa með unnustum sínum. Nú er það oftast þannig að við hjónakornin erum ein heima á kvöldin og um helgar (ef svo vill til að við erum heima !). Marinó Geir er félagslindur drengur, er á kafi í íþróttum, hann er í fótbolta og var í handbolta þar til í síðustu viku að æfingum hans með Handknattleiksdeildinni lauk, hann spilar með hljómsveitinni Uppþot og er mikið að gera hjá þeim félögunum í spilamennsku í félagsmiðstöðvum, hann fer líka á hestbak þegar tími gefst en hann notar hestamennskuna til að slaka á og njóta stundarinnar. Hann er að klára 10 bekk í Vallaskóla í vor og stefnir á nám í Fsu. Marinó hefur verið í Tónlistaskóla Árnesinga frá því að hann var 9 ára hann spilar á trommur og hefur Stefán Þórhallsson verið að kenna honum, frábært starf sem hann er að vinna í skólanum. 23. mars 2006
Á undanförnum misserum hafa málefni barnafjölskyldna í Árborg verið í brennidepli hjá bæjaryfirvöldum. 23. mars 2006
Í dag kl. 17.00 var fyrsti fundur hjá Úthlutunarnefnd Menningarsjóðs barna í Árborg. Í nefndinni eru auk mín, formaður Menningarnefndar Inga Lára Baldvinsdóttir og formaður Leikskólanefndar Arna Ír Gunnarsdóttir. Á fundinum var farið yfir tillögu að samþykktum sjóðsins og undirbúin auglýsing eftir styrkjum. Fundinum lauk kl. 18.15. 22. mars 2006
Í morgun kl. 10.00 var hátíðarstund í Leikskólanum Glaðheimum þar sem kynnt var námskrá skólans sem var að koma út. Leikskólinn Glaðheimar er elsti leikskóli sveitarfélagsins en hann tók til starfa 1. apríl 1968. Þegar leikskólinn var byggður átti Kvenfélag Selfoss 20% af húsinu og notaði leikskólann að hluta fyrir starfsemi sína. Glaðheimar bjóða upp á 4 – 9 tíma dvöl fyrir og eftir hádegi og geta 34 börn dvaldist þar í einu. Skólinn leggur meðal annars áherslu á hreyfingu, tónlist og færni í lífsleikni. Ég hafði sérstaklega gaman af því að koma í Glaðheima en þar voru eldri drengirnir mínir þeir Gústaf og Erlingur í vistun þegar þeir voru börn. Þar áttu þeir góða daga og búa að þeim enn í dag. Það er athyglisvert að enn í dag eru margir starfsmenn sem þá störfuðu í skólanumenn við störfþar og segir það margt um skólann og starf hans. Hjartans þakkir til ykkar allra í Glaðheimum fyrir frábæra stund. 22. mars 2006
Í síðustu viku var skrifað undir samstarfssamning á milli Hestamannafélagsins Sleipnis og Sveitarfélagsins Árborgar um uppbyggingu reiðvega samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins. Árborg mun leggja fram 30 milljónir á næstu átta árum til uppbyggingar þeirra. Hestamannafélagið sækir um mótframlag til reiðveganefndar Landssambands Hestamannafélaga í verkið. Áætlaður kostnaður við uppbyggingu reiðvega samkvæmt útreikningum reiðveganefnar Sleipnis eru tæpar 22. mars 2006
Í dag kl. 17.00 var fundur í skólanefnd grunnskóla. Á dagskrá fundarins var fjölskyldustefna sveitarfélagsins, kynning á fjárhagsáætlun, kennslukvóti skólanna, samstarf grunn- og framhaldsskóla ogkynning á útboði seinni áfanga Sunnulækjarskóla. Fundurinn stóð til 19.15. 20. mars 2006
Í kvöld kl. 20.00 hófst fundur hjá Framsóknarfélagi Árborgar í málefnastarfi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Vel var mætt í kvöld og margt rætt og skoðað. Endilega kíktu við á laugardaginn kl. 10.00 eða á mánudagskvöldið kl. 20.00. 19. mars 2006
Í dag fór ég til vinnu fyrir hádegi og var fram eftir degi. Jónas hefur verið í skólanum í allan dag, nú er lokaspretturinn á þessari önn hafinn. Fór síðan í hesthúsið um kvöldmat, mokaði og gaf. 18. mars 2006
Í dag hefur verið vor í lofti og einstök blíða hér á Selfossi. Ég fór eftir hádegið í hesthúsið, mokaði út og kemdi hrossunum. Frábært að geta notið veðurblíðunnar með hrossunum sínum. Jónas var í skólanum í allan dag. Nú er framundan hjá honum lokaspretturinn í náminu og mikið að gera. 18. mars 2006
Á hverjum laugardagsmorgni er opið hús hjá okkur í Framsókanarhúsinu við Eyraveg frá kl. 10 – 12. Í morgun var nokkuð margt um manninn. Mörg málefni rædd og krufin. Endilega líttu við næsta laugardag. 17. mars 2006
Í dag var hefðbundinn vinnudagur og ótrúlegt en satt enginn fundur hjá mér. Ég fór heim úr vinnunni rúmlega fimm. Við fengum gesti í kvöldmat, þau Möggu mágkonu og Jón, áttum saman frábært kvöld. 16. mars 2006
Í dag fór ég í Laugalandsskóla til að dæma í stóru upplestrarkeppninni. Skólarnir sem kepptu voru, Laugalandsskóli, Helluskóli, Hvolsskóli, Víkurskóli og Kirkjubæjarskóli alls 10 unglingar úr 7. bekk. Það var alveg frábært að fá tækifæri til að taka þátt í þessari keppni sem dómari. Krakkarnir stóðu sig hvert öðru betur, en eins og í öllum keppnum er það alltaf einhver einn sem vinnur og í dag var úr vöndu að ráða. Í fyrsta sætir var Fjóla Kristín, í öðru sæti Ragnheiður báðar frá Laugalandsskóla og í þriðja sæti var Berglind frá Kirkjubæjarskóla, aukaverðlaun voru veitt Klöru Lind úr Hvolsskóla. Góður dagur með flottum krökkum. 16. mars 2006
Á heimleiðinni frá Laugalandi kom ég aðeins við á Hellu hjá foreldrum mínum. Leit við í búðinni hjá mömmu sem var í óðaönn að búa til blómvönd vegna afmælis í hreppnum. Pabbi var að sýsla við hestana sína. Ég fór með þeim heim og áttum við saman góða stund þó að hún væri ekki löng. Það er einhvernveginn þannig í önnum dagsins að maður gefur sér aldrei nægan tíma til að vera með sínum nánustu. Samt eru þessar stundir þær dýrmætustu sem maður á. 16. mars 2006
Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Sveitarfélagsins Árborgar og Hestamannafélagsins Sleipnis um uppbyggingu reiðvega samkvæmt nýju aðalskipulagi. Samningurinner til í áttaára ogmunu greiðslur Árborgar verða samtals 30 milljónir. Á fyrsta og öðru ári 6 milljónir, síðan 3 milljónir á ári í 6 ár. Samningur þessi skiptir miklu máli við markvissa uppbyggingu reiðvega. Hestamannafélagið Sleiðnir mun sækja um mótframlag til reiðveganefndar Landssambands Hestamanna og mun þetta samstarf flýta mjög allri uppbygginu reiðvega. Fyrsta verkefnið verður unnið núna á þessu vori og er þaðreiðvegur frá Selfossi niður á strönd,hann verður lagður ofaná nýja vatnslögn sem verið er að leggja þangað. Þessi samningur mun gjörbreyta allri aðstöðu hestamanna til að stunda útreiðar í sveitarfélaginu 16. mars 2006
Í dag kl. 15.30 er ein af þremur lokahátíðum í stóru upplestrarkeppni grunnskólanna á Suðurlandi erá Laugalandi í Holtum. Ég verð ein af dómurum keppninnar og hlakka ég til þessa verkefnis. 16. mars 2006
Kl. 9.00 verður fyrsti fundur nýrrar deildar hjá Félagi kvenna í atvinnureksti á Suðurlandi í Rauðahúsinu á Eyrarbakka. Haldinn var undirbúningsfundur fyrir um mánuði síðan á Hótel Selfoss fyrir deildina, á þann fund mættu um 60 konur af Suðurlandi. Spennandi starf framundan í deildinni, það verður gaman að kynnast öllum þessum fjölmörgu konum sem stjórna eða reka fyrirtæki á Suðurlandi. 15. mars 2006
Í dag er formleg opnun á deildunum sem bætt var við leikskólann Árbæ. Ég hlakka til að koma til þeirra og sjá hvernig þetta kemur út. Búið er að opna formlega í Álfheimum og koma deildirnar mjög vel út þar. Þær eru bjartar og rúmgóðar, mjög vel heppnað þar. Í dag fór ég og var við formlega opnun nýrra leikskóladeilda við leikskólann Árbæ. Deildirnar eru bjartar og fallegar. Aðstaðan þar til mikillar fyrirmyndar og er alveg víst að þar munu börnum og starfsmönnum líða vel. Til hamingju Árbær með nýju deildirnar. 14. mars 2006
Í dag var vikulegur vinnufundur meirihluta Bæjarstjórnar. Hófst fundurinn kl. 17.00 og lau honum kl. 21.30. Þessir fundir eru oft langir og strangir. 13. mars 2006
Það er í ansi mörg horn að líta þessa dagana hjá meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar og bættum við aukafund við vegna þess sem hófst kl. 17.00 og stóð hann til 19.00
11. mars 2006
Yfir skattatímann er það yfirleitt þannig að ég vinn á laugardögum og sunnudögum. Það kemur sér að ég hef ótrúlega gaman af því að glíma við skattframtöl…! Í morgun milli 10 og 12 var vikulegt morgunkaffi hjá Framsóknarflokknum að Eyravegi 15. Alltaf gaman að hittast og spjalla. Bæjarfulltrúar eru alltaf á staðnum. Líttu við næsta laugardag. 11. mars 2006
Unglingahljómsveitin Uppþot spilaði í gærkvöldi tvö lög fyrir gesti á Ungfrú Suðurland á Hótel Selfoss. Drengirnir eru allir grunnskólanemendur og mega ekki fara inn á vínveitingahúsog fóru því í fylgd foreldraog forráðamanna. 10. mars 2006
Í kvöld hittumst við systur í Grand/Contreu klúbbnum. Í klúbbnum eru 12 systur… við eigum það allar sameiginlegt að hafa verið þjónar á Hótel Selfoss fyrir nokkrum árum..! Klúbburinn hittist tvisvar til fjórum sinnum á ári. Það er orðið langt síðan ég hef komist á fund hjá systrum mínum, en fundir klúbbsins eru alltaf ógleymanlegir. Hávaðinn hefði nú sennilega mælst yfir mörkum þegar við vorum komnar 9 saman til Möggu mágkonu. Magga og Sigga buðu upp á frábæran kvöldverð.Kvöldið var mjög skemmtilegt ogfrábært að eiga svona stund með systrum sínum ! 10. mars 2006
Unglingahljómsveitin Uppþot varð í þriðja sæti í úrslitakeppni Samfés sem haldin var í Mosfellsbæ á dögunum. Í hljómsveitinni eru, Óskar, Marinó, Ragnar, Fannar og Guðmundur. Frábær árangur hjá strákunum, til hamingju með þetta. 10. mars 2006
Þessa dagana er töluverður erill á skrifstofunni og margt um manninn allir viðskiptavinir okkar eru að koma með skattagögnin sín vegna framtalsins 2006. Framundan miklar annir og skemmtilegur tími. 9. mars 2006
Í morgun kl. 8.00 fór skólanefnd Árborgar af stað í heimsókn til Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Við hófum heimsóknina í skólahúsnæðinu á Stokkseyri. 9. mars 2006
Skólastefna grunnskóla Árborgar var samþykkt í lok árs 2003 með fræðslu og mannrækt að leiðarljósi. Mikilvægt er að stefna sveitarfélagsins í fræðslumálum sé skýr og aðgengileg öllum þeim sem vilja kynna sér hana. Fyrsti hluti Sunnulækjarskóla var tekinn í notkun haustið 2004 og seinni áfangi byggingarinnar hefur verið boðinn út og mun kennsla hefjast 8. mars 2006
Í dag var 54 fundur Bæjarstjórnar Árborgar í Ráðhúsinu. Góður fundur þar sem afgreidd var tillaga Bæjarstjórnar í dagvistunarmálum.
Tillaga 1. Bæjarstjórn Árborgar samþykkir að framvegis verði unnið í samræmi við viðmiðunarreglur sem Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur nýlega gegið út fyrir sveitarfélög til að hafa til hliðsjónar við 7. mars 2006
Ég fór beint af fundi á körfuboltaleik í Iðu þar sem Akademían var að keppa við Val. Ég hef nú verið á leið á leik í allann vetur að horfa á Véstein frænda minn spila. Bráðskemmtilegt að horfa á strákana spila. Ég verð þó að segja að lítið botnaði ég í bendingum dómaranna til ritarans og upplifði þarna ákveðið táknmál á vellinum. Allir virtust þó skilja þar það sem fram fór. Mæli hiklaust með körfuboltaleik í Fsu til skemmtunar. 6. mars 2006
Ídag var ég mætt til vinnu kl. 8.00 eins og venjulega, var þar til hálf tólf, en þá brunaði ég til Reykjavíkur á málþing um skólamál hjá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga. Um kvöldið var síðan annar málefnavinnufundur Framsóknarmanna. Málþing Sambandsins var haldið í Öskju húsi náttúrufræðistofnunar HÍ. Málþingið var vel sótt en þó fannst mér nú vanta mikið af sveitarstjórnarmönnum á Suðurlandi. Ég held þó að við höfum verið fjögur, Sveinn Pálsson, Þorsteinn Hjartarson, Kristín Hreinsdóttirog ég, síðan voru einir þrír embættismenn sveitarfélaga. Málþingið var nú nokkuð gott, mörg góð erindi voru flutt sem öll voru byggð á rannsóknum fræðimanna. Meðal annars um sameiningar skóla. Þar kom fram meðal annars aðfram hefði komið í rannsókninni að svo virtist vera að flestar sameiningar hafi verið til að losna við óæskilega stjórendur ! Fróðlegt erindi um aðstæður fatlaðra barna í grunnskólum. Erindi um breytingu á hlutverki skólastjóra úr faglegum leiðtoga í rekstrarlegan stjórnanda. Um þróunarverkefni í grunnskólum sem virðast ekki breyta miklu í skólastarfi nema hjá fáum starfsmönnum sem þátt í þeim taka. Mjög fróðlegt erindi um mikilvægi fyrsta starfsárs kennarans, sem kemur nýútskrifaður inn í skólakerfið og fær fulla kennslu og ekki mikinn stuðning. Fram kom að hver nýr kennari þyrfti að hafa leiðsagnar kennara til að leiðbeina honum fyrsta árið. Lok málþingsins var pallborð sem ég tók þátt í. Skemmtilegur dagur. Málefnavinna flokksins fer vel af stað, mjög vel var mætt í kvöld og var farið yfir fræðslumálin og ýmislegt fleira. Endilega mætið og takið þátt. 5. mars 2006
Í dag var ég heima við að sinna ýmsum verkum sem til falla á heimilinu, Jónas sat yfir bókum eins og hann gerir nú reyndar þessa dagana allann sinn frítíma. 4. mars 2006
Í dag á ég afmæli og er nú orðin…. ja 44 ára. Mér finnst það nú frekar ótrúlegt þar sem mér finnst ég ekkert eldri en ég var fyrir mjög mörgum árum. En hver afmælisdagur er hátíðisdagur þar sem maður þakkar fyrir liðið ár og óskar sér góðrar daga fram að þeim næsta. Elskan mín færði mér blómvönd þar sem að hann var í burtu allan daginn við nám sitt í Háskólanum. Deginum eyddi ég í vinnunni en um kvöldið litum við Anna vinkona til Elísu vinkonu í kaffi, grín og gaman. 4. mars 2006
Í morgun var góður hópur manna í morgunkaffi Framsóknarflokksins í Árborg, ánægjulegt að alltaf er að fjölga og umræður eru líflegar. 3. mars 2006
Alla laugardaga frá 10-12 er morgunkaffi hjá Framsóknarflokknum í salnum okkar við Eyraveg. Líttu við, bæjarfulltrúarnir eru á staðnum. 2. mars 2006
Þessa dagana er mikið í umræðunni hvar eigi að byggja upp nýtt skólahús fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þessi umræða er nú ekki alveg ný af nálinni því að úrbætur í húsnæðismálum skólans hafa verið í skoðun um þó nokkurn tíma. Ástæðan fyrir því að ekki er búið að leysa þennan 1. mars 2006
Í dag er fyrsti dagur marsmánaðar og vorið nálgast óðfluga. Í bæjarmálunum eru ekki margir formlegir fundir þessa dagana en þó erum við að vinna í nokkrum vinnuhópum í hinum ýmsu málum, meðal annars erum við að skoða dagvistunarmál og mötuneytismál leik- og grunnskóla. Í öllum málaflokkum er nauðsynlegt að setjast niður öðru hverju og fara yfir málin og sjá hvort að sé verið að gera eins vel og mögulegt er, eins hvort nýta megi fjármagn betur til betri þjónustu við íbúana. 28. febrúar 2006
Í dag er fundur í meirihluta Bæjarstjórnar kl. 17.00, Björn Bjarndal Jónsson mun mæta fyrir mína hönd þar sem ég verð í Reykjavík á öðrum fundi. 26. febrúar 2006
Sunnudagur á að mínu mati að vera dagur fjölskyldunnar, dagur þar sem maður notar tímann til að líta í bók eða að sinna því sem annars er ekki tími til. Ég hef nú nokkrum sinnum lofað mér því að vinna ekki á sunnudögum. Nú er þó svo komið að ég get ekki haldið þetta loforð þar sem ég var að vinna í dag og í gær. Framundan er annatími á skrifstofunni og í pólitíkinni þannig að allir dagar verða undir. 25. febrúar 2006
Í dag er opið hús í Framsóknarsalnum frá 10 – 12. Komið við fáið ykkur morgunkaffi og spallið saman. Bæjarfulltrúar flokksins eru á staðnum. 25. febrúar 2006
Í dag fórum við Jónas í hesthúsið og fórum í útreiðatúr. Veðrið var svo gott að manni finnst á köflum eins og sé komið vor enda er gróður er víða farin að lifna. Fínn reiðtúr í góða veðrinu. 25. febrúar 2006
Í dag ætlum við systkinin ásamt mökum að hittast hjá foreldrum mínum á Hellu. Við ætlum að ganga frá skipulagi á göngu um Strandir í sumar. Þá áætlum við að sigla frá Norðurfirði í Reykjafjörð, ganga í Þaralátursfjörð og Furufjörð, upp á Drangajökul og síðan á æskuslóðir mömmu að Dröngum, þaðan í Drangavík inní Ófeigsfjörð og enda í Ingólfsfirði. Þessi ferð tekur okkur um eina viku eða svo og áætlum við að fara um miðjan júlí. 25. febrúar 2006
Í morgun kom ég til vinnu uppúr kl. 8.00 eins og venjulega. Ég var í vinnunni til kl. 17.00 en þá fór ég á vinnufund meirihluta bæjarstjórnar sem stóð til kl. 19.20. Þá brunaði ég heim og eldaði mat fyrir Marinó Geir, en Jónas var í skólanum fram á kvöld. Rétt fyrir kl. 20.00 fór ég á fund með nefndarfólki Framsóknarflokksins í Árborg og kom heim um 23.30. Langur dagur en góður. Fundirnir skiluðu árangri og er það fyrir mestu.
24. febrúar 2006
Í dag kl. 13:00 var ráðstefna á Hótel Selfoss á vegum Skólaskrifstofu Suðurlands um skólamál. Þar voru saman komnir frábærir fyrirlesarar, kynnt var Pisa rannsóknin, skólahald á Hvolsvelli, Piltar og Fsu ná þeir saman, breyting á rekstri grunnskólans, fjölgun starfsmanna í grunnskólum og sjónarhorn sálfræðings um hvort gæði hafi aukist í skólastarfi með fjölgun starfsmanna. Stórgóð ráðstefna þar sem meðal annars kom fram að drengir á landsbyggðinni eru slakari í stærðfræði en stúlkur. 23. febrúar 2006
Þessa dagana eru nú vinnudagarnir á skrifstofunni að lengjast. Framundan er einn mesti annatími ársins, skattskilin og ársreikningarnir. Þetta er alltaf skemmtilegur tími þar sem mikill erill er og margir eiga erindi til okkar. Mér finnst nú líka alltaf lang skemmtilegast þegar skattatíminn er enda mjög skemmtilegt að gera skattframtöl. 20. febrúar 2006
Í dag var fundur í skólanefnd Árborgar sem haldinn var á Stokkseyri. Á fundinum var lögð fram skýrlsa vinnuhóps um framtíðarskipan húsnæðismála Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Einnig var kynning á fjárhagsáætlun skólans. Töluverðar umræður urðu um niðurstöðu meirihlutavinnuhópsins vegna húsnæðismálanna. Fundarmenn voru nú ekki allir sammála eins og gengur og gerist, en 19. febrúar 2006
Þessi dagur hefur nú verið mikill letidagur. Við fengum morgunmat uppá herbergi á hótelinu, tékkuðum okkur út um hádegi, fórum þá til Hönnu og Holla í hádegismat og spjall. Komum heim um fimmleitið og tókum á móti Guðjóni móðurbróður og Jónu í kaffi, fórum síðan í kvöldmat til Hróðnýar og Badda. Sannkallaður leti dagur. 18. febrúar 2006
Ég hef síðustu vikurnar verið að skoða mín mál niður í kjölinn og reyna að taka ákvörðun um hvort að ég eigi að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa á þeim vettvangi eða ekki. 17. febrúar 2006
Unglingahljómsveitin Uppþot fór í morgun til Vesmannaeyja til að spila á skólaballi fyrir jafnaldra sína. Mikil tilhlökkun var meðal unglinga í Vestmannaeyjum vegna komu hljómsveitarinnar og skemmtunarinnar í kvöld. Hljómsveit þessi er afrakstur félagsmiðstöðvarinnar Zelcius í Árborg en hún mun keppa í undanúrslitum Samfés á næstunni fyrir hennar hönd. Hljómsveitin og umboðsmaður hennar fengu höfðinglegar móttökur í Eyjum eins og venja er þar þegar gesti ber að garði. 17. febrúar 2006
Við hjónin erum þessa helgi stödd á Hótel Sögu í Reykjavík. Tilefni ferðarinnar er árshátíð starfsmanna MS. Við komum hér um fimmleitið í dag, borðum góðan kvöldverð í Skrúð og fórum síðan að sjá Túskildingsóperuna í Þjóðleikhúsinu. Skemmtilegur söngleikur sem færður hefur verið í nútímabúning. Ég sá uppfærslu óperunnar hjá Menntaskólanum á Laugarvatni fyrir allmörgum árum en þá söng Samúel bróðir minn eitt af aðalhlutverkunum. Í minningunni var það nokkuð góð uppfærsla og ekki síðri en við sáum í gær ! 16. febrúar 2006
Fundur var haldinn í Hótel Selfoss í kvöld á vegum samgöngunefndar SASS. Umræðuefni fundarins var Suðurlandsvegurinn frá Reykjavík að Selfossi. . 15. febrúar 2006
Vinkona mín og samstarfskona Anna Steinþórsdóttir var að flytja í Kringlumýrina nú á dögunum. Kvöldinu vörðum við vinkonurnar í að setja saman borð og stóla sem hún var að kaupa sér í nýja húsið. Einnig tókum við á því saman við að koma henni og Örvari syni hennar fyrir á nýja heimilinu. 15. febrúar 2006
Fimmtánda hvers mánaðar er stór dagur í vinnunni hjá okkur stelpunum. Þá eru skil á launatengdum gjöldum og sinnum við þeirri þjónustu fyrir mörg fyrirtæki og einstaklinga. Við göngum frá öllum launagögnum og förum með í bankana til að létta mönnum lífið. 14. febrúar 2006
Í kvöld fór ég á fund í Hótel Selfoss á vegum nýs félags Miðbæjarfélagsins. Ágætis fundur þar sem margt fróðlegt kom fram. Fundurinn var frá kl. 20.00 til 22.30. Sérfræðingar komu á vegum félagsins frá Reykjavík og fjölluðu um háhýsi, veður og vinda ásamt búsetu á Selfossi. Í dag var vikulegur vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar frá kl. 17.00 til 18.30. 13. febrúar 2006
Í dag var hefðbundinn vinnudagur, ég fór þó á einn fund með framsóknarmönnum. Mikið er um að vera hjá Verkfræðistofunni Hönnun þessa dagana. En við leigjum saman húsnæði. Nú eru strákarnir að bæta við húsnæðið og hafa tekið á leigu nær allann hinn helminginn af hæðinni. Búið er að saga niður veggi, setja kerfisloft, leggja nýjar raflagnir og mála. Þeir eru byrjaðir að flytja inn í nýja hlutann og sýnist mér að þetta verði nú bara nokkuð fínt hjá þeim þegar allt verður komið í samt lag. Þeir eru líka að fjölga starfsfólki og komin er ung og glæsileg stúlka til starfa hjá þeim. 12. febrúar 2006
Sunnudaginn notuðum við í afslöppun og heimilsverk. Nauðsynlegt að taka sér dag og dag til að gera eiginlega ekki neitt… 11. febrúar 2006
Í kvöld ætlum við að skreppa á Eyrarbakkaí kvöldmat tilGústafs og Maríu, alltaf tilhlökkun að eiga í vændum „mömmumat“ eins og hann gerist bestur. Notalegt kvöld framundan með fjölskyldunni. 11. febrúar 2006
Framsóknarkaffi er í framsóknarsalnum alla laugardagsmorgna frá kl. 10 – 12. Í morgun var góð umræða um bæjarmálin almennt, kátt á hjalla og þokkaleg mæting. Endilega líttu við næsta eða næstu laugardaga og vertu með í umræðunni, hittu skemmtilegt fólk, fáðu þér kaffi og meðlæti. 11. febrúar 2006
Í dag er einn af þessum fallegu og björtu sólardögum sem við söknum svo yfir vetrarmánuðina. Í tilefni dagsins dró ég Íslenska fánann að húni. Á dögum sem þessum finnst manni að nauðsynlegt sé að fara út í garð tína rusl og hreinsa í kringum sig eins og hægt er yfir veturinn. Mér finnst alveg ótrúlegt hve mikið rusl lendir í görðum og bílaplönum yfir veturinn, hvaðan kemur það spyr maður sig, en í nýjum hverfum eru miklar byggingaframkvæmdir og oft eru menn ekki nægilega duglegir að taka til og passa upp á að ruslið fjúki ekki. Tökum höndum saman og látum ruslið ekki fjúka um bæinn okkar fallega. 10. febrúar 2006
Seinni partinn í dag var ég ásamt Guðmundi Stefánssyni oddvita í Hraungerðishreppi í svæðisútvarp Suðurlands. Umræðuefnið var, sameining í Flóa, Fjallið okkar „Ingólfsfjall“ og námuvinnsla þar og framboðsmál Framsóknarmanna. Alltaf gaman að vera með Guðmundi í umræðum, enda er hann heiðarlegur og skemmtilegur viðmælandi. 10. febrúar 2006
Þessa viku eða 7,8,9 og 10 febrúar hef ég verið í fríi bæði frá vinnu og bæjarmálunum. Á meirihlutafund og bæjarstjórnarfundmætti Björn Bjarndal Jónsson fyrir mig en hann er varabæjarfulltrúi okkar Framsóknarmanna. 6. febrúar 2006
Í dag hefur verið mikið að gera í vinnunni hjá okkur, skil eru á virðisaukaskatti einnig hjá þeim sem eru í ársskilum. Miklar annir á þessum degi. 5. febrúar 2006
Í dag tókum við því rólega, Jónas notaði daginn til að læra en ég til að líta við hjá Önnu Stínu systir, lesa í bók og hvíla mig. Gott að taka stöku sinnum dag sem þennan. 4. febrúar 2006
Í kvöld héldum við árlegt þorrablót með strákunum okkar og tengdadætrum, einnig var með okkur í ár Gústaf tengdafaðir minn. Við höfum gert þetta frá því að strákarnir voru litlir til að kenna þeim að borða þorramat. Nú er það orðið svo að þeir bíða eftir þorraveislunni ár hvert. Skemmtilegt kvöld með fjölskyldunni. 4. febrúar 2006
Um hádegi í dag fórum við Magný Rós að vinna. Við kláruðum útsendinu á launamiðum og skil til Skattstjóra. Við vorum í vinnunni til kl. 17.00. 4. febrúar 2006
Í morgun var framsóknarkaffi á Eyraveginum. Þar voru birtar niðurstöður úr skoðanakönnun sem gerð var meðal félagsmanna vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Birt voru nöfn þeirra sex sem skoruðu best það eru; Þorvaldur Guðmundsson, Margrét K. Erlingsdóttir, Björn Bjarndal Jónsson, Helgi Haraldsson, Ármann Ingi Sigurðsson og Elsa Ingjaldsdóttir. Einnig var skýr vilji félagsmanna um að stillt yrði upp á lista. Fram kom í máli formanns Helga Haraldssonar að kosin yrði kjörnefnd sem mundi vinna máliðáfram. 3. febrúar 2006
Í dag á Hólmfríður systir mín afmæli. Fríða býr í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum Ásbirni Guðmundssyni, börn þeirra eru Aron Steinn 17 ára og Anna Margrét (nafna mín) sem er 16 ára. Fríða er sjúkraþjálfari við Landspítalann Háskólasjúkrahús og vinnur á skrifstofu starfsmannamála. Hún vinnur einnig á HL, sem er Hjarta og Lungnastöðin, æfingastöð fyrir sjúklinga. Fríða er einu ári, einummánuði og einum degi eldri en ég og er þriðja í röðinniaf okkur systkinum. Fríða og Ási eru mikiðútivistarfólk og miklir göngugarpar. Í sumar ætla þau að fara með okkur systkinin og maka í gönguí Árneshrepp á Ströndum.Við ætlum að fara og skoða heimkynni forfeðrannaí Þaralátursfirði, Furufirði,Reykjafirði, Skjaldabjarnarvík og á Dröngum. Skemmtileg ferð framundan hjá fjölskyldunni. 2. febrúar 2006
Í kvöld brá ég mér á fund um menntamál í FSU á vegum framboðs Eyþórs Arnalds í prófkjöri sjálfstæðismanna. Ég verð nú að segja að ég undraðist hve fáir voru mættir á þennan fund miðað við hve menntamál eru mikilvæg í samfélginu. 2. febrúar 2006
Við getum spurt okkur þeirrar spurningar, mundu strætóferðir á milli Selfoss og Reykjavíkur breyta einhverju fyrir íbúa Árborgar ? Ég segi já þær mundu breyta mjög miklu. Það eru fjölmargir sem sækja vinnu og skóla til Reykjavíkur alla daga vikunar. Þessi ferðalög kosta mikla peninga fyrir þá sem þau þurfa að stunda. Það mundi létta námsmönnum sem öðrum róðurinn ef að strætóferðir væru í boði. Að greiða 250 kr. fyrir ferðina suður og taka síðan skiptimiða á næstu stoppustöð og geta með honum farið hvert sem maður vill í borginni er töluvert ódýrara en að ferðast með einkabíl, svo ekki sé talað um öryggið sem í þessu er fólgið. Tíminn á milli staða mundi geta nýst til lestrar, vinnu í tölvu eða hreinlega til að fá sér blund. Í dag eru um 10% íbúar sem fara á milli dagalega, þetta mundi létta verulega á umferðarþunga yfir heiðina og innanbæjar í Reykjavík. Gott mál semkemst vonandi í gagnið íbúum Árborgar til hagsbóta. 2. febrúar 2006
Á laugardaginn er morgunkaffi í framsóknarsalnum við Eyraveg frá 10 til 12.Einnig verður haldinn félagsfundur þar sem að niðurstöður úr skoðanakönnun vegna sveitarstjórnarkosninganna verða kynntar. Endilega lítið við, spjallið, fáið fréttir og njótið stundarinnar með okkur. 1. febrúar 2006
Á sudurland.is kemur fram að Þorvaldur Guðmundsson formaður bæjarráðs Árborgar skrifi í Sunnlenska fréttablaðið sem kemur út á morgun um strætisvagnaferðir á milli Selfoss og Reykjavíkur. Það væri vissulega gott ef að við gætum fengið reglulegar strætóferðir á milli fyrir alla þá fjölmörgu sem ferðast til vinnu eða skóla daglega. Lesið Sunnlenska á morgun og sjáið hvað Þorvaldur skrifar. 30. janúar 2006
Í dag var enginn fundur hjá mér og gaf ég mér tíma til að fara í hesthúsið, mokaði út og kemmdi. Notalegt að eiga stund með vinum sínum „hrossunum“ í lok vinnudags. 29. janúar 2006
Í gærkveldi voru undanúrslit í SAMFÉS keppninni í Vestmanneyjum þar sem kepptu vinningshafar frá15 félagsmiðstöðvum á Suðurlandi. Sex fulltrúar komust áfram í úrslit í aðalkeppnina sem haldin verður í mars í Mosfellsbæ,hljómsveitin Uppþot frá félagsmiðstöðinni Zelcius erein þeirra. Meðlimir hennar eru; Óskar Örn Hróbjartsson á bassa, Ragnar Jóhannsson á hljómborð, Marinó Geir Lilliendahl á trommur, Fannar Magnússon á gítar og Guðmundur Þórarinsson sem syngur. Þeir eru allir nemendur í Vallaskóla á Selfossi, í 8, 9 og 10 bekk. Frábær árangur hjá strákunum. Hægt er að skoða myndband af strákunum á þessari slóð. http://www.sudurland.is/eyjafrettir/veftv/veftv.asp?Eyjasyn=samfes_2006.wmv. Hér að neðan er mynd af vinningshöfum keppninar sem birt var á sudurland.is í dag. 28. janúar 2006
Í kvöld ætlum við að fara á þorrablót í Hraungerðishreppi með Gísla stórbónda á Stóru Reykjum,Jónínu konu hans, Hróðnýu og Hróbjarti. Gott kvöld með góðum mat framundan. 28. janúar 2006
Morgunkaffi var í morgun í Framsóknarsalnum frá 10 til 12. Lítið við næsta laugardag og ræðið málin. 27. janúar 2006
Kl. 18.00 í kvöld var mæting hjá þeim sem ætla með félagsmiðstöðvinni til Vestmannaeyja en þar fer fram Samfés keppni… söngvakeppni félagsmiðstöðva. Marinó Geir fór ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Uppþot en þeir taka þátt fyrir okkar hönd. Gústaf fór líka en hann er starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar… Gangi ykkur vel krakkar og góða skemmtun. Hópurinn er væntalegur heim á sunnudag með Herjólfi. 26. janúar 2006
Í dag var nú hefðbundinn dagur, ég var í vinnunni fram undir kl. 18.00. Í kvöld komu Magga má og Jón í kaffi. Farið var yfir málin og það sem helst er á döfinni hjá fjölskyldunni á næstunni. 25. janúar 2006
Um hádegi í dag fórum við til Reykjavíkur með Marinó Geir til sjúkraþjálfara. Jónas fór í skólann en við Marinó Geir skruppum í heimsókn til Erlings og Sifjar að skoða hjá þeim það sem þau keyptu í siglingunni og framkvæmdir á heimilinu. En þau hafa verið að mála og gera fínt hjá sér. Þegar heim kom fór ég í hesthúsið og mokaði út, kemdi og bustaði hrossin. Alltaf gott að komast í hesthúsið og og taka svolítið á. 24. janúar 2006
Vinnufundurinn hófst kl 17.00 að venju og stóð til kl. 20.00 23. janúar 2006
Bæjarfulltrúar framsóknarflokksins, nefndarmenn og nánustu samstarfsmenn hittast alltaf á mánudögum kl. 17.00 til að fara yfir mál vikunnar og það sem er framundan. Gott að hittast fara yfir málin og fá fleiri sjónarmið. 22. janúar 2006
Í kvöld fengum við góða gesti í þorramat. Til okkar komu vinir okkar úr hjónaklúbbnum sem við höfum starfað í síðan 1999. Við hittumst alltaf einu sinni í mánuði yfir veturinn og eigum saman góða kvöldstund. Gott að hitta góða vini og njóta stundarinnar. 21. janúar 2006
Í morgun var fyrsta morgunkaffið hjá framsókn í salnum okkar við Eyraveg. Ætlunin er að hafa morgunkaffi á hverjum laugardegi frá 10 – 12. Endilega komið og fáið ykkur kaffi, spjallið og njótið stundarinnar. 20. janúar 2006
Bóndadagurinn er runninn upp, þá gera Karlakórsmenn sér dagamun og hafa karlakvöld þar sem etin eru svið og saltket. Guðni Ágústsson og Árni Johnsen skemmtu strákunum. Var víst mjög gaman sögðu strákarnir. Ég fór með Hönnu vinkonu út að borða á Menam, alltaf jafn góður matur og notalegur staður. 19. janúar 2006
Miklar umræður hafa verið á sl. árum um viðbyggingu viðHeilbrigðisstofnun Suðurlands og hjúkrunarheimili aldraðra á Selfossi. Önnur hæð hússins á að taka við af Ljósheimum en því miður fjölgar ekkiplássum frá því sem er ef einungis er um að ræða þessa hæð. Möguleiki er á að byggja þriðju hæðina ofaná húsið og væri 18. janúar 2006
Það eru nokkuð annasamir dagar á skrifstofunni núna eftir áramótin. Nú erum við að leggja lokahönd á uppgjör allra deilda Umf. Selfoss. Launamiðar og launaframtöl eru að fara frá okkur um helgina. Síðan er virðisaukaskattur 5. febrúar hjá þeim sem eru í tveggja mánaða- og ársskilum.En þetta er nú alltaf skemmtilegasti tími ársins í vinnunni finnst mér.Eitt það skemmtilegasta sem ég geri eru skattframtöl oguppgjör fyrirtækja og einstaklinga…. sumum finnst þetta nú frekar galið…. en svona er það nú samt. 18. janúar 2006
Þann 18. janúar fyrir allmörgum árum fæddist litla systir mín hún Ingibjörg, sem er alltaf kölluð Inga. Hún býr á Hvolsvelli og starfar þar sem tónmennta- og tónlistakennari. Hún og sambýlismaður hennar Helgi Jens Arnarson nemi í Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni…eiga fjórar dætur, Guðrúnu Freyju 19, Erlu Vinsý 18, Birtu Rós 6 og Ástu Sól 5. Ég man enn eftir deginumþegar Inga fæddist, þá kom föður amma mín til okkar, enInga fæddist auðvitað heima eins og var á þeim árum… ég man líka að eftir því að ég var nú ekkert yfir mig hrifin af þessum krakka, enda hafði ég verið yngst í fimm ár, en það breyttist nú með árunum. En í dag hef ég verið að hugsa aftur og þegar ég fór að velta fyrir mér hvað hún yrði gömul í dag ætlaði ég ekki að trúa því að nú er bara eitt ár í stórafmæli hjá litlu systir…. skrítið ég hef þó ekkert elst…finnst mér. Til hamingju með daginn elsku Inga. 17. janúar 2006
Í dag kl. 17.00 hófst vinnufundur í meirihluta bæjarstjórnar. Fundurinn stóð til kl. 21.00 16. janúar 2006
Kynningarfundur var haldinn í dag kl. 13.00 í Grænumörk á Selfossi um Stefnumörkun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2006 – 2010. Stofnunin hefur sett sér gildi, Þjónusta, samstarf, þekking. Stefnumörkunin er metnaðarfull og gengur út á að gera þjónustuna meiri og betri. Stefnt er að því að þróuð verði göngudeildarþjónusta samhliða aukinni sérfræðiþjónustu á svæðinu. Við lok stefnumótunartímabilsins er stefnt að því að öldrunarlækningar verði hornsteinn sjúkrahúsþjónustunnar og að geðheilbrigðisþjónustan verði öflug. Aðgangur íbúa á Suðurlandi að öldrunar-, kvennsjúkdóma-, geð-, almennum skurð-, og barnalækningum aukistu um helming. Þessi sérgreinaþjónusta verði byggð upp sem göngu – og dagdeildarþjónusta. Góður fundur hjá Heilbrigðisstofnun og mjög fróðlegur. 16. janúar 2006
Í kvöld kl. 20.00 skrapp ég á fund hjá ITC deildinni Jóru og hitti stelpurnar sem með henni starfa. Ég var félagi í Jóru í 11 ár. Núna starfa með deildinni 16 félagar og eru þær með skemmtilegt og fræðandi starf. Starfið gegnur út á að styrkja einstaklinginn í, framkomu, upplestri, ræðumennsku, fundarstjórn og fleiru. Deildin er umsjónardeild fyrir landsþing sem halda á í vor á Hótel Örk. Deildin hefur innanborðs bæði landsforseta og kjörforseta (viðtakandi landsforseti). Góður fundur og skemmtilegur félagskapur. Þann 6. febrúar næst komandi verður kynningarfundur hjá deildinni og eru allir velkomnir á hann, deildin fundar fyrsta og þriðja mánudag í mánuði í Selinu við Engjaveg og hefjast fundirnir kl. 20.00 15. janúar 2006
Við ræddum saman í einu fundarhléinuá Bæjarstjórnarfundinumí dag, ég,Björn Gíslason vara bæjarfulltrúi, Guðmundur Kr. Jónsson formaður bygginga og skipulagsnefndar og Þorvaldur Guðmundsson formaður bæjarráðs, kom það fram hjá Birni að sennilega væri þetta fjölmennasti fundur sem haldinn hafi verið, en gestir vorueitthvað á þriðja tuginn. Björn mundi eftir tveimur öðrum fjölmennum fundum á þeim árum sem hann var í bæjarstjórn, en eitt sinn höfðu leikskólabörn komið og í annað sinn nemar úr Tónlistaskóla Árnesinga. 15. janúar 2006
Í dag kl. 17.00 verður Bæjarstjórnarfundi sem frestað var á föstudaginn framhaldið. Til umræðu er tillaga að nýju aðalskipulagi sveitarfélagsins. 15. janúar 2006
Bókun: Aðalskipulag Sveitarfélagsins Árborgar 2005-2025 er nú fullfrágengið til Skipulagsstofnunar ríkisins og þar með staðsetning á nýrri brú á Ölfsá yfir Efri Laugardælaeyju. Fullt samkomuleg er um staðsetningu brúarinnar milli Hraungerðishrepps og Sveitarfélagsins Árborg einnig hefur Vegagerð ríkisins lagt áherslu á þetta brúarstæði um áratuga skeið. Af þessu tilefni skorar bæjarstjórn Árborgar á 15. janúar 2006
Ein af nýjungunum í skipulagi sveitarfélagins er Búgarðabyggð. Búgarðabyggð er staðsett í útjaðri Selfoss, í Háreyrarmýri ofan Eyrarbakka, í Stokkseyrarmýri ofan Stokkseyrar, landsspilda er í Kaldaðanesi og í Stokkseyrarseli. Búgarðarbyggð er skilgreind með öðrum hætti en landbúnaður, ekki er gert ráð fyrir að landbúnaði með framleiðslurétti en þó er heimiluð atvinnustarfsemi tengd landbúnaði. 14. janúar 2006
Í dag var ég komin í vinnuna kl. 9.00. Ákveðið var fyrir jólin að þetta yrði vinnudagur á skrifstofunni. Ég þurfti síðan að fara á fund vegna bæjarmálanna kl. 11.00 sem stóð fram til kl. 16.00. Þá fór ég í hesthúsið með Jónasi, við mokuðum, kemdum, greiddum og gáfum síðan hestunum okkar. Áttum síðan rólegt kvöld í faðmi fjölskyldunnar. 13. janúar 2006
Reglulegur bæjarstjórnarfundur var í dag kl. 17.00 og var honum frestað til sunnudagsins næstkomandi kl. 17.00. Til afgreiðslu í dag var meðal annars tillaga að aðalskipulagi sveitarfélagsins til næstu 20 ára. Fyrir fundinum liggur lokatillaga skipulagsins sem send verður til Skipulagsstofnunar ríkisins. Í tillögunni er búið að taka tillit til margra athugasemda sem sendar voru frá íbúum á auglýsingarferli þess. Fulltrúar sjálfstæðismanna í bæjarstjórn lögðu fram breytingartillögur við skipulagið sem tóku til viðarmikilla þátta þess. Ekki var möguleiki fyrir meirihluta bæjarstjórnar að afgreiða tillögurnar án skoðunar þar sem þær komu fyrst fram á fundinum. Þess vegna var fundi frestað til að geta afgreitt málið með samkvæmtgóðri stjórnsýslu. Skipulagið var í aulýsingarferli í 6 vikur og á þeim tíma gerði minnihlutinn engar athugasemdir en það gerðumargir íbúar sveitafélagsins. 13. janúar 2006
Forseti bæjarstjórnar Árborgar, formaður bæjarráðs og bæjarstjóri heiðruðu í gær á fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlans á Selfossi sjö þúsundasta íbúa sveitarfélagsins og foreldra hans. Um er að ræða dreng frá Eyrarbakka, sem fæddist kl. 06:30 fimmtudaginn 12. janúar. Hann var 16 merkur og 52 cm. Foreldrar hans eru Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Björn Emil Jónsson, Búðarstíg 10 á Eyrarbakka. Herborg Pálsdóttir, ljósmóðir frá Eyrarbakka tók á móti drengnum. Fjölskyldunni heilsast vel. Þau fengu fallegan blómvönd og peningaupphæð fyrir drenginn frá Árborg í tilefni af tímamótunum. Hjartanlegar hamingjuóskir til foreldra og fjölskyldu með litla drenginn. Megi heilladísir vaka yfir litla drengnum og fjölskyldu hans. 12. janúar 2006
Veðurguðirnir eru nú í undarlegu skapi þessa fyrstu daga ársins. Það er ýmist hláka eða snjór…hiti að morgni en frost að kveldi. Í gærmorgun var snjór og frost, en í morgun hiti og asahláka. Leiðindaveður fyrir útigangshross. Annars hefur dagurinn verið ágætur hjá mér, mikið er að gera í vinnunni þessa daga. Launaframtöl og launamiðar framundan, síðan skattskil einstaklinga og rekstraraðila. Við höfum verið að glíma við bilanir í tölvukerfinu á skrifstofunni síðan í lok desember…. á hverjum degi hætta kerfin að virka og allt fer í strand… þetta hefur verið bagalegt ástand á stundum… og margir klukkutímar hafa liðið undanfarið og við fjórar höfum beðið eftir að viðgerð ljúki. Ég er nú að vona að síðasta uppákoman í morgun sé endapunkturinn á þessu öllu saman. 11. janúar 2006
Bæjarstjórnarfundi sem vera átti í dag var frestaðþar til á föstudaginn nk. kl. 17.00.Gögn vegna aðalskipulags sem ganga á fráá þeim fundi voru ekki öll tilbúin í tíma. Enbæjarstjórnafund skal boða með tveggja daga fyrirvara og skulu þá öll gögnfylgja fundarboði. 10. janúar 2006
Seinni partinn í dag var ég ásamt Guðmundi Stefánssyni oddvita í Hraungerðishreppi í svæðisútvarp Suðurlands. Umræðuefnið var, sameining í Flóa, Fjallið okkar „Ingólfsfjall“ og námuvinnsla þar ogframboðsmál Frams óknarmanna. Alltafgaman að vera með Guðmundi í umræðum, enda er hann heiðarlegur og skemmtilegur viðmælandi. 10. janúar 2006
Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla að Erlurima 1 Selfossi. Heiðdís Gunnarsdóttir leikskólafulltrúitók skóflustunguna og strax í kjölfarið var hafist handa við að grafa fyrir byggingunni. 10. janúar 2006
Í dag kl. 17.00 var vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar í Ráðhúsinu og stóð hann til kl. 20.00 10. janúar 2006
Í morgun kl. 8.00 átti ég fund í setri Egils í Ráðhúsinu með Ásmundi Sverri og Einari Njálssyni, fundurinn stóð til kl. 10.15. Á fundinum vorum við að yfirfara erindisbréf nefnda sem þarfnast lagfæringar og samræmingar við stjórnsýsluna. 9. janúar 2006
Íþrótta og tómstundastarf blómstrar í Árborg og margt hefur áunnist á kjörtímabilinu. Glæsilegt íþróttahús er risið við Fjölbrautarskóla Suðurlands. Það hefur gjörbreytt aðstöðu til íþróttaiðkunar í Árborg. Húsið hýsir einnig starfsemi Fræðslunets Suðurlands sem rekur metnaðarfulla starfsemi. Gervigrasvellir hafa verið settir niður við Vallaskóla, Sunnulækjarskóla og við skólahúsið á Stokkseyri. Stefnt er því að 9. janúar 2006
Þegar ég lít yfir farinn veg, eða frá því á vormánuðum árið 2002 skil ég ekkert í því hvernig þessi tími hefur liðið svona hratt, kjörtímabilið er rétt að klárast. Að koma inn í bæjarmálin eins og ég gerði á þessum tíma óreynd með öllu í pólitík er ekki létt verk. Þegar maður kemur 8. janúar 2006
Þennan dag notaði ég til að líta í bók. Ég hef verið að lesa bækur eftir Arnald Indiðason, fyrst Kleifarvatn og síðan Dauða rósir. Báðar þessar bækur komu mér á óvart, hef ekki áður lesið verk Arnaldar. Góðar bækur sem ég mæli með. 7. janúar 2006
Í dag laugardag er annar í aðfangadegi hér hjá okkur í Kringlumýrinni. Erlingur okkar og Sif voru að koma heim frá New York í morgun og voru búin að panta jólamat með fjölskyldunni. Gústaf, Guðbjörg, Erlingur, Sif og Marinó Geir voru með okkur í mat, svo komu afarnir og ömmurnar í kvöldkaffi. Notalegt kvöld með fjölskyldunni. 6. janúar 2006
Þá er nú síðasti jóladagurinn runninn upp. Ekki er nú veðrið gott til að kveikja í brennu eða að skjóta upp flugeldum. Enda var öllu slíku frestað til morguns. 6. janúar 2006
Unglingadansleikur var haldinn í kvöld fyrir 8, 9 og 10 bekk grunnskólanna í Árborg. Dansleikurinn fór fram á Hótel Selfoss og spilaði hljómsveitin Uppþot fyrir dansi. Upphitunarband var Bygg, en báðar hljómsveitirnar eru skipaðar nemendum úr Vallaskóla. Við vorum svo heppin að fá að koma að þessu balli í gæslu til aðstoðar Félagsmiðstöðinni. Gaman að sjá hve unga fólkið okkar er fallegt og prútt á svona samkomum. Við getum verið stolt af æsku Árborgar. 5. janúar 2006
Mikilvægur samningur um leigu Múla fyrir Tónlistaskóla Árnesinga var staðfestur í Bæjarráði Árborgar í dag. Húsið stendur við Eyraveg og er í eigu Sigurðar Karlssonar. Sigurður er okkur íbúum Árborgar góðkunnur meðal annars fyrir hans miklu söngrödd sem hefur ómað með Karlakór Selfoss síðustu ár, bæði í dúettsöng og kórsöng. Tónlistaskólinn mun fá allt húsið undir starfsemi sína eða um 770 fermetra alls. Starfsemi skólans er metnaðarfull og ásókn nemenda í skólann alltaf að aukast. Samþykkt var á síðasta fundi Héraðsnefndar að fjölga um eitt stöðugildi við skólann til að koma til móts við biðlista sem eru mestir í Árborg. Framtíð skólans er björt í nýjum húsakynnum. Stefnt er að því að skólanum verði slitið í vor í nýjum tónleikasal skólans í Múla. 3. janúar 2006
Fyrsti vinnufundur meirihlutans var í dag kl. 17.00 og stóð til 19.00 2. janúar 2006
Seinnipartinn í dag brunuðum við Jónas til að ná í hrossin okkar og koma þeim í hús hér á Selfossi. Við byrjuðum á að fara í Austurkot og sækja nýja hestinn minn sem ég hef ákveðið að skýra „Ljúfling“ síðan fórum við að Stóru Reykjum til Gísla stórbónda og sóttum, Sól, Stjörnu, Skörung og Sóma. Alls erum við með fimm hross í okkar húsi og einn graðhest hjá Magnúsi frænda. 1. janúar 2006
Ykkur öllum sem hér lítið við óska ég gleðilegs ár og þakka fyrir liðna árið. 31. desember 2005
Pólitíska árið hefur verið mjög annasamt hjá bæjarfulltrúum í Árborg eins og reyndar kjörtímabilið allt. Þegar við komum að voru mörg mál sem taka þurfti á og byggja upp víða. Má þar til dæmis nefna nýjan grunnskóla í Suðurbyggð, sniðræsi, uppbygging íþóttamannvirkja og fleira og fleira. Margt hefur verið gert á síðustu árum til hagsbóta fyrir íbúana.
31. desember 2005
Við Kringlmýringar óskum ykkur öllum gleðilegs ár og óskum þess að nýja árið verði ykkur hamingjuríkt og heilladrjúgt. Með kærri þökk fyrir liðna tíð. 30. desember 2005
Þegar nálgast jól og áramót förum við að huga að því að taka inn hrossin okkar. Síðustu daga hefur Jónas verið að ditta að hesthúsinu og gera það klárt. Við fórum seinnipartinn í lokatiltekt og Hróbjartur kom með heyrúllu frá Gísla stórbónda á Stóru Reykjum, en hann sér okkur fyrir heyi í hrossin í vetur. Til stendur að fara í fyrramálið eða á nýársdag og sækja hrossin. Við byrjum á að taka inn fimm hross, þrjá hesta og tvær hryssur. Fjögur þeirra eru á Stóru Reykjum en nýjasti gripurinn í hópnum er í Austurkoti. En í haust keyptum við hest, reiðhest handa mér, 9 vetra jarpstjörnóttann klár. Nú hlakkar manni svo til að taka hrossin á hús þegar maður hefur aftur eignast reiðhest sem er eins og hugur manns. Vinir okkar Hróðný og Hróbjartur er með okkur í hesthúsi með sína reiðhesta. Gott að geta hjálpast að í umhirðunni þegar mikið er að gera hjá öllum. Þau verða með þrjú til fjögur hross þannig að í heildina verða þetta 9 hestar á húsi í vetur. Við eigum líka graðhest í sameign með Magnúsi frænda mínum sem hann er að temja. Efnisfoli undan Sóley, húner undanSunnu og Leist,og Töfra frá Selfossi. 29. desember 2005
Hlynur Geir Hjartarson, kylfingur í Golfklúbbi Selfoss, kjörinn íþróttamaður Árborgar 2005 á uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar í kvöld. Í öðru sæti var Ágústa Tryggvadóttir,frjálsíþróttakona,og í því þriðja Linda Ósk Þorvaldsdóttir, fimleikakona. Gunnar Egilsson, pólfari, var einnig heiðraður á hátíðinni af Bæjarstjórn Árborgar. Gunnar vann það einstaka afrek að fara á Suðurpólinn á 29. desember 2005
Á fundi bæjarstjórnar Árborgar þann 14. desember sl. var samþykkt tillaga skólanefndar grunnskóla Árborgar um stofnun menningarsjóðs fyrir 5 – 16 ára börn. Sjóðnum er ætlað að kynna menningarstarfsemi í sveitarfélaginu og stofnunum tengdu því. Menningarsjóður fyrir börn. Á fundi bæjarstjórnar Árborgar þann 14. desember sl. var samþykkt tillaga skólanefndar grunnskóla Árborgar 29. desember 2005
Síðustu dagar ársins eru að fljúga frá okkur. Þegar maður hugsar til baka þá voru árin ekki svona fljót að líða þegar maður var barn. Núna finnst manni eins og árin fljúgi frá manni hvert af öðru. Gott er að setjast niður á áramótum og líta yfir farinn veg. Hver veit nema ég setji einhverjar hugleiðingar um það hér inn á vefinn á næstu dögum. Annars hef ég átt góða daga í þessari viku, rólega og afslappaða. Hef mætt á nokkra fundi, aðeins í vinnuna, lesið í góðum bókum og notið samveru við fjölskylduna. Einnig hefur verið spennandi að fylgjast með ferðalaginu hjá Erlingi og Sif um Karabískahafið á blogginu þeirra, það hefur fært þau nær okkur yfir hátíðirnar. 28. desember 2005
Aukafundur var í Bæjarstjórn í dag. Vorum við að samþykkja að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði úr 0.40% í 0.37% eða um 7,5 prósent. Einnig var samþykkt að ákvörðun um breytingu á afslætti til handa eldriborgurum og örorkulífeyrisþegum frá því 14.des mundi líka gilda fyrir holræsagjald. Lækkun á álagningu fasteignagjalda á hesthús mun lækka. Einnig var samþykkt stefnumótun bæjarstjórnar um háhýsi í miðbæ Selfoss. 28. desember 2005
Jóladagarnir eru liðnir og komið nær áramótum. Aðfangadagskvöldið var notalegt í faðmi fjölskyldunnar þó að við finndum vissulega fyrir því að hafa ekki Erling og Gústaf heima hjá okkur. Skítið hvað manni finnst allt eigi að vera óbreytt um jólin, allir eiga að vera á sínum stað og með sínar hefðir. Mér varð hugsað til þess á aðfangadagskvöld hvernig foreldrum mínum hlýtur að hafa liðið fyrstu jólin sem ég var ekki heima, svo og systkini mín.Á jóladaginn hittist stórfjölskyldan mín, foreldrar, systkini, makar, börn og barnabörn hjá Önnu Stínu systir hér á Selfossi. Við höfum gert það um nokkurra ára skeið að skiptast á systkinin að hafa jólaboð fyrir fjölskylduna. Annar dagur jóla var nú mikill leti dagur hjá okkur Jónasi, við lágum í rúminu og lásum. Ég var svo heppinn að þessi elska gaf mér allar bækurnar um Harry Potter sem mig hefur alltaf langað svo í. Nú er ég að lesa Harry Potter og Blendingsprinsinn… og lofar hún góðu. 28. desember 2005
Í gær áttum við Jónas 19 ára brúðkaupsafmæli. Ótrúlegt hvað tíminn líður fljótt mér finnst eins og við höfum verið að gifta okkur í fyrra…. Við buðum Lilliendahls fjölskyldunni til okkar í jólaboð. María tengdamamma sagði uppjólaboðinu nú fyrir jólin og tókum við þá ákvörðun að við skyldum halda boðÞannig aðstórfjölskyldan mundi hittast. Upplagt var að nýta tækifærið og hafaboðið á brúðkaupsafmælisdeginum okkar. 24. desember 2005
Við Kringlmýringar óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Megi nýja árið verða ykkur hamingjuríkt og heilladrjúgt. 24. desember 2005
Nú er aðfangadagurinn runninn upp með allan sinn sjarma. Á aðfangadag er ég að dunda mér í eldhúsinu svona frá hádegi. Við höfum alltaf þríréttað á aðfangadagskvöld. Við byrjum á rækjukokteil, þá innbakaður hamborgarahryggur (í rúgdeigi) með brúnuðum kartöflum og tilheyrandi, desert höfum við Emmess ís með heimalagaðri súkkulaðisósu. Þetta eru fyrstu jólin sem að stóru strákarnir eru ekki heima. Erlingur og Sif unnusta hans eru á siglingu niður í Karabískahaf, þau gera ráð fyrir að vera á Jamaika í dag, Gústaf ætlar að vera með Guðbjörgu unnustu sinni hjá foreldrum hennar á Hlaðavöllunum. Við eru þá þrjú eftir, foreldar Jónasar, Gústaf og María, ætla að koma og vera með okkur í kvöld. 23. desember 2005
Þorláksmessa er einn af þessu góðu dögum sem fylgja jólunum, hún er að mörgu leiti orðiðn hefðbundin hjá okkur. Þá er lokið við jólaundirbúningin helst fyrri hluta dags til að eiga kvöldið til að keyra út jólagjafir og líta við hjá vinum og fjölskyldu. Ég fór í hefðbundna jólaklippingu eins og ég hef gert síðustu ár. Klárað að kaupa inn og pakka inn gjöfunum. Við Jónas fórum í skötuveislu hjá nágrönnum okkar þeim Pétri og Gunný eins og við höfum gert sl. þrjú ár. Þar er snædd vestfirsk skata og hnoðmör, hún var vel kæst og góð þetta árið. 22. desember 2005
Nú er runninn upp langþráður dagur hjá stelpunum sem vinna hjá mér. Ég held að þeim hlakki til allt árið að fá frí með fjölskyldunni um jólin. Fríið hófst eftir hádegi í dag og stendur til 2. janúar. Dagurinn byrjaði nú á því að tölvukerfi skrifstofunnar hrundi og notuðum við daginn í að taka til, ganga frá gögnum og gera jólahreingerninguna. Þar sem ekkert var hægt að gera sökum tölvuskorts sendi ég stelpurnar í jólafríið kl. 13.30. 21. desember 2005
Í dag eru bara þrír dagar til jóla og sýnist mér að fundarhöldum fyrir jól sé lokið ef ekkert óvænt kemur upp á . Við stelpurnar í vinnunni erum að vinna upp af skrifborðunum okkar til að geta farið í jólafrí. En skrifstofan verður lokuð frá 22. desember til 2. janúar. Á tímabili leit út fyrir að ekki yrði af því í ár að við tækjum frí milli jóla og nýárs, en vel hefur unnist síðustu daga þannig að við förum í jólafrí. 20. desember 2005
kl. 17.00 var vikulegur vinnufundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. Góður fundur sem stóð til 19.40. 19. desember 2005
Í þessari viku eru að mér sýnist ekki mjög margir fundir hjá mér. Í dag hittumst stjórnarmenn Árborgar í SASS og fórum yfir síðasta fund og lögðum línurnar fyrir undirbúing á næsta stjórnarfundi. Á morgun hittumst við Framsóknarmenn og undirbúum okkur fyrir vikulegan meirihlutafund seinnipartinn. Ekki hafa fleiri fundir verið boðaðir þessa viku. En í næstu viku eru einhverjir fundir,allavega á þriðjudag og miðvikudag. 19. desember 2005
Erlingur minn og Sif fóru í loftið núna kl. 17.00 til New York. Í dag eru einungis fimmdagar til jóla og margt er nú eftir að gera á heimilinu. Ég á til dæmis eftir að kaupa nær allar jólagjafirnar en kom þó jólakortunum í póst í morgun. Við tókum laugardagskvöldið undir jólakortaskriftir við kertaljós og jólatónlist. Síðan á ég eftir að skreppa á Hellu til mömmu og pabba líta á úrvalið í búðinni við ána hjá mömmu og sækja jólatilfinninguna sem maður fann alltaf sem barn með foreldrum sínum. 19. desember 2005
Á laugardagskvöldið 17. desember fórum við Jónas ásamt öðrum foreldrum drengjanna sem spila í hljómsveitinni Uppþoti í Hvítahúsið um miðnættið. Drengirnir okkar sem eru 13, 14 og 15 ára voru upphitunarband fyrir Skítamóral. Þar sem þeir eru undir lögaldri fórum við öll með þeim og vorum meðan þeir spiluðu. Strákarnir stóðu sig frábærlega vel og mér sýnist þeir geta átt mikla möguleika í undanúrslitum SAMFÉS keppninar. 18. desember 2005
Við ætlum að bruna í borgina og kyssa börnin okkar sem eru að fara til útlanda á morgun. Erlingur og Sif fljúga á morgun til New York, fara þaðan á skemmtiferðaskip niður til Bahamas. Ævintýri fyrir þau en söknuður í hjarta foreldra og systkina þó að ævintýrisins sé notið með þeim. 17. desember 2005
Þessi laugardagur var nýttur í þáguheimilisins, en ekki hafa gefist margar stundir undanfarið til að undirbúa jólahátíðina heima fyrir. Við tókum daginn í það hjónin að skreyta, setja upp jólaljós og strauja jóladúkana, ásamt smá tiltekt sem fylgir svona stússi. Við settum upp jólatréð og ljósin á það, en eigum samt eftir að skreyta það sem við gerum á morgun. Við höfum haft það fyrir vana síðustu ár að skreyta jólatréð viku fyrir jól og njóta þess á síðustu dögum jólaaðventunnar. Lítið verður úr jólabakstri þetta árið sýnist mér… en jólin koma fyrir því. Aðal málið er að týna ekki jólabarninu í hjarta sér. Jólin eru yndislegur tími sem maður á að njóta í faðmi fjölskyldunnar ef það er mögulegt. 17. desember 2005
Við fórum í Iðnó í gærkvöldi og sáum leikritið Ég er mín eigin kona, sem er einleikur hjá Hilmi Snæ. Þvílíkur snillingur sem hann er drengurinn. Hann bregður sér í ótal hlutverk í sýningunni sem er há drama með miklum húmor. Ég mæli eindregið með þessari sýningu. 16. desember 2005
í kvöld ætlum við Jónas ásamt vinum okkar Hróðnýu og Hróbjarti að fara í Iðnó og sjá leikritið með Hilmi Snæ „ég er mín eigin kona“. Leikritið hefur hlotið góða dóma. Framundan góð kvöldstund með góðum vinum. 15. desember 2005
Þetta er fundarlaus dagur. Mikið er að gera á skrifstofunni 15. hvers mánaðar. Þá erum við að ganga frá launagjöldum fyrir fyrirtæki og einstaklinga með rekstur. Einnig hófst í dag breyting á húsnæðinu sem ég samleigi með Hönnun. Stækka á húsnæðið um nær helming og byrjað var í dag að rífa niður veggi til að sameina hæðina. Atli Vokes smiður sér um verkið og var mikið brambolt á honum í dag. Mikið líf hefur færst í húsið síðan að tískuvöruverslunin Lindin flutti á neðrihæðina. 14. desember 2005
Í kvöld fórum við í jólamat og jólastund með Oddfellow bræðrum Jónasar og mökum þeirra. Yndisleg stund í góðum hópi. 14. desember 2005
Bæjarstjórnarfundur er í dag kl. 17.00 í Ráðhúsi Árborgar. Þar fer meðal annars fram seinni umræða um fjárhagsáætlun 2006 og fyrsta umræða um þriggja ára áætlun. Bæjarstjórnarfundurinn stóð til kl. 19.30 í kvöld. Á þessum fundi var tillaga skólanefndar um kynningu á menningarstarfsemi í heimabyggð samþykkt. Einnig var samþykkt breyting á stofni í afslætti eldriborgara og öryrkja af fasteignaskatti. Kynnt var stefnuyfirlýsing bæjarstjórnar um hæð húsa á miðjusvæði á Selfossi. Seinni umræða var um fjárhagsáætlun og fyrri umræða um þriggja ára áætlun. 13. desember 2005
Erlingur sonur okkar og Sif unnusta hans komu í heimsókn seinnipartinn í dagog voru með okkur í kvöldmat. Þau komu til að kveðja okkur en þau fljúga til New York á mánudaginn, þar hitta þau mömmu hennar og systkini. Þau ætla að sigla frá New York til Bahamas og eyða jólum og áramótum um borð í skemmtiferðaskipi. Þetta verða fyrstu jólin sem að Erlingur er ekki heima með okkur og er það undarlegt tilfinning blönduð söknuði sem maður upplifir. En þetta er víst gangur lífsins að börnin fljúga úr hreiðrinu. 13. desember 2005
Í dag var vikulegur vinnufundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. Stóð fundurinn til rúmlega 19.00 12. desember 2005
Mánudagurinn 12. desember, Skólanefndarfundur. Í dag kl. 17.10 er fundur í skólanefnd grunnskóla Árborgar. Aðalefni fundarinn er kynning á deildinni sem reka á í Gaulverjabæjarskólanum. Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður Skólaskrifstofu Suðurlands kemur á fundinn til okkar og fer yfir starfsemi þessarar stofnunar
Skólanefndarfundurinn stóð til kl. 19.00 í kvöld. Góð umræða var 11. desember 2005
Hljómsveitin Uppþot spilaði undir í forkeppni í söngvakeppni SAMFÉS á fimmtudaginn var í Hvítahúsinu. Marinó Geir okkar spilar þar á trommur, Óskar Hróbjarts á bassa og Fannar Magnússon á gítar. Þeir eru allir nemar í Vallaskóla. Þeir tóku að sér að spila undir hjá öllum söngvurunum, flott hjá þeim strákunum. Söngvarinn sem vann er Guðmundur Þórarinsson. Þannig að þeir eru allir á leið í næstu umferð í SAMFÉS. 10. desember 2005
Í kvöld fórum við í matarboð hjá Gísla og Jónínu á Stóru Reykjum ásamt þeimHróðný og Hróbjarti og stóru strákunum Marinó Geir og Óskari Erni. Auðvitað var á borð borið dásemdar íslenskt lamb eins og bændum einum sæmir. Frábært kvöld í vinahópi. 10. desember 2005
Jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli komu til byggða í dag. Mikið margmenni var í miðbæ Selfoss eins og venjulega þegar þeir koma. Veðrið var milt og þurrt á meðan að skemmtunin fór fram. Jólasveinarnir hafa greinilega verið á galdranámskeiði því að einn þeirra var hífður í körfubíl slökkvuliðsins upp á topp trésins með „eldprik“ sem hann sló í tréð og þá kviknaði á því, ótrúlegir þessir sveinar. Jólatréð í ár er glæsilegt. 10. desember 2005
Á sl. ári byrjuðum viðkonurnar í Kvennaklúbbi Karlakórs Selfoss á því að selja kakó og vöfflur í Tryggvaskála á innkomuhátíð jólasveinanna og þegar kveikt er á jólatrénu við Pylsuvagninn. Við ákváðum að endurtaka leikinn í ár og mikið var þetta skemmtilegur dagur. Við byrjuðum að undirbúa kl. 12.00 og hófum söluna um kl. 14.00. Á tímabili var löng biðröð og Tryggvaskáli var fullur af fólki. Skemmtilegur dagur með stelpunum í Kvennaklúbbnum og ykkur öllum. 9. desember 2005
Héraðsnefndarfundurinn stóð til kl. 16.00 í dag. Ágætur fundur með málefnalegum umræðum. Að honum loknum fór ég heim eftir stranga viku í fundarhöldum og slakaði á í faðmi fjölskyldunnar. 9. desember 2005
Í dag kl. 9.00 hefst fundur í Héraðsnefnd Árnesinga að Þingborg. Áætlað er að fundurinn standi til kl. 15.00. Á þessum fundi verður gengið frá fjárhagsáætlunum stofnanna semreknar eru af Héraðsnefnd, en það eru Tónlistaskóli Árnesinga, Listasafn Árnesinga, Byggðasafn Árnesinga og Héraðsskjalasafn Árnesinga. 8. desember 2005
Þessa dagana er mikið að gera hjá okkur stelpunum á skrifstofunni. Við erum orðnar fjórar sem störfum hér. Auk mín eru það, Magný Rós Sigurðardóttir, Guðbjörg Stefánsdóttir og Anna Steinþórsdóttir sem er nýbyrjuð, búin að vera í tvær vikur. Við erum að keppast við að klára sem mest sem komið er í hús svo að við getum farið í jólafrí. Ég hef frá upphafi lokað milli jóla og nýárs, við mætum svo til starfa aftur fyrsta virka dag í janúar, við höfum yfirleitt unnið 22 des. en haft síðan lokað. En nú er ég ekki viss um að ég geti haft lokað þar sem að mikið er af verkum sem þarf að klára fyrir áramót. En við keppumst við þessa dagana þannig að það er ekki öll nótt úti enn. 8. desember 2005
Starfskjaranefnd sveitarfélagins fundaði í dag kl. 11.30 og stóð fundurinn til kl. 13.30. 7. desember 2005
Á bæjarstjórnarfundinum var fyrsta umræða um fjárhagsáætlun 2006 og samþykkt var endurskoðuð jafnréttisstefna. Stefnan er vel unnin af vinnuhópnum og í henni er áætlun í 5 kafla um hvernig hún á að vera virk. Gert er ráð fyrir að viðurkenning sé veitt árlega þeirri stofnun sveitarfélagsins sem best stendur sig í jafnréttismálum. 7. desember 2005
Ég fór í morgun í heimsókn í Vallaskóla ásamt fulltrúum úr skólanefndinni. Við byrjuðum á að skoða þróunarverkefni í 1 og 2 bekk í Sandvík, þar er verið að þróa nýjar aðferðir í kennslu. Unnið er …… 7. desember 2005
Í dag er Bæjarstjórnarfundur í Tryggvaskála kl. 17.00 og fer fram fyrsta umræða um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir 2006. Einnig veður lögð fyrir endurskoðuð jafnréttisstefna sveitarfélagsins. 7. desember 2005
Í dag kl. 8.00 fer skólanefnd Grunnskóla Árborgar í heimsókn í Vallaskóla. Eyjólfur skólastjóri tekur á móti okkur, sýnir okkur skólann og fer yfir starfsemina. Meðal annars ætlum við að kynnast þrónunarverkefni skólans í Íslensku hjá 10 bekk sem nefndist Vallaskólaleiðin. Einnig ætlum við að kynna okkur hvernig gengur með breytingarnar sem gerðar hafa verið á yngsta stigi. Endum síðan á að borða hádegismat í mötuneyti skólans. 7. desember 2005
Þriðji fundur fjárhagsnefndar Héraðsnefndar Árnesinga erí dagkl. 13.00 í Ráðhúsi Árborgar. Fundurinn gekk vel og lauk honum rúmlega klukkan rúmlega þrjú. 6. desember 2005
Í kvöld kl. 20.00 var jólafundur Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss. Kvennaklúbburinn hittist alltaf fyrsta þriðjudag í mánuði frá nóvember til maí. Þetta er skemmtilegur hópur kvenna sem er gaman að vera með. 6. desember 2005
Í hádeginu í dag var annar fundur fjárhagsnefndar Héraðsnefndar Árnesinga. Í dag fórum við yfir fjárhagsáætlanir Tónlistaskóla Árnesinga og Héraðsskjalasafns Árnesinga. Forstöðumenn beggja stofnanna komu á fund nefndarinnar. 5. desember 2005
Í dag er greiðsludagur virðisaukaskatts hjá rekstraraðilum, á þessum degi er mikill erill hér á skrifstofunni og margt um manninn. 5. desember 2005
Héraðsnefnd Árnesinga er með fund á föstudaginn kemur. Fjárhagsnefnd Héraðsnefndar er byrjuð að undirbúa fundinn og var fyrsti fundur nefndarinnar í dag kl. 11.00 og stóð til 13.30. Farið var yfir fjárhagsáætlanir Listasafns Árnesinga og Byggðasafns Árnesinga, forstöðumenn safnanna komu á fund nefndarinnar og gerðu grein fyrir áætlunum safnanna. 4. desember 2005
Annan sunnudag í aðventu höfum við notað til lestrar hjónin. Jónas er að lesa undir próf sem hann fer í kl. 9.00 í fyrramálið í Háskólanum í Reykjavík. Ég hef í haust verið að lesa bókaflokkinn Börn jarðar eftir Jean M. Auel, fyrst las ég Þjóð bjarnarins mikla, síðan Dal hestanna, næst Mammútaþjóðina og nú er ég að lesa Seið sléttunnar. Gullgóðar bækur. 3. desember 2005
Í dag höfum við notið samveru við stórfjölskylduna mína, foreldra, systkini, maka og börn. Við hittumst hér í Kringlumýrinni eftir hádegið og fylgdum síðan móður mágs míns til grafar í dag. Í gærmorgun fylgdum við kærri vinkonu sem hafðiannast um elsta drenginn okkará fyrstu árum hans meðan við stunduðum vinnu. Manni verður hugsað til þess á stundum sem þessum hve algengt það er orðið í hraða nútímans að fólk gefur sér ekki tíma til að njóta stundarinnar með vinum og ættingjum. Síðan renna upp stundir þar sem allir hittast en því miður er það oft þannig að ástæðan er sú að verið er að fylgja til grafar samferðarfólki með sorg í hjarta. Þessir síðustu dagar hafa verið mörgum íbúanum í Árborg erfiðir, margir hafa átt um sárt að binda.Til grafar hafa verið bornir fimm rótgrónir og mætir borgarar sem munu skilja eftir skarð meðal okkar sem eftir stöndum. Íbúar sem lifað hafa mestu breytingar sem verið hafameðal þjóðarinnar og lagt hafa grunninn að því samfélagi sem við lifum í. Megi algóður guð styrkja alla þá sem um sárt eiga að binda 3. desember 2005
Ég fór með starfsfólkið á skrifstofunni ásamt Torfa og starfsmönnum Hönnunarog mökum okkar allra í jólahlaðborð að Hótel Flúðum í gærkvöldi, við fengum hótelherbergi og gistum. Við vorum komin upp að Flúðum um kl. 17.30, bókuðum okkur inn og skoðuðum aðstæður. Herbergin á hótelinu er mjög fín, rúmgóð og hlýleg. Hótelið allt er notaleg og smekklega búið að öllum hlutum. Við fengum til afnota setustofu á ganginum þar sem við hittumst fyrir mat. Allir mættu í sínu fínasta pússi og glatt var á hjalla. Við gengum í veislusalinn upp úr 19.30 og settumst að borðum. Ég verð nú að segja „þvílík snilld“ sem maturinn á hlaðborðinu var og borðvínið sem okkur var borið, rauðvín frá Argentínu. Þjónustan alveg stórkostleg. Það er alveg ljóst að rekstraraðilar Hótel Flúða eru metnaðarfullir og leggja allt undir til að gera viðskiptavininum hátt undir höfði. Ég mæli með því að fólk skreppi upp að Flúðum, komi við á Hótel Flúðum og njóti þjónustu og matar. Hafið hjartans þökk fyrir frábæra þjónustu, góðan mat og borðvín. 2. desember 2005
Í dag ætlum við Torfi í Hönnun að fara með starfsfólkið okkar á jólahlaðborð að Hótel Flúðum. Við ætlum að fara um upp úr kaffinu og koma okkur fyrir, en við ætlum líka að gista eina nótt. Við förum8 starfsmenn og makar, þannig að hópurinn er 14 manns. 1. desember 2005
Notkun á munn- og neftóbaki miklu meiri en annarsstaðar á landinu Á síðasta skólanefndarfundi grunnskóla Árborgar kynnti Grímur Hergeirsson niðurstöður rannsóknar um vímuefnanotkum unglinga í 8. -10. bekk í Árborg sem lögð var fyrir í mars sl Þar kemur margt sláandi fram. T.d. hækkar hlutfall þeirra sem reykja hjá öllum árgögngum 1. desember 2005
Þessi vika hefur verið róleg hjá mér í fundarhöldum. Það er reyndar mjög kærkomið að fá nokkra daga pásu frá fundum og geta verið allan daginn í vinnunni, farið síðan heim seinnipartinn og nýtt tímann með fjölskyldunni. 1. desember 2005
Jólamánuðurinn genginn í garð með öllum sínum sjarma, kertaljósum og rómantík 30. nóvember 2005
Árið 2005 er alveg að líða hjá, nóvember liðinn og jólamánuðurinn að ganga í garð.Ég hef alla tíð verið mikið jólabarn og hlakka alltaf til jólanna allt árið. Aðventan er tími fjölskyldunnar og er notalegt að sitja yfir kaffi bolla með piparkökur og njóta stundarinnar. Margt breytistþegar börnin stækka og eins þegar þau flytja að heiman. Yngsti strákurinn er orðinn einnheima hjá okkur, Marinó Geir, en hann er að verða 16 ára og mikill munur er á væntingum til jólaundirbúnings hjá 6 ára strák eða 16 ára strák. Samt er finnst mér miklvægt að halda í barnið inni í sér ognjóta aðventunnar og jólanna.Ég er að byrja að undirbúa jólin heima fyrir með því að tína upp jólaglingur, en oftast hef ég byrjað að skreyta á fyrsta sunnudegi í aðventu. Í vinnunni erum við nú frekar sein í ár að skreyta hjá okkur þar sem mikið hefur verið að gera bæði hjá okkur stelpunum og eins hjá Hönnunarmönnum, en við erum nú samt komin með jólaljós í glugga. 29. nóvember 2005
Í dag kl. 17.00 er vikulegur fundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. Við hittumst alltaf einu sinni í viku og förum yfir málin. Fundirnir standa frá tveimur tímum uppí ……tja..fjóra til fimm tíma. Fundurinn stóð til kl. 21:00 í kvöld. Góður fundur enda samstarf flokkanna gott. 28. nóvember 2005
Í dag er einn af þessum fundarlausu dögum sem detta inn öðru hvoru. En þar sem nóvember er að klárast þá fer nú aðeins að róast í kringum okkur bæjarfulltrúana. Nóvember er mikill ráðstefnumánuður, þeim fylgir gjarnan fjarverur og ferðalög, þess vegna er ósköp notalegt að pústa aðeins á eftir. 28. nóvember 2005
Í kvöld notaði ég tækifærið og skaust í bíó ásamt Jónasi og sáum við nýju Harry Potter myndina. Góð mynd, nokkuð skuggaleg á köflum gæti ég trúað fyrir yngri kynslóðina.Mérfinnst samtmörgu sleppt og margt stytt miðaðvið bókina. Góð mynd sem gaman er að sjá. 27. nóvember 2005
Á fyrsta sunnudegi í aðventu höfum við systurnar síðustu ár alltaf farið til mömmu og hjálpað henni í búðinni á Hellu, „Hjá Vinsý“ þar sem alltaf er mikið að gera á þessum degi. Við höfum með okkur aðventukransana okkar og gerum þá fína fyrir aðventuna. Strákarnir mínir Gústaf og Marinó eru báðir í dag í íþróttahúsinu við Vallaskóla þar sem fram fer handboltamót, annar er í störfum dómara og hinn stjórnar klukkunni. Jónas liggur yfir skólabókunum þar sem að prófin eru framundan. 26. nóvember 2005
Margar ályktarnir voru gerðar á þessu þingi, um menningarmál, samgöngumál, atvinnumál og heilbrigðismál. Ein af ályktunum er um styttingu framhaldsskólans sem er stórt mál fyrir sveitarfélögin í landinu. Þar á að stytta framhaldsskólan og flytja hluta af verkefnum til grunnskólans án þess að ríkið hafi hug á að greiða fyrir það þann kostnað sem af hlýst. Bæjarstjórn Árborgar hefur ályktað um þetta mál og skólanefnd grunnskóla Árborgar gaf umsögnum málið. Ályktunina og umsögn skólanefndar má nálgast á vef Árborgar. Í Ályktunum um samgöngumál ….. 26. nóvember 2005
Einar Hermundsson vinur okkar hjónanna varð fimmtugur í sl. viku og ætlar að halda upp á það í Þjórsárveri í kvöld með pompi og prakt. Ég mun bruna heim í dag eftir fundinn á Kirkjubæjarklaustri til að við hjónin komust í veisluna til hans. 26. nóvember 2005
Aðalfundarstörf hefjast kl. 9.00 með áframhaldi nefndarstarfa. kl. 10.00 hefjast umræður um nefndarálit, almennar umræður og kosningar í stjórn SASS, skoðunarmenn, stjórn Skólaskrifstofu, stjórn Fræðslunets Suðurlands og fulltrúa á samráðsfund Landsvirkjunar. Áætluð fundarslit eru kl. 12 24. nóvember 2005
Fundurinn hefst á venjulegum aðalfundarstörfum kl. 11.00, skýrslu stjórnar, og stofnanna. Lagðar verða fram tillögur stjórnar og þingfulltrúa. Ársreikningar og fjárhagsáætlanir. Eftir hádegisverð verður ávarp félagmálaráðherra Árna Magnússonar. Skýrsla endurskoðunarnefndar, skýrla samgöngunefndar, skýrsla starfshóps um heilbrigðismál, skýrsla menningarnefndar, skýrsla stóriðjunefndar. Jón Hjartarson fer yfir vanda símenntunarmiðstöðva og háskólanáms á Suðurlandi. Vaxtasmningur Suðurlands verður kynntur og Vatnajökulsþjóðgarður. Eftir kaffihlé hefjast nefndarstörf. kvöldverður verður kl. 20.00 og þá skemmta menn sér eitthvað fram á kvöld. 24. nóvember 2005
Á fundinum var samþykkti skólanefndað stefna beri að því að rými verði innan grunnskólanna í Árborg til kennslu fyrir Tónlistaskóla Árnesinga. Mikilvægt mál þó að það taki nokkurn tíma að gera þetta mögulegt. 24. nóvember 2005
Nú kl. 9.00 ætla ég að skjótast til Reykjavíkur og sinna smá erindi. Í dag er fundur í skólanefnd Árborgar og hefst hann kl. 17.10 í Ráðhúsinu á Selfossi. Fundirnir standa yfirleitt ekki lengur en í tvo til tvo og hálfan klukkutíma. Við ætlum að taka fyrir tónlistarkennslu á vegum Tónlistaskóla Árnesinga inni í grunnskólunum,vímuefnaneyslu meðal ungs fólks í Árborg, niðurstöður rannsóknar frá í mars, samstarf grunn og framhaldsskóla og ýmislegt fleira. 24. nóvember 2005
Í fyrramálið hefst aðalfundur SASS á Kirkjubæjarklaustri og hefst hann kl. 11.00.Aðalfundur atvinnuþróunarsjóðs er á sama stað kl. 9.00. Við þurfum að leggja af stað um kl. 7.00 í fyrramálið sumir fara þó í kvöld og gista. Fundurinn stendur til laugardags 23. nóvember 2005
Fyrsti fundur dagsins er í dag kl. 10.30, kl. 14.30þarf ég að skreppa skottúr í höfðuðborgina og verð komin til baka til að mæta á fund meirihlutans kl. 18:00. Seinnipartinn í dag verður haldinn vinnufundur í meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar og hefst hann kl. 18:00. 23. nóvember 2005
Í kvöld eftir vinnufundi meirihlutans sem lauk kl. 20.30, skaust ég aðeins að hittaGrandcointreau systur mínar á Kaffikrús sem voru að laga til aðventukransana sína, svakalega flott hjá þeim systrum. Síðan fórég að horfa á Gústa spila handbolta með félögum sínum í öðrum flokki Selfoss í íþróttahúsinu við Sólvelli, þeir voru að spila við Val og töpuðu frekar illa strákarnir að þessu sinni. 22. nóvember 2005
Við komum heim seinnipartinn í gær frá Köben. Veðrið var fínt þurrt en frekar kalt. Maður finnur muninn á 3 stiga hita í Kaupmannahöfn eða á Íslandi, þar er mikið kaldara vegna rakans. Ferðin heppnaðist vel, litið var aðeins í búðir, farið í Tívolí og snætt þar julebuffet sem var alveg frábært, góður matur og umhverfið engu líkt í ljósadýrðinni, og njóta alls þessa í vinahópi er dásamlegt. 22. nóvember 2005
Í dag er vikulegur fundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. En við höfum fundað einu sinni í viku frá því að við tókum við 2002. Þessir fundir standa frá kl. 17:00 og fram eftir kvöldi. Stundum eru þeir búnir um kvöldmat en það er nú sjaldnast, oftast standa þeir lengur. 18. nóvember 2005
Í dag fljúgumvið hjónin til Kaupmannahafnarásamt Margréti systur Jónasar og Jóni hennar, Atli bróðirþeirra (Jónasar og Margrétar) og Inge hans koma líka til að hitta okkur frá Nuuk á Grænlandi. Skemmtileg helgi framundan í Danaveldi þar sem við ætlum að líta á mannlífið og njóta þess að eiga öll saman heila helgi sem við höfum ekki átt í mörg ár. 17. nóvember 2005
Allt bendir til að í dag verði enginn fundur, það gefur mér gott tækifæri til að taka á í vinnunni og létta af skrifborðinu mínu ýmsum verkefnum sem þar eru. En það er nú samt spænska í kvöld og vonandi kemst ég. 16. nóvember 2005
Aukafundur var í Bæjarstjórn Árborgar kl. 18.30 í dag. Samþykkt var að auglýsa lóðir við Ástjörn undir fjölbýlishús, einnig að lóð sveitarfélagsins í Heiðmörk yrði auglýst. 14. nóvember 2005
Í dag var aldrei þessu vant enginn fundur hjá mér. Var því í vinnunni fram að kvöldmat. 12. nóvember 2005
Seinni dagur miðstjórnarfundar hófst í morgun kl. 10.00 og stóð fundurinn til kl. 16.00. Góður og fróðlegur fundur. 12. nóvember 2005
Í dag var nú fjör í Kópavogi en þar fór fram prófkjör Framsóknarmanna til Bæjarstjórnarkosninga í vor. Ég fór beint á kosningaskrifstofuna hjá Samúel Erni (bróður mínum) eftir miðstjórnarfund. Þar var nú kátt á hjalla og margt um manninn. Samúel Örn varð í öðru sæti listans og var það vel af sér vikið. 10. nóvember 2005
Í morgun kl. 10.00 hófst fjármálaráðstefna Sambands Íslenskra Sveitarfélaga á Nordica hótel í Reykjavík. Fjármálaráðstefnu var framhaldið í dag fram að hádegi. Margir áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir, meðal annars um málefni grunnskólans.
9. nóvember 2005
Í dag er fundur í Bæjarstjórn Árborgar kl. 17.00 8. nóvember 2005
Í morgun kl. 8.30 fór ég til Reykjavíkur að þessu sinni með foreldrum mínum, ég fór að vinna í fyrirtæki þar fram til kl. 15.00. Ég fór síðan með þeim í ýmsa snúninga í heildsölur til að kaupa inn fyrir jólin í verslun móður minnar, við kíktum síðan í kaffi til Fríðu systir og Ása. Síðan fékk ég að keyra nýja jeppann hans pabba heim. Þegar heim var komið kl. 19.00 brunaði ég með Marinó Geir í Þorlákshöfn til Bryndísar sjúkraþjálfara. 7. nóvember 2005
Í dag er ég að vinna í Reykjavík í fyrirtæki sem ég þjónusta þar. 6. nóvember 2005
Þingið hófst kl. 10.00 í dag sunnudag og stóð fram til kl. 16.00. Þetta var árangursríkt þing og margar góðar ályktanir samþykktar. Ég var kosin í miðstjórn Framsóknarflokksins í dag og sem skoðunarmaður Kjördæmissambandsins. 5. nóvember 2005
Í dag kl. 13.00 hefst Kjördæmisþing flokksins í Vík í Mýrdal. Við Þorvaldur fórum saman og lögðum af stað kl. 11.00 í morgun. Við fórum síðan heim um kl. 18.00 og fór ég þá í 50 ára afmæli hjá Eyvindi Þórarinssyni í Sólningu. 4. nóvember 2005
Í dag var ráðstefnan Þátttaka er lífstíll haldin í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Fyrir ráðstefnunni stóðu HSK, SASS og Menntamálaráðuneytið. Þessi ráðstefna var mjög vel heppnuð og margt sem kom fram áhugavert. Ég var ráðstefnustjóri. 3. nóvember 2005
Ég ákvað í haust að láta gamlan draum rætast og fara að læra spænsku. Námskeiðið er á vegum Fræðslunets Suðurlands og er Anna Árnadóttir kennari. Frábært námskeið og góður kennari. Því miður hef ég nú misst úr nokkuð mikið….. þar sem fundir hafa lent á sama tíma. En annars er ég á fimmtudögum frá 19.30 – 21.30. 2. nóvember 2005
Í kvöld er þriðji fundur hóps um framtíðaruppbyggingu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hópurinn er 20 manns. Skemmtileg vinna um mikilvægt mál. Fundurinn stóð til langt genginn í ellefu í kvöld. teknir voru fyrir tveir möguleikar og greindir kostir og galla þeirra. Um er að ræða uppbygginu á báðum stöðum eða nýr skóli á milli bæjanna. Skoðanir eru skiptar eins og gefur að skilja. Niður staða hópsins mun koma út í skýrslu 2. nóvember 2005
Kl. fimm í dag voru bæjarfulltrúar Árborgar á námskeiði til að læra að halda utan um heimasíður sínar. Mikið efni var lagt fram á stuttum tíma og menn námsfúsir. 2. nóvember 2005
Í dag fór ég á fund í hádeginu með stjórn SASS og þingmönnum Suðurlands. Þar bar nú hæðst samgöngumálin eins og svo oft áður. Mikil áhersla er lögð á Suðurlandsveginn. Einnig var þar rætt um hjúkrunarheimili aldraðra og viðbyggingu Sjúkrahúss Suðurlands.Sumarbúðir að Skógum er eitt af áherslumálum SASS, samstarfsverkefni sveitarfélaga í Rangárþingi og UMFÍ. Mikilvægt málefni fyrir öll sveitarfélög á Suðurlandi. 1. nóvember 2005
Í dag er vikulegur fundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. 1. nóvember 2005
Í kvöld var aðalfundur Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss haldinn í félagsheimili kórsins. Ég var að ljúka störfum sem formaður klúbbsins eftir tveggja ára setu. Helga R. Einarsdóttir var kosin formaður. 5. maí 2003
Á morgun laugardag kl. 15.00 opnar B-listinn í Árborg kosningamiðstöð sína í Dvergnum við Eyraveg, (þar sem Myndbandahornið var). Hljómsveitin Uppþotmun spila, hoppukastali fyrir börnin, kaffi og með því fyrir gesti og gangandi. Góðir gestir munu vera á staðnum, meðal annar Guðni Ágústsson Landbúnaðarráðherra og Halldór Ásgrímsson Forsætisráðherra. Endilega líttu við. Frambjóðendur verða á staðnum. |
|||
© 2024 Margrét Katrín Erlingsdóttir |