Fundurinn hefst á venjulegum aðalfundarstörfum kl. 11.00, skýrslu stjórnar, og stofnanna. Lagðar verða fram tillögur stjórnar og þingfulltrúa. Ársreikningar og fjárhagsáætlanir.
Eftir hádegisverð verður ávarp félagmálaráðherra Árna Magnússonar. Skýrsla endurskoðunarnefndar, skýrla samgöngunefndar, skýrsla starfshóps um heilbrigðismál, skýrsla menningarnefndar, skýrsla stóriðjunefndar. Jón Hjartarson fer yfir vanda símenntunarmiðstöðva og háskólanáms á Suðurlandi. Vaxtasmningur Suðurlands verður kynntur og Vatnajökulsþjóðgarður.
Eftir kaffihlé hefjast nefndarstörf.
kvöldverður verður kl. 20.00 og þá skemmta menn sér eitthvað fram á kvöld.