|
|
15. janúar 2006
Við ræddum saman í einu fundarhléinuá Bæjarstjórnarfundinumí dag, ég,Björn Gíslason vara bæjarfulltrúi, Guðmundur Kr. Jónsson formaður bygginga og skipulagsnefndar og Þorvaldur Guðmundsson formaður bæjarráðs, kom það fram hjá Birni að sennilega væri þetta fjölmennasti fundur sem haldinn hafi verið, en gestir vorueitthvað á þriðja tuginn. Björn mundi eftir tveimur öðrum fjölmennum fundum á þeim árum sem hann var í bæjarstjórn, en eitt sinn höfðu leikskólabörn komið og í annað sinn nemar úr Tónlistaskóla Árnesinga.
Lesa meira
15. janúar 2006
Í dag kl. 17.00 verður Bæjarstjórnarfundi sem frestað var á föstudaginn framhaldið. Til umræðu er tillaga að nýju aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lesa meira
14. janúar 2006
Í dag var ég komin í vinnuna kl. 9.00. Ákveðið var fyrir jólin að þetta yrði vinnudagur á skrifstofunni. Ég þurfti síðan að fara á fund vegna bæjarmálanna kl. 11.00 sem stóð fram til kl. 16.00. Þá fór ég í hesthúsið með Jónasi, við mokuðum, kemdum, greiddum og gáfum síðan hestunum okkar. Áttum síðan rólegt kvöld í faðmi fjölskyldunnar.
Lesa meira
13. janúar 2006
Reglulegur bæjarstjórnarfundur var í dag kl. 17.00 og var honum frestað til sunnudagsins næstkomandi kl. 17.00. Til afgreiðslu í dag var meðal annars tillaga að aðalskipulagi sveitarfélagsins til næstu 20 ára. Fyrir fundinum liggur lokatillaga skipulagsins sem send verður til Skipulagsstofnunar ríkisins. Í tillögunni er búið að taka tillit til margra athugasemda sem sendar voru frá íbúum á auglýsingarferli þess. Fulltrúar sjálfstæðismanna í bæjarstjórn lögðu fram breytingartillögur við skipulagið sem tóku til viðarmikilla þátta þess. Ekki var möguleiki fyrir meirihluta bæjarstjórnar að afgreiða tillögurnar án skoðunar þar sem þær komu fyrst fram á fundinum. Þess vegna var fundi frestað til að geta afgreitt málið með samkvæmtgóðri stjórnsýslu. Skipulagið var í aulýsingarferli í 6 vikur og á þeim tíma gerði minnihlutinn engar athugasemdir en það gerðumargir íbúar sveitafélagsins.
Lesa meira
13. janúar 2006
Forseti bæjarstjórnar Árborgar, formaður bæjarráðs og bæjarstjóri heiðruðu í gær á fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlans á Selfossi sjö þúsundasta íbúa sveitarfélagsins og foreldra hans. Um er að ræða dreng frá Eyrarbakka, sem fæddist kl. 06:30 fimmtudaginn 12. janúar. Hann var 16 merkur og 52 cm. Foreldrar hans eru Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Björn Emil Jónsson, Búðarstíg 10 á Eyrarbakka. Herborg Pálsdóttir, ljósmóðir frá Eyrarbakka tók á móti drengnum. Fjölskyldunni heilsast vel. Þau fengu fallegan blómvönd og peningaupphæð fyrir drenginn frá Árborg í tilefni af tímamótunum. Hjartanlegar hamingjuóskir til foreldra og fjölskyldu með litla drenginn. Megi heilladísir vaka yfir litla drengnum og fjölskyldu hans.
Lesa meira
|
|