maí 20th, 2007

Frábær helgi í Þórsmörk.

Á laugardaginn fórum við hjónin í Þórsmörk ásamt Karlakór Selfoss og mökum þeirra. Við vorum komin inn í mörk um þrjúleitið í sól og blíðu.  Veðrið var með allra besta móti þó var gjóla en í skjólinu var sól og hiti.  Þórsmörkiin er að springa út í sumarskrúðan, hún  er  hreint og beint dásamleg á þessum árstíma.   Við gengum um í mörkinni, settumst í lautir þar sem var hlegið og skrafað.  Á heimleiðinni á sunnudegi var komið við hjá Ingu og Jóni í Brókinni og borðuð súpa, hlustað á rímur og ljóð, söng og spil hjónabandsins, frábært hjá þeim hjónum í Fljótshlíðinni.   Það er alltaf jafn gott og dýrmætt að eiga helgi í góðra vina hópi.