4. nóvember 2005

Ráðstefnan „Þátttaka er lífstíll“.

Í dag var ráðstefnan Þátttaka er lífstíll haldin í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Fyrir ráðstefnunni stóðu HSK, SASS og Menntamálaráðuneytið. Þessi ráðstefna var mjög vel heppnuð og margt sem kom fram áhugavert. Ég var ráðstefnustjóri.

Lesa meira

3. nóvember 2005

Námskeið í Spænsku.

Ég ákvað í haust að láta gamlan draum rætast og fara að læra spænsku. Námskeiðið er á vegum Fræðslunets Suðurlands og er Anna Árnadóttir kennari. Frábært námskeið og góður kennari. Því miður hef ég nú misst úr nokkuð mikið….. þar sem fundir hafa lent á sama tíma. En annars er ég á fimmtudögum frá 19.30 – 21.30.

Lesa meira

2. nóvember 2005

Framtíðarhópur Bes kl. 20:00 á Stokkseyri.

Í kvöld er þriðji fundur hóps um framtíðaruppbyggingu Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hópurinn er 20 manns. Skemmtileg vinna um mikilvægt mál. Fundurinn stóð til langt genginn í ellefu í kvöld. teknir voru fyrir tveir möguleikar og greindir kostir og galla þeirra. Um er að ræða uppbygginu á báðum stöðum eða nýr skóli á milli bæjanna. Skoðanir eru skiptar eins og gefur að skilja. Niður staða hópsins mun koma út í skýrslu

Lesa meira

2. nóvember 2005

Námskeið í heimasíðugerð kl. 17:00

Kl. fimm í dag voru bæjarfulltrúar Árborgar á námskeiði til að læra að halda utan um heimasíður sínar. Mikið efni var lagt fram á stuttum tíma og menn námsfúsir.

Lesa meira

2. nóvember 2005

Stjórn SASS hitti þingmenn Suðurlands kl.12.00

Í dag fór ég á fund í hádeginu með stjórn SASS og þingmönnum Suðurlands. Þar bar nú hæðst samgöngumálin eins og svo oft áður. Mikil áhersla er lögð á Suðurlandsveginn. Einnig var þar rætt um hjúkrunarheimili aldraðra og viðbyggingu Sjúkrahúss Suðurlands.Sumarbúðir að Skógum er eitt af áherslumálum SASS, samstarfsverkefni sveitarfélaga í Rangárþingi og UMFÍ. Mikilvægt málefni fyrir öll sveitarfélög á Suðurlandi.

Lesa meira

1. nóvember 2005

Fundur í meirihluta Bæjarstjórnar

Í dag er vikulegur fundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar.

Lesa meira

1. nóvember 2005

Aðalfundur Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss.

Í kvöld var aðalfundur Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss haldinn í félagsheimili kórsins. Ég var að ljúka störfum sem formaður klúbbsins eftir tveggja ára setu. Helga R. Einarsdóttir var kosin formaður.

Lesa meira