Seinni dagur miðstjórnarfundar hófst í morgun kl. 10.00 og stóð fundurinn til kl. 16.00. Góður og fróðlegur fundur.
|
|
||
|
12. nóvember 2005
Seinni dagur miðstjórnarfundar hófst í morgun kl. 10.00 og stóð fundurinn til kl. 16.00. Góður og fróðlegur fundur. 10. nóvember 2005
Í morgun kl. 10.00 hófst fjármálaráðstefna Sambands Íslenskra Sveitarfélaga á Nordica hótel í Reykjavík. Fjármálaráðstefnu var framhaldið í dag fram að hádegi. Margir áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir, meðal annars um málefni grunnskólans.
9. nóvember 2005
Í dag er fundur í Bæjarstjórn Árborgar kl. 17.00 8. nóvember 2005
Í morgun kl. 8.30 fór ég til Reykjavíkur að þessu sinni með foreldrum mínum, ég fór að vinna í fyrirtæki þar fram til kl. 15.00. Ég fór síðan með þeim í ýmsa snúninga í heildsölur til að kaupa inn fyrir jólin í verslun móður minnar, við kíktum síðan í kaffi til Fríðu systir og Ása. Síðan fékk ég að keyra nýja jeppann hans pabba heim. Þegar heim var komið kl. 19.00 brunaði ég með Marinó Geir í Þorlákshöfn til Bryndísar sjúkraþjálfara. 7. nóvember 2005
Í dag er ég að vinna í Reykjavík í fyrirtæki sem ég þjónusta þar. 6. nóvember 2005
Þingið hófst kl. 10.00 í dag sunnudag og stóð fram til kl. 16.00. Þetta var árangursríkt þing og margar góðar ályktanir samþykktar. Ég var kosin í miðstjórn Framsóknarflokksins í dag og sem skoðunarmaður Kjördæmissambandsins. 5. nóvember 2005
Í dag kl. 13.00 hefst Kjördæmisþing flokksins í Vík í Mýrdal. Við Þorvaldur fórum saman og lögðum af stað kl. 11.00 í morgun. Við fórum síðan heim um kl. 18.00 og fór ég þá í 50 ára afmæli hjá Eyvindi Þórarinssyni í Sólningu. |
||
|
© 2026 Margrét Katrín Erlingsdóttir |
||