12. nóvember 2005

Prófkjör í Kópavogi í dag.

Í dag var nú fjör í Kópavogi en þar fór fram prófkjör Framsóknarmanna til Bæjarstjórnarkosninga í vor. Ég fór beint á kosningaskrifstofuna hjá Samúel Erni (bróður mínum) eftir miðstjórnarfund. Þar var nú kátt á hjalla og margt um manninn. Samúel Örn varð í öðru sæti listans og var það vel af sér vikið.

Lesa meira

10. nóvember 2005

Fjármálaráðstefna SÍS 10 og 11 nóvember.

Í morgun kl. 10.00 hófst fjármálaráðstefna Sambands Íslenskra Sveitarfélaga á Nordica hótel í Reykjavík.

Fjármálaráðstefnu var framhaldið í dag fram að hádegi. Margir áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir, meðal annars um málefni grunnskólans.

 

Lesa meira

9. nóvember 2005

Bæjarstjórnarfundur í dag.

Í dag er fundur í Bæjarstjórn Árborgar kl. 17.00

Lesa meira

8. nóvember 2005

Á ferð með foreldrum mínum

Í morgun kl. 8.30 fór ég til Reykjavíkur að þessu sinni með foreldrum mínum, ég fór að vinna í fyrirtæki þar fram til kl. 15.00. Ég fór síðan með þeim í ýmsa snúninga í heildsölur til að kaupa inn fyrir jólin í verslun móður minnar, við kíktum síðan í kaffi til Fríðu systir og Ása. Síðan fékk ég að keyra nýja jeppann hans pabba heim. Þegar heim var komið kl. 19.00 brunaði ég með Marinó Geir í Þorlákshöfn til Bryndísar sjúkraþjálfara.

Lesa meira

7. nóvember 2005

Vinna í Reykjavík.

Í dag er ég að vinna í Reykjavík í fyrirtæki sem ég þjónusta þar.

Lesa meira

6. nóvember 2005

Kjördæmisþingi framhaldið

Þingið hófst kl. 10.00 í dag sunnudag og stóð fram til kl. 16.00. Þetta var árangursríkt þing og margar góðar ályktanir samþykktar. Ég var kosin í miðstjórn Framsóknarflokksins í dag og sem skoðunarmaður Kjördæmissambandsins.

Lesa meira

5. nóvember 2005

Kjördæmisþing Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi

Í dag kl. 13.00 hefst Kjördæmisþing flokksins í Vík í Mýrdal. Við Þorvaldur fórum saman og lögðum af stað kl. 11.00 í morgun. Við fórum síðan heim um kl. 18.00 og fór ég þá í 50 ára afmæli hjá Eyvindi Þórarinssyni í Sólningu.

Lesa meira