Við komum heim seinnipartinn í gær frá Köben. Veðrið var fínt þurrt en frekar kalt. Maður finnur muninn á 3 stiga hita í Kaupmannahöfn eða á Íslandi, þar er mikið kaldara vegna rakans. Ferðin heppnaðist vel, litið var aðeins í búðir, farið í Tívolí og snætt þar julebuffet sem var alveg frábært, góður matur og umhverfið engu líkt í ljósadýrðinni, og njóta alls þessa í vinahópi er dásamlegt.