|
|
29. desember 2005
Síðustu dagar ársins eru að fljúga frá okkur. Þegar maður hugsar til baka þá voru árin ekki svona fljót að líða þegar maður var barn. Núna finnst manni eins og árin fljúgi frá manni hvert af öðru. Gott er að setjast niður á áramótum og líta yfir farinn veg. Hver veit nema ég setji einhverjar hugleiðingar um það hér inn á vefinn á næstu dögum. Annars hef ég átt góða daga í þessari viku, rólega og afslappaða. Hef mætt á nokkra fundi, aðeins í vinnuna, lesið í góðum bókum og notið samveru við fjölskylduna. Einnig hefur verið spennandi að fylgjast með ferðalaginu hjá Erlingi og Sif um Karabískahafið á blogginu þeirra, það hefur fært þau nær okkur yfir hátíðirnar.
Lesa meira
28. desember 2005
Aukafundur var í Bæjarstjórn í dag. Vorum við að samþykkja að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði úr 0.40% í 0.37% eða um 7,5 prósent. Einnig var samþykkt að ákvörðun um breytingu á afslætti til handa eldriborgurum og örorkulífeyrisþegum frá því 14.des mundi líka gilda fyrir holræsagjald. Lækkun á álagningu fasteignagjalda á hesthús mun lækka. Einnig var samþykkt stefnumótun bæjarstjórnar um háhýsi í miðbæ Selfoss.
Lesa meira
28. desember 2005
Jóladagarnir eru liðnir og komið nær áramótum. Aðfangadagskvöldið var notalegt í faðmi fjölskyldunnar þó að við finndum vissulega fyrir því að hafa ekki Erling og Gústaf heima hjá okkur. Skítið hvað manni finnst allt eigi að vera óbreytt um jólin, allir eiga að vera á sínum stað og með sínar hefðir. Mér varð hugsað til þess á aðfangadagskvöld hvernig foreldrum mínum hlýtur að hafa liðið fyrstu jólin sem ég var ekki heima, svo og systkini mín.Á jóladaginn hittist stórfjölskyldan mín, foreldrar, systkini, makar, börn og barnabörn hjá Önnu Stínu systir hér á Selfossi. Við höfum gert það um nokkurra ára skeið að skiptast á systkinin að hafa jólaboð fyrir fjölskylduna. Annar dagur jóla var nú mikill leti dagur hjá okkur Jónasi, við lágum í rúminu og lásum. Ég var svo heppinn að þessi elska gaf mér allar bækurnar um Harry Potter sem mig hefur alltaf langað svo í. Nú er ég að lesa Harry Potter og Blendingsprinsinn… og lofar hún góðu.
Lesa meira
28. desember 2005
Í gær áttum við Jónas 19 ára brúðkaupsafmæli. Ótrúlegt hvað tíminn líður fljótt mér finnst eins og við höfum verið að gifta okkur í fyrra…. Við buðum Lilliendahls fjölskyldunni til okkar í jólaboð. María tengdamamma sagði uppjólaboðinu nú fyrir jólin og tókum við þá ákvörðun að við skyldum halda boðÞannig aðstórfjölskyldan mundi hittast. Upplagt var að nýta tækifærið og hafaboðið á brúðkaupsafmælisdeginum okkar.
Lesa meira
24. desember 2005
Við Kringlmýringar óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Megi nýja árið verða ykkur hamingjuríkt og heilladrjúgt.
Lesa meira
24. desember 2005
Nú er aðfangadagurinn runninn upp með allan sinn sjarma. Á aðfangadag er ég að dunda mér í eldhúsinu svona frá hádegi. Við höfum alltaf þríréttað á aðfangadagskvöld. Við byrjum á rækjukokteil, þá innbakaður hamborgarahryggur (í rúgdeigi) með brúnuðum kartöflum og tilheyrandi, desert höfum við Emmess ís með heimalagaðri súkkulaðisósu. Þetta eru fyrstu jólin sem að stóru strákarnir eru ekki heima. Erlingur og Sif unnusta hans eru á siglingu niður í Karabískahaf, þau gera ráð fyrir að vera á Jamaika í dag, Gústaf ætlar að vera með Guðbjörgu unnustu sinni hjá foreldrum hennar á Hlaðavöllunum. Við eru þá þrjú eftir, foreldar Jónasar, Gústaf og María, ætla að koma og vera með okkur í kvöld.
Lesa meira
|
|