2. janúar 2006

Hrossin tekin á hús í slagveðri…

Seinnipartinn í dag brunuðum við Jónas til að ná í hrossin okkar og koma þeim í hús hér á Selfossi. Við byrjuðum á að fara í Austurkot og sækja nýja hestinn minn sem ég hef ákveðið að skýra „Ljúfling“ síðan fórum við að Stóru Reykjum til Gísla stórbónda og sóttum, Sól, Stjörnu, Skörung og Sóma. Alls erum við með fimm hross í okkar húsi og einn graðhest hjá Magnúsi frænda.

Lesa meira

1. janúar 2006

Gleðilegt ár, takk fyrir gamla og góða árið.

Ykkur öllum sem hér lítið við óska ég gleðilegs ár og þakka fyrir liðna árið.

Lesa meira

31. desember 2005

Litið yfir farinn veg um áramót, fyrsti hluti

Lesa meira

31. desember 2005

Litið yfir farinn veg um áramót, fyrsti hluti.

Pólitíska árið hefur verið mjög annasamt hjá bæjarfulltrúum í Árborg eins og reyndar kjörtímabilið allt. Þegar við komum að voru mörg mál sem taka þurfti á og byggja upp víða. Má þar til dæmis nefna nýjan grunnskóla í Suðurbyggð, sniðræsi, uppbygging íþóttamannvirkja og fleira og fleira. Margt hefur verið gert á síðustu árum til hagsbóta fyrir íbúana.

 

Lesa meira

31. desember 2005

Gamlársdagur.

Við Kringlmýringar óskum ykkur öllum gleðilegs ár og óskum þess að nýja árið verði ykkur hamingjuríkt og heilladrjúgt. Með kærri þökk fyrir liðna tíð.

Lesa meira

30. desember 2005

Hestar teknir á hús…

Þegar nálgast jól og áramót förum við að huga að því að taka inn hrossin okkar. Síðustu daga hefur Jónas verið að ditta að hesthúsinu og gera það klárt. Við fórum seinnipartinn í lokatiltekt og Hróbjartur kom með heyrúllu frá Gísla stórbónda á Stóru Reykjum, en hann sér okkur fyrir heyi í hrossin í vetur. Til stendur að fara í fyrramálið eða á nýársdag og sækja hrossin. Við byrjum á að taka inn fimm hross, þrjá hesta og tvær hryssur. Fjögur þeirra eru á Stóru Reykjum en nýjasti gripurinn í hópnum er í Austurkoti. En í haust keyptum við hest, reiðhest handa mér, 9 vetra jarpstjörnóttann klár. Nú hlakkar manni svo til að taka hrossin á hús þegar maður hefur aftur eignast reiðhest sem er eins og hugur manns. Vinir okkar Hróðný og Hróbjartur er með okkur í hesthúsi með sína reiðhesta. Gott að geta hjálpast að í umhirðunni þegar mikið er að gera hjá öllum. Þau verða með þrjú til fjögur hross þannig að í heildina verða þetta 9 hestar á húsi í vetur. Við eigum líka graðhest í sameign með Magnúsi frænda mínum sem hann er að temja. Efnisfoli undan Sóley, húner undanSunnu og Leist,og Töfra frá Selfossi.

Lesa meira

29. desember 2005

Íþróttamaður Árborgar kjörinn og Pólfarinn heiðraður.

Lesa meira