12. janúar 2006

Fimmtudagurinn 12. janúar.

Veðurguðirnir eru nú í undarlegu skapi þessa fyrstu daga ársins. Það er ýmist hláka eða snjór…hiti að morgni en frost að kveldi. Í gærmorgun var snjór og frost, en í morgun hiti og asahláka. Leiðindaveður fyrir útigangshross.

Annars hefur dagurinn verið ágætur hjá mér, mikið er að gera í vinnunni þessa daga. Launaframtöl og launamiðar framundan, síðan skattskil einstaklinga og rekstraraðila. Við höfum verið að glíma við bilanir í tölvukerfinu á skrifstofunni síðan í lok desember…. á hverjum degi hætta kerfin að virka og allt fer í strand… þetta hefur verið bagalegt ástand á stundum… og margir klukkutímar hafa liðið undanfarið og við fjórar höfum beðið eftir að viðgerð ljúki. Ég er nú að vona að síðasta uppákoman í morgun sé endapunkturinn á þessu öllu saman.

Lesa meira

11. janúar 2006

Bæjarstjórnarfundi frestað í dag.

Bæjarstjórnarfundi sem vera átti í dag var frestaðþar til á föstudaginn nk. kl. 17.00.Gögn vegna aðalskipulags sem ganga á fráá þeim fundi voru ekki öll tilbúin í tíma. Enbæjarstjórnafund skal boða með tveggja daga fyrirvara og skulu þá öll gögnfylgja fundarboði.

Lesa meira

10. janúar 2006

Fór í svæðisútvarpið til Sigmundar

Seinni partinn í dag var ég ásamt Guðmundi Stefánssyni oddvita í Hraungerðishreppi í svæðisútvarp Suðurlands. Umræðuefnið var, sameining í Flóa, Fjallið okkar „Ingólfsfjall“ og námuvinnsla þar ogframboðsmál Frams óknarmanna. Alltafgaman að vera með Guðmundi í umræðum, enda er hann heiðarlegur og skemmtilegur viðmælandi.

Lesa meira

10. janúar 2006

Heiðdís tók skóflustungu að nýjum leikskóla

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla að Erlurima 1 Selfossi. Heiðdís Gunnarsdóttir leikskólafulltrúitók skóflustunguna og strax í kjölfarið var hafist handa við að grafa fyrir byggingunni.

Lesa meira

10. janúar 2006

Vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar.

Í dag kl. 17.00 var vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar í Ráðhúsinu og stóð hann til kl. 20.00

Lesa meira

10. janúar 2006

Fundur í Ráðhúsinu kl. 8.00

Í morgun kl. 8.00 átti ég fund í setri Egils í Ráðhúsinu með Ásmundi Sverri og Einari Njálssyni, fundurinn stóð til kl. 10.15. Á fundinum vorum við að yfirfara erindisbréf nefnda sem þarfnast lagfæringar og samræmingar við stjórnsýsluna.

Lesa meira

9. janúar 2006

Litið yfir farinn veg, annar hluti.

Lesa meira