27. janúar 2006

Vestmanneyjaferð félagsmiðstöðvarinnar Zelcius

Kl. 18.00 í kvöld var mæting hjá þeim sem ætla með félagsmiðstöðvinni til Vestmannaeyja en þar fer fram Samfés keppni… söngvakeppni félagsmiðstöðva. Marinó Geir fór ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Uppþot en þeir taka þátt fyrir okkar hönd. Gústaf fór líka en hann er starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar… Gangi ykkur vel krakkar og góða skemmtun. Hópurinn er væntalegur heim á sunnudag með Herjólfi.

Lesa meira

26. janúar 2006

Vinnudagur…

Í dag var nú hefðbundinn dagur, ég var í vinnunni fram undir kl. 18.00. Í kvöld komu Magga má og Jón í kaffi. Farið var yfir málin og það sem helst er á döfinni hjá fjölskyldunni á næstunni.

Lesa meira

25. janúar 2006

Skrapp í Reykjavík..

Um hádegi í dag fórum við til Reykjavíkur með Marinó Geir til sjúkraþjálfara. Jónas fór í skólann en við Marinó Geir skruppum í heimsókn til Erlings og Sifjar að skoða hjá þeim það sem þau keyptu í siglingunni og framkvæmdir á heimilinu. En þau hafa verið að mála og gera fínt hjá sér. Þegar heim kom fór ég í hesthúsið og mokaði út, kemdi og bustaði hrossin. Alltaf gott að komast í hesthúsið og og taka svolítið á.

Lesa meira

24. janúar 2006

Vinnufundur meirihlutans.

Vinnufundurinn hófst kl 17.00 að venju og stóð til kl. 20.00

Lesa meira

23. janúar 2006

Framsóknarmenn hittast og fara yfir mál vikunnar.

Bæjarfulltrúar framsóknarflokksins, nefndarmenn og nánustu samstarfsmenn hittast alltaf á mánudögum kl. 17.00 til að fara yfir mál vikunnar og það sem er framundan. Gott að hittast fara yfir málin og fá fleiri sjónarmið.

Lesa meira

22. janúar 2006

Hjónaklúbburinn með þorrablót

Í kvöld fengum við góða gesti í þorramat. Til okkar komu vinir okkar úr hjónaklúbbnum sem við höfum starfað í síðan 1999. Við hittumst alltaf einu sinni í mánuði yfir veturinn og eigum saman góða kvöldstund. Gott að hitta góða vini og njóta stundarinnar.

Lesa meira

21. janúar 2006

Framsóknarkaffi á laugardagsmorgnum

Í morgun var fyrsta morgunkaffið hjá framsókn í salnum okkar við Eyraveg. Ætlunin er að hafa morgunkaffi á hverjum laugardegi frá 10 – 12. Endilega komið og fáið ykkur kaffi, spjallið og njótið stundarinnar.

Lesa meira