25. febrúar 2006

Fórum á hestbak !

Í dag fórum við Jónas í hesthúsið og fórum í útreiðatúr. Veðrið var svo gott að manni finnst á köflum eins og sé komið vor enda er gróður er víða farin að lifna. Fínn reiðtúr í góða veðrinu.

Lesa meira

25. febrúar 2006

Stórfjölskyldan hittist á Hellu.

Í dag ætlum við systkinin ásamt mökum að hittast hjá foreldrum mínum á Hellu. Við ætlum að ganga frá skipulagi á göngu um Strandir í sumar. Þá áætlum við að sigla frá Norðurfirði í Reykjafjörð, ganga í Þaralátursfjörð og Furufjörð, upp á Drangajökul og síðan á æskuslóðir mömmu að Dröngum, þaðan í Drangavík inní Ófeigsfjörð og enda í Ingólfsfirði. Þessi ferð tekur okkur um eina viku eða svo og áætlum við að fara um miðjan júlí.

Lesa meira

25. febrúar 2006

Fundir…. í dag !

Í morgun kom ég til vinnu uppúr kl. 8.00 eins og venjulega. Ég var í vinnunni til kl. 17.00 en þá fór ég á vinnufund meirihluta bæjarstjórnar sem stóð til kl. 19.20. Þá brunaði ég heim og eldaði mat fyrir Marinó Geir, en Jónas var í skólanum fram á kvöld. Rétt fyrir kl. 20.00 fór ég á fund með nefndarfólki Framsóknarflokksins í Árborg og kom heim um 23.30. Langur dagur en góður. Fundirnir skiluðu árangri og er það fyrir mestu.

 

Lesa meira

24. febrúar 2006

Ráðstefna um skólamál.

Í dag kl. 13:00 var ráðstefna á Hótel Selfoss á vegum Skólaskrifstofu Suðurlands um skólamál. Þar voru saman komnir frábærir fyrirlesarar, kynnt var Pisa rannsóknin, skólahald á Hvolsvelli, Piltar og Fsu ná þeir saman, breyting á rekstri grunnskólans, fjölgun starfsmanna í grunnskólum og sjónarhorn sálfræðings um hvort gæði hafi aukist í skólastarfi með fjölgun starfsmanna. Stórgóð ráðstefna þar sem meðal annars kom fram að drengir á landsbyggðinni eru slakari í stærðfræði en stúlkur.

Lesa meira

23. febrúar 2006

Skattaskilin framundan

Þessa dagana eru nú vinnudagarnir á skrifstofunni að lengjast. Framundan er einn mesti annatími ársins, skattskilin og ársreikningarnir. Þetta er alltaf skemmtilegur tími þar sem mikill erill er og margir eiga erindi til okkar. Mér finnst nú líka alltaf lang skemmtilegast þegar skattatíminn er enda mjög skemmtilegt að gera skattframtöl.

Lesa meira

20. febrúar 2006

Skólanefndarfundur í dag.

Í dag var fundur í skólanefnd Árborgar sem haldinn var á Stokkseyri. Á fundinum var lögð fram skýrlsa vinnuhóps

Lesa meira

19. febrúar 2006

Konudagurinn !

Þessi dagur hefur nú verið mikill letidagur. Við fengum morgunmat uppá herbergi á hótelinu, tékkuðum okkur út um hádegi, fórum þá til Hönnu og Holla í hádegismat og spjall. Komum heim um fimmleitið og tókum á móti Guðjóni móðurbróður og Jónu í kaffi, fórum síðan í kvöldmat til Hróðnýar og Badda. Sannkallaður leti dagur.

Lesa meira