maí 2nd, 2007

Stjórnarfundur í SASS

Í dag kl. 15.00 var stjórnarfundur hjá Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga og stóð hann til  15.40  Aðal mál fundarins var að skipa í menningaráð Suðurlands.  Fulltrúi Árborgar er Inga Lára  Baldvinsdóttir og til vara er Andrés Sigurvinsson.  Ég lagði fram fyrirspurnir á þessum fundi vegna endurskoðunar á samtökunum sem fylgir hér.
3. Endurskoðun á stjórnskipulagi SASS og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
,,Sérfræðingur hefur verið ráðinn til að endurskoða SASS, ekki er liðið nema rétt rúmt ár síðan síðustu endurskoðun lauk og er þetta fyrsta starfsárið eftir þær breytingar sem þá voru samþykktar. Ég er nýkomin inn í stjórnina sem varaformaður samtakanna og tel því eðlilegt að spyrja eftirfarinna spurninga vegna þessarar vinnu sem hafin er vegna endurskoðunar á SASS.


1. Hver er ástæðan fyrir því að ráðinn hefur verið sérfræðingur til að skoða stjórnskipulag SASS ?
2. Hefur stjórn heimild aðalfundar fyrir þessari endurskoðun ?
3. Hvert er markmiðið með þessari endurskoðun ?
4. Hver er áætlaður kostnaður við þessa endurskoðun?
5. Er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fárhagsáætlun ? “


Gunnar Þorgeirsson lagði fram eftirfarandi bókun sem svar við fyrirspurninni:


,,Vegna fyrirspurnar Margrétar Erlingsdóttur vilja aðrir stjórnarmenn koma eftirfarandi á framfæri. Á aukaaðalfundi SASS í apríl 2006 þar sem farið var yfir breytingar á starfsemi SASS og tengdra stofnana var lagt til að stjórn SASS endurskoðaði starfsmannastefnu allra stofnana. Á grundvelli þessa þótti stjórn nauðsynlegt að skilgreina störf starfsmanna innan SASS, og í framhaldi af þeim umræðum var formanni og varaformanni falið að ræða við AÞS um aðild að vinnunni. Í kjölfarið var samþykkt að ráða til verksins Kristján Vigfússon í samstarfi við AÞS. Ekki liggur fyrir aðalfundarsamþykkt önnur en áður er getið, en í samþykkt síðasta aðalfundar sem haldinn var í Hveragerði í nóvember síðastliðnum, var því beint til stjórnar að skilgreina þann kostnað sem aðrar stofnanir greiða til sameiginlegs rekstrar. Þykir því enn meiri nauðsyn á skilgreiningum starfa innan SASS. Áætlaður kostnaður verkefnisins er um 1 milljón króna og greiðist að helmingi af SASS. Ekki er gert ráð fyrir þessu sérstaklega í fjárhagsáætlun en ekki er gert ráð fyrir útgjalda aukningu aðildarsveitarfélaga vegna verkefnisins.”