29. nóvember 2005

Vikulegur fundur meirihlutans er í dag kl. 17.00 stóð til 21.00

Í dag kl. 17.00 er vikulegur fundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. Við hittumst alltaf einu sinni í viku og förum yfir málin. Fundirnir standa frá tveimur tímum uppí ……tja..fjóra til fimm tíma.

Fundurinn stóð til kl. 21:00 í kvöld. Góður fundur enda samstarf flokkanna gott.

Lesa meira

28. nóvember 2005

Mánudagur 28. nóvember, fundarlaus dagur.

Í dag er einn af þessum fundarlausu dögum sem detta inn öðru hvoru. En þar sem nóvember er að klárast þá fer nú aðeins að róast í kringum okkur bæjarfulltrúana. Nóvember er mikill ráðstefnumánuður, þeim fylgir gjarnan fjarverur og ferðalög, þess vegna er ósköp notalegt að pústa aðeins á eftir.

Lesa meira

28. nóvember 2005

Fór að sjá Harry Potter….

Í kvöld notaði ég tækifærið og skaust í bíó ásamt Jónasi og sáum við nýju Harry Potter myndina. Góð mynd, nokkuð skuggaleg á köflum gæti ég trúað fyrir yngri kynslóðina.Mérfinnst samtmörgu sleppt og margt stytt miðaðvið bókina. Góð mynd sem gaman er að sjá.

Lesa meira

27. nóvember 2005

Hjá Vinsý á fysta sunnudegi í aðventu.

Á fyrsta sunnudegi í aðventu höfum við systurnar síðustu ár alltaf farið til mömmu og hjálpað henni í búðinni á Hellu, „Hjá Vinsý“ þar sem alltaf er mikið að gera á þessum degi. Við höfum með okkur aðventukransana okkar og gerum þá fína fyrir aðventuna. Strákarnir mínir Gústaf og Marinó eru báðir í dag í íþróttahúsinu við Vallaskóla þar sem fram fer handboltamót, annar er í störfum dómara og hinn stjórnar klukkunni. Jónas liggur yfir skólabókunum þar sem að prófin eru framundan.

Lesa meira

26. nóvember 2005

SASS fundur.

Margar ályktarnir voru gerðar á þessu þingi, um menningarmál, samgöngumál, atvinnumál og heilbrigðismál. Ein af ályktunum er um styttingu framhaldsskólans sem er stórt mál fyrir sveitarfélögin í landinu. Þar á að stytta framhaldsskólan og flytja hluta af verkefnum til grunnskólans án þess að ríkið hafi hug á að greiða fyrir það þann kostnað sem af hlýst. Bæjarstjórn Árborgar hefur ályktað um þetta mál og skólanefnd grunnskóla Árborgar gaf umsögnum málið. Ályktunina og umsögn skólanefndar má nálgast á vef Árborgar. Í Ályktunum um samgöngumál …..

Lesa meira

26. nóvember 2005

Fimmtugsafmæli stórbóndans í Egilsstaðakoti !

Einar Hermundsson vinur okkar hjónanna varð fimmtugur í sl. viku og ætlar að halda upp á það í Þjórsárveri í kvöld með pompi og prakt. Ég mun bruna heim í dag eftir fundinn á Kirkjubæjarklaustri til að við hjónin komust í veisluna til hans.

Lesa meira

26. nóvember 2005

Aðalfundur SASS seinni dagur

Aðalfundarstörf hefjast kl. 9.00 með áframhaldi nefndarstarfa.

kl. 10.00 hefjast umræður um nefndarálit, almennar umræður og kosningar í stjórn SASS, skoðunarmenn, stjórn Skólaskrifstofu, stjórn Fræðslunets Suðurlands og fulltrúa á samráðsfund Landsvirkjunar.

Áætluð fundarslit eru kl. 12

Lesa meira