Í dag höfum við notið samveru við stórfjölskylduna mína, foreldra, systkini, maka og börn. Við hittumst hér í Kringlumýrinni eftir hádegið og fylgdum síðan móður mágs míns til grafar í dag.
Í gærmorgun fylgdum við kærri vinkonu sem hafðiannast um elsta drenginn okkará fyrstu árum hans meðan við stunduðum vinnu.
Manni verður hugsað til þess á stundum sem þessum hve algengt það er orðið í hraða nútímans að fólk gefur sér ekki tíma til að njóta stundarinnar með vinum og ættingjum. Síðan renna upp stundir þar sem allir hittast en því miður er það oft þannig að ástæðan er sú að verið er að fylgja til grafar samferðarfólki með sorg í hjarta.
Þessir síðustu dagar hafa verið mörgum íbúanum í Árborg erfiðir, margir hafa átt um sárt að binda.Til grafar hafa verið bornir fimm rótgrónir og mætir borgarar sem munu skilja eftir skarð meðal okkar sem eftir stöndum. Íbúar sem lifað hafa mestu breytingar sem verið hafameðal þjóðarinnar og lagt hafa grunninn að því samfélagi sem við lifum í. Megi algóður guð styrkja alla þá sem um sárt eiga að binda