7. desember 2005

þriðji fundur fjárhagsnefndar Héraðsnefndar kl. 13.00

Þriðji fundur fjárhagsnefndar Héraðsnefndar Árnesinga erí dagkl. 13.00 í Ráðhúsi Árborgar. Fundurinn gekk vel og lauk honum rúmlega klukkan rúmlega þrjú.

Lesa meira

7. desember 2005

Heimsókn í Vallaskóla.

Í dag kl. 8.00 fer skólanefnd Grunnskóla Árborgar í heimsókn í Vallaskóla. Eyjólfur skólastjóri tekur á móti okkur, sýnir okkur skólann og fer yfir starfsemina. Meðal annars ætlum við að kynnast þrónunarverkefni skólans í Íslensku hjá 10 bekk sem nefndist Vallaskólaleiðin. Einnig ætlum við að kynna okkur hvernig gengur með breytingarnar sem gerðar hafa verið á yngsta stigi. Endum síðan á að borða hádegismat í mötuneyti skólans.

Lesa meira

6. desember 2005

Jólafundur Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss.

Í kvöld kl. 20.00 var jólafundur Kvennaklúbbs Karlakórs Selfoss. Kvennaklúbburinn hittist alltaf fyrsta þriðjudag í mánuði frá nóvember til maí. Þetta er skemmtilegur hópur kvenna sem er gaman að vera með.

Lesa meira

6. desember 2005

Fundur í fjárhagsnefnd Héraðsnefndar var kl. 12.00

Í hádeginu í dag var annar fundur fjárhagsnefndar Héraðsnefndar Árnesinga. Í dag fórum við yfir fjárhagsáætlanir Tónlistaskóla Árnesinga og Héraðsskjalasafns Árnesinga. Forstöðumenn beggja stofnanna komu á fund nefndarinnar.

Lesa meira

5. desember 2005

5. des virðisaukadagur.

Í dag er greiðsludagur virðisaukaskatts hjá rekstraraðilum, á þessum degi er mikill erill hér á skrifstofunni og margt um manninn.

Lesa meira

5. desember 2005

Héraðsnefndarfundur á föstudaginn

Héraðsnefnd Árnesinga er með fund á föstudaginn kemur. Fjárhagsnefnd Héraðsnefndar er byrjuð að undirbúa fundinn og var fyrsti fundur nefndarinnar í dag kl. 11.00 og stóð til 13.30. Farið var yfir fjárhagsáætlanir Listasafns Árnesinga og Byggðasafns Árnesinga, forstöðumenn safnanna komu á fund nefndarinnar og gerðu grein fyrir áætlunum safnanna.

Lesa meira

4. desember 2005

Annar sunnudagur í aðventu.

Annan sunnudag í aðventu höfum við notað til lestrar hjónin. Jónas er að lesa undir próf sem hann fer í kl. 9.00 í fyrramálið í Háskólanum í Reykjavík. Ég hef í haust verið að lesa bókaflokkinn Börn jarðar eftir Jean M. Auel, fyrst las ég Þjóð bjarnarins mikla, síðan Dal hestanna, næst Mammútaþjóðina og nú er ég að lesa Seið sléttunnar. Gullgóðar bækur.

Lesa meira