Héraðsnefndarfundurinn stóð til kl. 16.00 í dag. Ágætur fundur með málefnalegum umræðum.
Að honum loknum fór ég heim eftir stranga viku í fundarhöldum og slakaði á í faðmi fjölskyldunnar.
|
|
||
|
9. desember 2005
Héraðsnefndarfundurinn stóð til kl. 16.00 í dag. Ágætur fundur með málefnalegum umræðum. Að honum loknum fór ég heim eftir stranga viku í fundarhöldum og slakaði á í faðmi fjölskyldunnar. 9. desember 2005
Í dag kl. 9.00 hefst fundur í Héraðsnefnd Árnesinga að Þingborg. Áætlað er að fundurinn standi til kl. 15.00. Á þessum fundi verður gengið frá fjárhagsáætlunum stofnanna semreknar eru af Héraðsnefnd, en það eru Tónlistaskóli Árnesinga, Listasafn Árnesinga, Byggðasafn Árnesinga og Héraðsskjalasafn Árnesinga. 8. desember 2005
Þessa dagana er mikið að gera hjá okkur stelpunum á skrifstofunni. Við erum orðnar fjórar sem störfum hér. Auk mín eru það, Magný Rós Sigurðardóttir, Guðbjörg Stefánsdóttir og Anna Steinþórsdóttir sem er nýbyrjuð, búin að vera í tvær vikur. Við erum að keppast við að klára sem mest sem komið er í hús svo að við getum farið í jólafrí. Ég hef frá upphafi lokað milli jóla og nýárs, við mætum svo til starfa aftur fyrsta virka dag í janúar, við höfum yfirleitt unnið 22 des. en haft síðan lokað. En nú er ég ekki viss um að ég geti haft lokað þar sem að mikið er af verkum sem þarf að klára fyrir áramót. En við keppumst við þessa dagana þannig að það er ekki öll nótt úti enn. 8. desember 2005
Starfskjaranefnd sveitarfélagins fundaði í dag kl. 11.30 og stóð fundurinn til kl. 13.30. 7. desember 2005
Á bæjarstjórnarfundinum var fyrsta umræða um fjárhagsáætlun 2006 og samþykkt var endurskoðuð jafnréttisstefna. Stefnan er vel unnin af vinnuhópnum og í henni er áætlun í 5 kafla um hvernig hún á að vera virk. Gert er ráð fyrir að viðurkenning sé veitt árlega þeirri stofnun sveitarfélagsins sem best stendur sig í jafnréttismálum. 7. desember 2005
Ég fór í morgun í heimsókn í Vallaskóla ásamt fulltrúum úr skólanefndinni. Við byrjuðum á að skoða þróunarverkefni í 1 og 2 bekk í Sandvík, þar er verið að þróa nýjar aðferðir í kennslu. Unnið er …… 7. desember 2005
Í dag er Bæjarstjórnarfundur í Tryggvaskála kl. 17.00 og fer fram fyrsta umræða um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir 2006. Einnig veður lögð fyrir endurskoðuð jafnréttisstefna sveitarfélagsins. |
||
|
© 2026 Margrét Katrín Erlingsdóttir |
||