13. desember 2005

Erlingur Örn og Sif komu að kveðja okkur.

Erlingur sonur okkar og Sif unnusta hans komu í heimsókn seinnipartinn í dagog voru með okkur í kvöldmat. Þau komu til að kveðja okkur en þau fljúga til New York á mánudaginn, þar hitta þau mömmu hennar og systkini. Þau ætla að sigla frá New York til Bahamas og eyða jólum og áramótum um borð í skemmtiferðaskipi. Þetta verða fyrstu jólin sem að Erlingur er ekki heima með okkur og er það undarlegt tilfinning blönduð söknuði sem maður upplifir. En þetta er víst gangur lífsins að börnin fljúga úr hreiðrinu.

Lesa meira

13. desember 2005

Vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar í dag kl. 17.00

Í dag var vikulegur vinnufundur meirihluta Bæjarstjórnar Árborgar. Stóð fundurinn til rúmlega 19.00

Lesa meira

12. desember 2005

Skólanefndarfundur frá 17.10 – 19.00

Lesa meira

11. desember 2005

Uppþot spilaði undir í söngvakeppni félagsmiðstöðva.

Hljómsveitin Uppþot spilaði undir í forkeppni í söngvakeppni SAMFÉS á fimmtudaginn var í Hvítahúsinu. Marinó Geir okkar spilar þar á trommur, Óskar Hróbjarts á bassa og Fannar Magnússon á gítar. Þeir eru allir nemar í Vallaskóla. Þeir tóku að sér að spila undir hjá öllum söngvurunum, flott hjá þeim strákunum. Söngvarinn sem vann er Guðmundur Þórarinsson. Þannig að þeir eru allir á leið í næstu umferð í SAMFÉS.

Lesa meira

10. desember 2005

Heimboð hjá stórbændum að Stóru Reykjum í Flóa.

Í kvöld fórum við í matarboð hjá Gísla og Jónínu á Stóru Reykjum ásamt þeimHróðný og Hróbjarti og stóru strákunum Marinó Geir og Óskari Erni. Auðvitað var á borð borið dásemdar íslenskt lamb eins og bændum einum sæmir. Frábært kvöld í vinahópi.

Lesa meira

10. desember 2005

Kakó og vöfflur á jólasveinadaginn…

Á sl. ári byrjuðum viðkonurnar í Kvennaklúbbi Karlakórs Selfoss á því að selja kakó og vöfflur í Tryggvaskála á innkomuhátíð jólasveinanna og þegar kveikt er á jólatrénu við Pylsuvagninn. Við ákváðum að endurtaka leikinn í ár og mikið var þetta skemmtilegur dagur. Við byrjuðum að undirbúa kl. 12.00 og hófum söluna um kl. 14.00. Á tímabili var löng biðröð og Tryggvaskáli var fullur af fólki. Skemmtilegur dagur með stelpunum í Kvennaklúbbnum og ykkur öllum.

Lesa meira

10. desember 2005

Jólasveinarnir komu í Árborg í dag og kveikt á jólatrénu.

Jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli komu til byggða í dag. Mikið margmenni var í miðbæ Selfoss eins og venjulega þegar þeir koma. Veðrið var milt og þurrt á meðan að skemmtunin fór fram. Jólasveinarnir hafa greinilega verið á galdranámskeiði því að einn þeirra var hífður í körfubíl slökkvuliðsins upp á topp trésins með „eldprik“ sem hann sló í tréð og þá kviknaði á því, ótrúlegir þessir sveinar. Jólatréð í ár er glæsilegt.

Lesa meira