17. desember 2005
Þessi laugardagur var nýttur í þáguheimilisins, en ekki hafa gefist margar stundir undanfarið til að undirbúa jólahátíðina heima fyrir. Við tókum daginn í það hjónin að skreyta, setja upp jólaljós og strauja jóladúkana, ásamt smá tiltekt sem fylgir svona stússi. Við settum upp jólatréð og ljósin á það, en eigum samt eftir að skreyta það sem við gerum á morgun. Við höfum haft það fyrir vana síðustu ár að skreyta jólatréð viku fyrir jól og njóta þess á síðustu dögum jólaaðventunnar. Lítið verður úr jólabakstri þetta árið sýnist mér… en jólin koma fyrir því. Aðal málið er að týna ekki jólabarninu í hjarta sér. Jólin eru yndislegur tími sem maður á að njóta í faðmi fjölskyldunnar ef það er mögulegt.
Lesa meira