Þorláksmessa er einn af þessu góðu dögum sem fylgja jólunum, hún er að mörgu leiti orðiðn hefðbundin hjá okkur. Þá er lokið við jólaundirbúningin helst fyrri hluta dags til að eiga kvöldið til að keyra út jólagjafir og líta við hjá vinum og fjölskyldu. Ég fór í hefðbundna jólaklippingu eins og ég hef gert síðustu ár. Klárað að kaupa inn og pakka inn gjöfunum. Við Jónas fórum í skötuveislu hjá nágrönnum okkar þeim Pétri og Gunný eins og við höfum gert sl. þrjú ár. Þar er snædd vestfirsk skata og hnoðmör, hún var vel kæst og góð þetta árið.