Þennan dag notaði ég til að líta í bók. Ég hef verið að lesa bækur eftir Arnald Indiðason, fyrst Kleifarvatn og síðan Dauða rósir. Báðar þessar bækur komu mér á óvart, hef ekki áður lesið verk Arnaldar. Góðar bækur sem ég mæli með.
|
|
||
|
8. janúar 2006
Þennan dag notaði ég til að líta í bók. Ég hef verið að lesa bækur eftir Arnald Indiðason, fyrst Kleifarvatn og síðan Dauða rósir. Báðar þessar bækur komu mér á óvart, hef ekki áður lesið verk Arnaldar. Góðar bækur sem ég mæli með. 7. janúar 2006
Í dag laugardag er annar í aðfangadegi hér hjá okkur í Kringlumýrinni. Erlingur okkar og Sif voru að koma heim frá New York í morgun og voru búin að panta jólamat með fjölskyldunni. Gústaf, Guðbjörg, Erlingur, Sif og Marinó Geir voru með okkur í mat, svo komu afarnir og ömmurnar í kvöldkaffi. Notalegt kvöld með fjölskyldunni. 6. janúar 2006
Þá er nú síðasti jóladagurinn runninn upp. Ekki er nú veðrið gott til að kveikja í brennu eða að skjóta upp flugeldum. Enda var öllu slíku frestað til morguns. 6. janúar 2006
Unglingadansleikur var haldinn í kvöld fyrir 8, 9 og 10 bekk grunnskólanna í Árborg. Dansleikurinn fór fram á Hótel Selfoss og spilaði hljómsveitin Uppþot fyrir dansi. Upphitunarband var Bygg, en báðar hljómsveitirnar eru skipaðar nemendum úr Vallaskóla. Við vorum svo heppin að fá að koma að þessu balli í gæslu til aðstoðar Félagsmiðstöðinni. Gaman að sjá hve unga fólkið okkar er fallegt og prútt á svona samkomum. Við getum verið stolt af æsku Árborgar. 5. janúar 2006
Mikilvægur samningur um leigu Múla fyrir Tónlistaskóla Árnesinga var staðfestur í Bæjarráði Árborgar í dag. Húsið stendur við Eyraveg og er í eigu Sigurðar Karlssonar. Sigurður er okkur íbúum Árborgar góðkunnur meðal annars fyrir hans miklu söngrödd sem hefur ómað með Karlakór Selfoss síðustu ár, bæði í dúettsöng og kórsöng. Tónlistaskólinn mun fá allt húsið undir starfsemi sína eða um 770 fermetra alls. Starfsemi skólans er metnaðarfull og ásókn nemenda í skólann alltaf að aukast. Samþykkt var á síðasta fundi Héraðsnefndar að fjölga um eitt stöðugildi við skólann til að koma til móts við biðlista sem eru mestir í Árborg. Framtíð skólans er björt í nýjum húsakynnum. Stefnt er að því að skólanum verði slitið í vor í nýjum tónleikasal skólans í Múla. 3. janúar 2006
Fyrsti vinnufundur meirihlutans var í dag kl. 17.00 og stóð til 19.00 |
||
|
© 2026 Margrét Katrín Erlingsdóttir |
||