16. janúar 2006
Kynningarfundur var haldinn í dag kl. 13.00 í Grænumörk á Selfossi um Stefnumörkun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2006 – 2010. Stofnunin hefur sett sér gildi, Þjónusta, samstarf, þekking.
Stefnumörkunin er metnaðarfull og gengur út á að gera þjónustuna meiri og betri. Stefnt er að því að þróuð verði göngudeildarþjónusta samhliða aukinni sérfræðiþjónustu á svæðinu.
Við lok stefnumótunartímabilsins er stefnt að því að öldrunarlækningar verði hornsteinn sjúkrahúsþjónustunnar og að geðheilbrigðisþjónustan verði öflug. Aðgangur íbúa á Suðurlandi að öldrunar-, kvennsjúkdóma-, geð-, almennum skurð-, og barnalækningum aukistu um helming. Þessi sérgreinaþjónusta verði byggð upp sem göngu – og dagdeildarþjónusta.
Góður fundur hjá Heilbrigðisstofnun og mjög fróðlegur.
Lesa meira