2. febrúar 2006

Breyta strætóferðir einhverju fyrir íbúa Árborgar ?

Við getum spurt okkur þeirrar spurningar, mundu strætóferðir á milli Selfoss og Reykjavíkur breyta einhverju fyrir íbúa Árborgar ?

Ég segi já þær mundu breyta mjög miklu. Það eru fjölmargir sem sækja vinnu og skóla til Reykjavíkur alla daga vikunar. Þessi ferðalög kosta mikla peninga fyrir þá sem þau þurfa að stunda. Það mundi létta námsmönnum sem öðrum róðurinn ef að strætóferðir væru í boði. Að greiða 250 kr. fyrir ferðina suður og taka síðan skiptimiða á næstu stoppustöð og geta með honum farið hvert sem maður vill í borginni er töluvert ódýrara en að ferðast með einkabíl, svo ekki sé talað um öryggið sem í þessu er fólgið. Tíminn á milli staða mundi geta nýst til lestrar, vinnu í tölvu eða hreinlega til að fá sér blund. Í dag eru um 10% íbúar sem fara á milli dagalega, þetta mundi létta verulega á umferðarþunga yfir heiðina og innanbæjar í Reykjavík. Gott mál semkemst vonandi í gagnið íbúum Árborgar til hagsbóta.

Lesa meira

2. febrúar 2006

Niðurstöður úr skoðanakönnun Framsóknar birtar !

Á laugardaginn er morgunkaffi í framsóknarsalnum við Eyraveg frá 10 til 12.Einnig verður haldinn félagsfundur þar sem að niðurstöður úr skoðanakönnun vegna sveitarstjórnarkosninganna verða kynntar. Endilega lítið við, spjallið, fáið fréttir og njótið stundarinnar með okkur.

Lesa meira

1. febrúar 2006

Þorvaldur skrifar um Strætó í Sunnlenska á morgun..!

Á sudurland.is kemur fram að Þorvaldur Guðmundsson formaður bæjarráðs Árborgar skrifi í Sunnlenska fréttablaðið sem kemur út á morgun um strætisvagnaferðir á milli Selfoss og Reykjavíkur. Það væri vissulega gott ef að við gætum fengið reglulegar strætóferðir á milli fyrir alla þá fjölmörgu sem ferðast til vinnu eða skóla daglega. Lesið Sunnlenska á morgun og sjáið hvað Þorvaldur skrifar.

Lesa meira

30. janúar 2006

Enginn fundur, tími fyrir hesthúsið

Í dag var enginn fundur hjá mér og gaf ég mér tíma til að fara í hesthúsið, mokaði út og kemmdi. Notalegt að eiga stund með vinum sínum „hrossunum“ í lok vinnudags.

Lesa meira

29. janúar 2006

Uppþot komst áfram í aðalkeppnina

Í gærkveldi voru undanúrslit í SAMFÉS keppninni í Vestmanneyjum þar sem kepptu vinningshafar frá15 félagsmiðstöðvum á Suðurlandi. Sex fulltrúar komust áfram í úrslit í aðalkeppnina sem haldin verður í mars í Mosfellsbæ,hljómsveitin Uppþot frá félagsmiðstöðinni Zelcius erein þeirra.

Meðlimir hennar eru; Óskar Örn Hróbjartsson á bassa, Ragnar Jóhannsson á hljómborð, Marinó Geir Lilliendahl á trommur, Fannar Magnússon á gítar og Guðmundur Þórarinsson sem syngur. Þeir eru allir nemendur í Vallaskóla á Selfossi, í 8, 9 og 10 bekk. Frábær árangur hjá strákunum. Hægt er að skoða myndband af strákunum á þessari slóð. http://www.sudurland.is/eyjafrettir/veftv/veftv.asp?Eyjasyn=samfes_2006.wmv. Hér að neðan er mynd af vinningshöfum keppninar sem birt var á sudurland.is í dag.

Lesa meira

28. janúar 2006

Þorrablót í Þingborg í kvöld.

Í kvöld ætlum við að fara á þorrablót í Hraungerðishreppi með Gísla stórbónda á Stóru Reykjum,Jónínu konu hans, Hróðnýu og Hróbjarti. Gott kvöld með góðum mat framundan.

Lesa meira

28. janúar 2006

Framsóknarkaffi í morgun.

Morgunkaffi var í morgun í Framsóknarsalnum frá 10 til 12. Lítið við næsta laugardag og ræðið málin.

Lesa meira