6. febrúar 2006

Virðisaukadagur í dag.

Í dag hefur verið mikið að gera í vinnunni hjá okkur, skil eru á virðisaukaskatti einnig hjá þeim sem eru í ársskilum. Miklar annir á þessum degi.

Lesa meira

5. febrúar 2006

Sunnudagur, hvíldardagur.

Í dag tókum við því rólega, Jónas notaði daginn til að læra en ég til að líta við hjá Önnu Stínu systir, lesa í bók og hvíla mig. Gott að taka stöku sinnum dag sem þennan.

Lesa meira

4. febrúar 2006

Þorrakvöld með börnum og tengdabörnum

Í kvöld héldum við árlegt þorrablót með strákunum okkar og tengdadætrum, einnig var með okkur í ár Gústaf tengdafaðir minn. Við höfum gert þetta frá því að strákarnir voru litlir til að kenna þeim að borða þorramat. Nú er það orðið svo að þeir bíða eftir þorraveislunni ár hvert. Skemmtilegt kvöld með fjölskyldunni.

Lesa meira

4. febrúar 2006

Launamiðar og launaframtöl kláruð

Um hádegi í dag fórum við Magný Rós að vinna. Við kláruðum útsendinu á launamiðum og skil til Skattstjóra. Við vorum í vinnunni til kl. 17.00.

Lesa meira

4. febrúar 2006

Morgunkaffi Framsóknarmanna.

Í morgun var framsóknarkaffi á Eyraveginum. Þar voru birtar niðurstöður úr skoðanakönnun sem gerð var meðal félagsmanna vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Birt voru nöfn þeirra sex sem skoruðu best það eru; Þorvaldur Guðmundsson, Margrét K. Erlingsdóttir, Björn Bjarndal Jónsson, Helgi Haraldsson, Ármann Ingi Sigurðsson og Elsa Ingjaldsdóttir. Einnig var skýr vilji félagsmanna um að stillt yrði upp á lista. Fram kom í máli formanns Helga Haraldssonar að kosin yrði kjörnefnd sem mundi vinna máliðáfram.

Lesa meira

3. febrúar 2006

Afmælisdagur Fríðu systir.

Í dag á Hólmfríður systir mín afmæli. Fríða býr í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum Ásbirni Guðmundssyni, börn þeirra eru Aron Steinn 17 ára og Anna Margrét (nafna mín) sem er 16 ára. Fríða er sjúkraþjálfari við Landspítalann Háskólasjúkrahús og vinnur á skrifstofu starfsmannamála. Hún vinnur einnig á HL, sem er Hjarta og Lungnastöðin, æfingastöð fyrir sjúklinga. Fríða er einu ári, einummánuði og einum degi eldri en ég og er þriðja í röðinniaf okkur systkinum. Fríða og Ási eru mikiðútivistarfólk og miklir göngugarpar. Í sumar ætla þau að fara með okkur systkinin og maka í gönguí Árneshrepp á Ströndum.Við ætlum að fara og skoða heimkynni forfeðrannaí Þaralátursfirði, Furufirði,Reykjafirði, Skjaldabjarnarvík og á Dröngum. Skemmtileg ferð framundan hjá fjölskyldunni.

Lesa meira

2. febrúar 2006

Fundur um menntamál í FSU

Í kvöld brá ég mér á fund um menntamál í FSU á vegum framboðs Eyþórs Arnalds í prófkjöri sjálfstæðismanna. Ég verð nú að segja að ég undraðist hve fáir voru mættir á þennan fund miðað við hve menntamál eru mikilvæg í samfélginu.

Lesa meira