13. febrúar 2006

Hefðbundinn vinnudagur, breytingar hjá Hönnun !

Í dag var hefðbundinn vinnudagur, ég fór þó á einn fund með framsóknarmönnum. Mikið er um að vera hjá Verkfræðistofunni Hönnun þessa dagana. En við leigjum saman húsnæði. Nú eru strákarnir að bæta við húsnæðið og hafa tekið á leigu nær allann hinn helminginn af hæðinni. Búið er að saga niður veggi, setja kerfisloft, leggja nýjar raflagnir og mála. Þeir eru byrjaðir að flytja inn í nýja hlutann og sýnist mér að þetta verði nú bara nokkuð fínt hjá þeim þegar allt verður komið í samt lag. Þeir eru líka að fjölga starfsfólki og komin er ung og glæsileg stúlka til starfa hjá þeim.

Lesa meira

12. febrúar 2006

Sunnudagur í rólegheitum.

Sunnudaginn notuðum við í afslöppun og heimilsverk. Nauðsynlegt að taka sér dag og dag til að gera eiginlega ekki neitt…

Lesa meira

11. febrúar 2006

Kvöldmatur hjá tengdó.

Í kvöld ætlum við að skreppa á Eyrarbakkaí kvöldmat tilGústafs og Maríu, alltaf tilhlökkun að eiga í vændum „mömmumat“ eins og hann gerist bestur. Notalegt kvöld framundan með fjölskyldunni.

Lesa meira

11. febrúar 2006

Framsóknarkaffi alla laugardagsmorgna frá 10 – 12.

Framsóknarkaffi er í framsóknarsalnum alla laugardagsmorgna frá kl. 10 – 12. Í morgun var góð umræða um bæjarmálin almennt, kátt á hjalla og þokkaleg mæting. Endilega líttu við næsta eða næstu laugardaga og vertu með í umræðunni, hittu skemmtilegt fólk, fáðu þér kaffi og meðlæti.

Lesa meira

11. febrúar 2006

Flaggað fyrir sólinni og ruslið tínt úr garðinum !

Í dag er einn af þessum fallegu og björtu sólardögum sem við söknum svo yfir vetrarmánuðina. Í tilefni dagsins dró ég Íslenska fánann að húni. Á dögum sem þessum finnst manni að nauðsynlegt sé að fara út í garð tína rusl og hreinsa í kringum sig eins og hægt er yfir veturinn. Mér finnst alveg ótrúlegt hve mikið rusl lendir í görðum og bílaplönum yfir veturinn, hvaðan kemur það spyr maður sig, en í nýjum hverfum eru miklar byggingaframkvæmdir og oft eru menn ekki nægilega duglegir að taka til og passa upp á að ruslið fjúki ekki. Tökum höndum saman og látum ruslið ekki fjúka um bæinn okkar fallega.

Lesa meira

10. febrúar 2006

Fór í svæðisútvarpið til Sigmundar.

Seinni partinn í dag var ég ásamt Guðmundi Stefánssyni oddvita í Hraungerðishreppi í svæðisútvarp Suðurlands.  Umræðuefnið var, sameining í Flóa, Fjallið okkar „Ingólfsfjall“ og námuvinnsla þar og framboðsmál Framsóknarmanna.  Alltaf gaman að vera með Guðmundi í umræðum, enda er hann heiðarlegur og skemmtilegur viðmælandi.

Lesa meira

10. febrúar 2006

Frí þessa viku.

Þessa viku eða 7,8,9 og 10 febrúar hef ég verið í fríi bæði frá vinnu og bæjarmálunum. Á meirihlutafund og bæjarstjórnarfundmætti Björn Bjarndal Jónsson fyrir mig en hann er varabæjarfulltrúi okkar Framsóknarmanna.

Lesa meira