Ég hef síðustu vikurnar verið að skoða mín mál niður í kjölinn og reyna að taka ákvörðun um hvort að ég eigi að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa á þeim vettvangi eða ekki.
|
|
||
|
18. febrúar 2006
Ég hef síðustu vikurnar verið að skoða mín mál niður í kjölinn og reyna að taka ákvörðun um hvort að ég eigi að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa á þeim vettvangi eða ekki. 17. febrúar 2006
Unglingahljómsveitin Uppþot fór í morgun til Vesmannaeyja til að spila á skólaballi fyrir jafnaldra sína. Mikil tilhlökkun var meðal unglinga í Vestmannaeyjum vegna komu hljómsveitarinnar og skemmtunarinnar í kvöld. Hljómsveit þessi er afrakstur félagsmiðstöðvarinnar Zelcius í Árborg en hún mun keppa í undanúrslitum Samfés á næstunni fyrir hennar hönd. Hljómsveitin og umboðsmaður hennar fengu höfðinglegar móttökur í Eyjum eins og venja er þar þegar gesti ber að garði. 17. febrúar 2006
Við hjónin erum þessa helgi stödd á Hótel Sögu í Reykjavík. Tilefni ferðarinnar er árshátíð starfsmanna MS. Við komum hér um fimmleitið í dag, borðum góðan kvöldverð í Skrúð og fórum síðan að sjá Túskildingsóperuna í Þjóðleikhúsinu. Skemmtilegur söngleikur sem færður hefur verið í nútímabúning. Ég sá uppfærslu óperunnar hjá Menntaskólanum á Laugarvatni fyrir allmörgum árum en þá söng Samúel bróðir minn eitt af aðalhlutverkunum. Í minningunni var það nokkuð góð uppfærsla og ekki síðri en við sáum í gær ! 16. febrúar 2006
Fundur var haldinn í Hótel Selfoss í kvöld á vegum samgöngunefndar SASS. Umræðuefni fundarins var Suðurlandsvegurinn frá Reykjavík að Selfossi. . 15. febrúar 2006
Vinkona mín og samstarfskona Anna Steinþórsdóttir var að flytja í Kringlumýrina nú á dögunum. Kvöldinu vörðum við vinkonurnar í að setja saman borð og stóla sem hún var að kaupa sér í nýja húsið. Einnig tókum við á því saman við að koma henni og Örvari syni hennar fyrir á nýja heimilinu. 15. febrúar 2006
Fimmtánda hvers mánaðar er stór dagur í vinnunni hjá okkur stelpunum. Þá eru skil á launatengdum gjöldum og sinnum við þeirri þjónustu fyrir mörg fyrirtæki og einstaklinga. Við göngum frá öllum launagögnum og förum með í bankana til að létta mönnum lífið. 14. febrúar 2006
Í kvöld fór ég á fund í Hótel Selfoss á vegum nýs félags Miðbæjarfélagsins. Ágætis fundur þar sem margt fróðlegt kom fram. Fundurinn var frá kl. 20.00 til 22.30. Sérfræðingar komu á vegum félagsins frá Reykjavík og fjölluðu um háhýsi, veður og vinda ásamt búsetu á Selfossi. Í dag var vikulegur vinnufundur meirihluta bæjarstjórnar frá kl. 17.00 til 18.30. |
||
|
© 2026 Margrét Katrín Erlingsdóttir |
||