maí 18th, 2004

Skólamáltíðir í Grunnskóla Árborgar Skólamáltíðir í öllum grunnskólum Árborgar „veruleiki“


Mikið framfaraskref hefur verið tekið í skólamálum í Árborg með innleiðingu skólamáltíða. Bæjarráð hefur samþykkt að í haust skuli hefjast afgreiðsla skólamáltíða í öllum grunnskólum sveitafélagsins.

Skólanefnd hefur unnið að útfærslu hugmyndarinnar ásamt stjórnendum skólanna og verkefnisstjóra fræðslumála. Tillagan gengur út á mánaðaráskrift sem greidd er fyrirfram, hver máltíð kostar kr. 200-

Í skólastefnu sveitafélagsins er lögð áhersla á skólamáltíðir. Mikilvægt er að öllum íbúum bjóðist sama þjónusta hvar sem að þeir búa innan sveitafélagsins, þess vegna verður byrjað á sama tíma í öllum grunnskólunum.

Sunnulækjarskóli skal hann heita. Nýji grunnskóli sveitafélagsins sem er í Suðurbyggð á Selfossi verður tekinn í notkun í haust. Búið er að ráða skólastjóra Birgi Edvald, einnig aðstoðarskólastjóra og kennara. Efnt var til nafnasamkeppni um nafn á skólann. Góð þáttaka var í samkeppninni alls bárust 43 tillögur, skólanefnd valdi úr tillögunum nafnið "Sunnulækjarskóli". Nafnið er bæði fallegt og myndrænt. Einnig lagði nefndin til að lækurinn sem rennur við skólann (gamli áveituskurðurinn) verði látinn heita Sunnulækur. Verðlaun verða veitt fyrir nafnið og verður það gert á næsta fundi nefndarinnar sem verður í júní. Skólabyggingin hefur gengið vonum framar og er verkið um mánuð á undan áætlun. Í dag eru skráðir 151 nemandi í skólann í 1 – 4 bekk. Ekki er aðstaða til íþróttaiðkunnar eða fyrir skólavistun í fyrsta áfanga, þess vegna verður nemendum ekið í íþróttir, sund og skólavist, skólavistin verður áfram í Bifröst eða þar til seinni áfangi skólans verður tekinn í notkun 2007.

Miklar breytingar eru fyrirhugaðar í Vallaskóla. Skipaður var starfshópur um framtíðarskipulag skólans, þar sem allir áttu fulltrúa, starfsmenn, foreldrar, skólanefnd og bæjarstjórn. Hópurinn skilaði sameiginlegri niðurstöðu þar sem hann lagði til að í Sandvík yrði 1 – 3 bekkur og á Sólvöllum 4 – 10. Mikilvægt er að hafa alla bekki innan árgangs á sama stað það auðveldar starfsmönnum samvinnuna og börnin upplifa sig í sama skóla. Þessar breytingar munu efla félagsandann í skólanum. Einnig verður ekki um mismunun að ræða hjá börnum á sama aldri. Allir hafa sömu aðstæður til náms innan hvers árgangs í skólanum. Stjórnendur skólans og starfsmenn eru nú á fullu við að skipuleggja hvernig þessar breytingar verði framkvæmdar.

Bæjarráð sótti um þrjá gervigrasvelli til KSÍ og er ætlunin að einn gervigrasvöllur verði við hvern skóla, en þó tveir við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri, einn á hvorum stað og einn við Sunnulækjarskóla. Nú bíðum við bara og vonum að sveitafélaginu verði úthlutað þremur völlum, ef ekki á þessu ári þá á næsta ári.

Grunnskólar Árborgar eru í stöðugri þróun, mikið og öflugt starf hefur verið unnið þar af starfsmönnum og nemendum. Bæjarstjórn hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að efla og styrkja skólastarfið. Öllum þeim fjölmörgu sem starfað hafa að grunnskólum sveitafélagsins á skólaárinu færi ég hjartans þakkir og óska ykkur öllum, ásamt öllum íbúum sveitafélagsins gleðilegs sumars.

Margrét Katrín Erlingsdóttir,

formaður skólanefndar og bæjarfulltrúi í Árborg.

ritað 18. maí 2004.