Í fyrsta lagi er sagt frá því að fram hafi komið hjá skipulagsráðgjafa sveitafélagsins að rætt hafi verið um í skipulagshópi Árborgar að börnum við ströndina yrði ekið á Selfoss í framtíðinni í skóla, en jafnframt að það væri mjög miður vegna þess að skólinn væri lífið í þorpunum.
Auðvitað er margt rætt í skipulagshópi sveitarfélagsins sem þarf að horfa fram á veginn til margra ára en þessi umræða hefur ekki verið sett á blað og þess vegna hvergi komið fram nema á fyrr nefndum Borgarafundi.
Ég vil sem formaður skólanefndar og bæjarfulltrúi að það sé alveg ljóst að engin umræða hefur farið fram í skólanefnd eða bæjarstjórn um þetta mál. Skólanefnd hefur fundað um skipulagsmál og um skólalóðir til framtíðar, í niðurstöðu nefndarinnar til skipulagshópsins kom fram að mikilvægt væri að skerða ekki þær lóðir sem þegar væru í notkun á Eyrarbakka og Stokkseyri, jafnframt að gert væri ráð fyrir nýju svæði mitt á milli þorpanna fyrir nýjan skóla, ef það yrði niðurstaða vinnuhóps um framtíðaruppbyggingu skólans. En verið er að undirbúa að þessi hópur geti hafið störf. Ég vil hvetja alla sem áhuga hafa á skólamálum að taka þátt í að móta framtíðarhugmyndir húsnæðismála Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, en sveitafélagið mun auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í þessu verkefni.
Meirihluti bæjarstjórnar Árborgar gerir sér fullkomlega ljóst hve mikilvægt er fyrir mannlífið við ströndina að skólahald sé þar til staðar og það hefur ekki verið í umæðunni að breyta því.
Margrét Katrín Erlingsdóttir
Formaður skólanefndar Árborgar.