maí 12th, 2007

Kosningadagur

Í morgun fór ég snemma á fætur og fór í vinnu, var að til kl. 13.30 og var þá búin með fullan vinnudag.  Fór þá á Kosningaskrifstofuna og tók þar á móti gestum fram eftir degi…auðvitað kaus ég í millitíðinni.   Var á skrifstofunni með smá hléi fram yfir miðnætti.  Ótrúlega spennandi nótt.

Það má segja að sjaldan hafi maður lifað eins spennandi kosningar og virtist allt geta gerst.  Við Framsóknarmenn fórum á landsvísu frekar illa, töðum 6% eftir 12 ára setu í ríkistjórn.  Við héldum þó nokkuð vel í fylgið á landsbyggðinni, en Reykjavíkurkjördæmin Þar var niðurstaðan  nú vægast sagt hörmuleg…. ekki ætla ég að reyna að greina hana.    Það sem mér þótti nú merkilegra að Samfylkingin skyldi tapa 4% í stjórnarandstöðu hvaða skilaboð eru það til hennar ?   Já það er margt sem hægt er að velta fyrir sér í lok kosninga.  

Samt eru kosingar skemmtilegar og mikilir hátíðisdagar þegar þær renna upp.