febrúar 26th, 2007

Ferð með stjórn Tónlistaskólans.

Í dag kl. 13.00 fór stjórn Tónlistaskólans ásamt Róbert skólastjóra og Helgu Sighvatsdóttur í skoðunarferð í grunnskóla í lágsveitum.  Tilgangur ferðarinnar var að skoða aðstæður skólans í grunnskólum til kennslu.  Við byrjuðum á að fara í Flóaskóla, þar er nokkuð vel búið að skólanum en kennslan fer fram í félagsheimilinu Þjórsárveri, en stendur til að flytja hana inn í skólann.  Þaðan lá leiðin á Stokkseyri þar sem er ágætis kennslustofa, síðan á Eyrarbakka þar sem kennt er á Stað í fínni stofu.  Betra væri þó að hafa kennsluna inni í skólanum en það lagast þegar nýji skólinn verður tilbúinn.  Næst fórum við í Þorlákshöfn þar sem aðstaða skólans hefur verið til fyrirmyndar um langt skeið.  Skólinn hefur kennslusvæði útaf fyrir sig og er það vel.  Síðast komum við í Hveragerði og eru aðstæður skólans þar mjög góðar, fínar stofur.  Skemmtileg ferð þar sem alltaf er gaman að skoða grunnskola.