febrúar 20th, 2007

Carnarí eyjar.

Þann 6. febrúar fórum við til Canarí eyja og vorum þar til 20. febrúar.  Ferðin var í alla staði frábær.  Við fórum með vinum okkar Einari og Ellu Veigu í Egilsstaðakoti.  Veðrið var eins og best verður á eyjunni frá 22 stiga hita og upp í 33 gráður.  Við fórum í Hellaferð og skoðuðum heimili fólks sem þar býr.  Ótrúlegt að koma inn í hella árið 2007 sem fólk býr í með öll nútíma þægindi. Ég hef nú ekki trú á því að við Íslendingar myndum láta okkur hafa það að búa í hellum.  En ótrúlegt að hver hellir var með mörgum herbergjum.  Canarí eyjar er falleg eyja en samt frekar hrjóstrug þar sem lítið er um vatn og sjaldan rignir.  Nær allur gróður á eyjunni er gróðursettur og vökvaður til að hann lifi.  Eyjan er góður hvíldarstaður fyrir okkur Íslendinga.