febrúar 10th, 2006

Fór í svæðisútvarpið til Sigmundar.

Seinni partinn í dag var ég ásamt Guðmundi Stefánssyni oddvita í Hraungerðishreppi í svæðisútvarp Suðurlands.  Umræðuefnið var, sameining í Flóa, Fjallið okkar „Ingólfsfjall“ og námuvinnsla þar og framboðsmál Framsóknarmanna.  Alltaf gaman að vera með Guðmundi í umræðum, enda er hann heiðarlegur og skemmtilegur viðmælandi.